Útdráttur
Uppfærðar eru reglur er varða vöktun, skýrslugjöf og vottun vegna eldsneytis sem uppfyllir sjálfbærniviðmið til frádráttar uppgjörs í CORSIA (e. CORSIA eligible fuels) og skýrslugjöf aðildarríkja til Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (e. ICAO).
Nánari efnisumfjöllun
Með breytingum sem gerðar voru á tilskipun ESB 2003/87/EB (ETS-tilskipun) með tilskipun (ESB) 2023/958 var regluverk kolefnisjöfnunar og -samdráttar í alþjóðaflugi (e. Carbon Offsetting and Reduction Scheme for International Aviation), þ.e. CORSIA, innleitt. Með reglugerð þeirri sem hér er til greiningar er verið að samþætta CORSIA að hluta við regluverk um ETS hvað varðar vöktun, skýrslugjöf og sannprófun (MRV) á losun sem á sér stað í alþjóðaflugi.Reglugerð (ESB) 2025/927 kemur í stað reglugerðar (ESB) 2019/1603 til að samræma reglurnar við nýjustu ákvæði ETS-tilskipunarinnar og uppfærðar leiðbeiningar Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO). Í 1. gr. reglugerðarinnar er gildissvið hennar sett fram, þ.e. hvaða flugrekendur falla undir gildissvið hennar og hvaða flug. Hún tekur til flugrekenda sem uppfylla þær kröfur sem settar eru fram í 3. og 4. undirgrein, 6. mgr. 12. gr. ETS tilskipunarinnar. Það eru flugrekendur sem eru með flugrekstrarleyfi í aðildarríki ESB eða eru skráðir í ríki ESB. Þessir flugrekendur þurfa einnig að losað meira en 10.000 CO2 vegna notkunar á flugvélum með flugtaksmassa yfir 5.700 kg í flugi sem tilgreint er í viðauka I við ETS tilskipunina. Hún tekur m.a. til alþjóðafluga (fluga milli ríkja) sem flugrekandi er ábyrgur fyrir og tilgreind (e. covered by) eru í viðauka I við ETS tilskipunina. Í reglugerðinni er fjallað um eldsneyti sem uppfyllir sjálfbærniviðmið til frádráttar uppgjöri í CORSIA (e. CORSIA eligible fuel) þar sem skilgreining á því er sett fram auk nýrra krafna um hvernig meðferð, skráning á notkun þess og sannprófun á notkun þess skuli háttað. Það eru þrjú samþykkt sjálfbærnivottunarkerfi (e. approved sustainability certification schemes) sem hægt er að notast við: ISCC, RSB og ClassNK SCS, sbr. viðauka I við reglugerð ESB 2025/927. Í 3. gr. reglugerðarinnar er fjallað um ábyrgðarríki flugrekenda. Í 4. gr. reglugerðarinnar kemur fram að flugrekendur skuli vakta og gefa skýrslu um losun frá þeim flugum sem tilgreind eru í 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar, þær skýrslur skulu gerðar í samræmi við reglugerð ESB 2018/2066, nema annað sé tiltekið í reglugerð ESB 2025/927.Í 5. gr. reglugerðarinnar er fjallað um vöktun og skýrslugjöf á eldsneyti sem uppfyllir kröfur CORSIA. Ef flugrekandi hyggst fara fram á lækkun vegna notkunar á eldsneyti sem uppfyllir sjálfbærniviðmið CORSIA, skal hann vakta og gefa skýrslu um magn eldsneytis sem er keypt. Slíkar skýrslur skulu að mestu leiti vera í samræmi við reglugerð ESB 2018/2066 en einnig ákvæði reglugerðar ESB 2025/927. Í ákvæðinu eru einnig frekari reglur settar fram ef eldsneyti uppfyllir ekki viðmiðin, o.fl. Með skýrslunni skulu flugrekendur senda lista yfir þau kerfi sem þeir taka þátt í tengslum við gróðurhúsalofttegundir (e. greenhouse gas schemes) og hægt er að fara fram á lækkun vegna notkunar á eldsneyti sem uppfyllir kröfur CORSIA eða annars eldsneytis sem uppfyllir kröfur 23. liðs b. 3. gr. reglugerðar ESB 2018/2066. Það er til að koma í veg fyrir að eldsneyti sé tilkynnt oftar en einu sinni. Upplýsingar um notkun á eldneyti sem uppfyllir kröfur CORSIA skulu koma fram í árlegri losunarskýrslu, þar sem ákveðnar upplýsingar skal tiltaka. Í 6. gr. reglugerðarinnar er fjallað um sannprófun á skýrslum samkvæmt 4. gr. (skýrsla um losun) og 5. gr. (skýrsla um eldsneyti sem uppfyllir skilyrði CORSIA). Í 9. gr. er fjallað um efni skýrslna aðildarríkja til ICAO, þar á meðal vegna upplýsingar um losun og eldsneyti sem uppfyllir sjálfbærniviðmið til frádráttar í uppgjöri, sjá nánar í viðauka V við reglugerð ESB 2025/927. Efni skýrslna aðildarríkja til ICAO um eyðingu eininga (e. emissions unit cancellation) má sjá nánar í viðauka VI við reglugerð ESB 2025/927.Í 9. gr. kemur fram að ef villa uppgötvast í gögnum flugrekenda sem hafur verið skilað (e. reported data), skuli aðildarríki athuga afleiðingar villunnar á jöfnunarskyldur flugrekandans á fyrri árum og ef nauðsynlegt er gera aðlögun til að bæta hana upp á CORSI tímabilinu sem við á.Helstu dagsetningar Flugrekendur skila losunarskýrslu fyrir 31. mars hvers árs byggða á MMR (ESB 2018/2066), vegna þeirra fluga sem tilgreind eru í 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar, sem fjallar um gildissvið hennar, í staðinn fyrir International Standards and Recommended Practices on Environmental Protection for CORSIA (CORSIA SARPs). Fyrir 30. nóvember ár hvert skal aðildarríki senda lista yfir flugrekendur sem heyra undir Ísland, sbr. 3. gr. reglugerðarinnar, til ICAO.Flugrekendum ber að skila vottaðri skýrslu um kolefnisjöfnun til ábyrgðaraðildarríkis (e. administering Member State) fyrir árin 2024-2026 fyrir 30. apríl 2028, sbr. 7. gr. reglugerðarinnar. Þar er einnig tiltekið hvernig skulu kolefnisjafna, þ.e. í gegnum ákveðið skráningarkerfi o.fl.. Efni skýrslunnar er tilgreint í viðauka III við reglugerðina. Um vottun þeirrar skýrslna er fjallað í 8. gr. reglugerðarinnar.Aðildarríki skulu skila upplýsingum til ICAO fyrir 31. júlí 2028 vegna kolefnisjöfnunar flugrekenda á árunum 2024-2026.Reglugerð ESB 2025/927 tók gildi gangvart ríkjum Evrópusambandsins í maí 2025. Sérstaklega er tiltekið í formálsorðum gerðarinnar að þær reglur sem eru settar fram í henni skuli taka gildi án tafar til að tryggja tímanlega framkvæmd gerðarinnar.Reglugerð ESB 2019/1603 er felld úr gildi með reglugerð ESB 2025/927.