Drög að framkvæmdareglugerð um samræmt snið landsáætlana um endurheimt náttúrunnar samkvæmt reglugerð (ESB) 2024/1991 - 32025R0912

Commission Implementing Regulation (EU) 2025/912 of 19 May 2025 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2024/1991 of the European Parliament and of the Council as regards a uniform format for the national restoration plan


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð merkt EES-tæk en EFTA-ríkin innan EES telja að eigi ekki að taka upp í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Drög að framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) 2025/912 um reglur um beitingu reglugerðar (ESB) 2024/1991 um endurheimt náttúrunnar hvað varðar samræmt snið fyrir landsáætlun um endurheimt náttúru.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð 2024/1991 krefst þess af aðildarríkjunum að þau útbúi og skili drögum að landsáætlun um endurheimt náttúrunnar eigi síðar en 1. september 2026 og að þau tilgreini í því skyni þær endurheimtunaraðgerðir sem nauðsynlegar eru til að ná markmiðum reglugerðar 2024/1991 og uppfylla skyldur samkvæmt henni. Framkvæmdastjórnin skal, með aðstoð Umhverfisstofnunar Evrópu, setja samræmt snið fyrir þessar landsáætlanir um endurheimt.Í 1. gr. í drögum að framkvæmdareglugerðinni er vísað til þess að í viðauka við reglugerðina sé að finna samræmt sniðmát fyrir landsáætlanir um endurheimt náttúrunnar en vísað er til þessa sniðmáts í 7. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 2024/1991. Samkvæmt reglugerð 2024/1991 skulu aðildarríkin hvert um sig gera slíka áætlun til að ná þeim markmiðum sem sett eru fram í 4. – 13. gr. reglugerðarinnar og skal áætlunin ná til ársins 2050. Vísað er til greiningar á reglugerð 2024/1991 varðandi nánar skýringar á ákvæðum 4. – 13. gr.Viðaukanum er skipt í A, B og C- hluta. A-hluti fjallar um upplýsingar þvert á markmið, B-hluti fjallar um stefnu hvers aðildarríkis til að þess að ná markmiðum um endurheimt náttúru og uppfylla skyldur í samræmi við þau markmið sem sett eru fram  í 4. – 13. gr. reglugerðarinnar. C-hluti fjallar síðan um aðgerðir.Reglugerð (ESB) 2024/1991 hefur ekki verið innleidd í íslenskan rétt en ákvæði sem stuðla að og stefna að sambærilegri vernd og er t.d. talin upp í 4. og 5. gr. framkvæmdareglugerðarinnar eru að finna í náttúruverndarlögum nr. 60/2013. Þá er í reglugerðinni vísað í Natura 2000 svæði og bæði búsvæðatilskipunina (habitats directive) og fuglatilskipunina (birds directive). Ísland hefur ekki útnefnt Natura 2000 svæði og hefur innleitt hvoruga tilskipunina þar eð náttúruverndarlöggjöf Evrópusambandsins er ekki hluti af EES samningnum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Drögin kveða á um ýmislegt sem er ekki að finna í íslenskum rétti. Setja þarf lög til að lögfesta hin ýmsu markmið og áætlanagerð. Þá hefur reglugerð nr. 2024/1991 sem framkvæmdareglugerðin byggir á ekki verið innleidd í íslenskan rétt.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R0912
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/912, 20.5.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D105588/02
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32024R1991 based on Regulation (EU) 2024/1991 of the European Parliament and of the Council of 24 June 2024 on nature restoration and amending Regulation (EU) 2022/869 Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar