DIWASS - samevrópskt kerfi fyrir flutning úrgangs - 32025R1290
Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1290 of 2 July 2025 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2024/1157 of the European Parliament and of the Council as regards the requirements necessary for the interoperability between the central system for the electronic submission and exchange of information and documents related to shipments of waste and other systems or software, as well as other technical and organisational requirements necessary for the practical implementation of such electronic submission and exchange of information and documents
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin kveður á um notkun og virkni samevrópsks rafræns kerfis fyrir flutning úrgangs á milli landa. Kerfið verður notað fyrir skráningu tilkynninga, samþykki tilkynninga, skráningu sendinga og aðra stjórnsýslulega umsýslu sem tengist flutningi úrgangs – bæði hættulegs- og hættulauss úrgangs.
Nánari efnisumfjöllun
Í nýrri reglugerð (ESB) 2024/1157 um flutning úrgangs á milli landa, sem ekki hefur enn verið innleidd á Íslandi, er gert ráð fyrir bættri skráningu úrgangsgagna og að tilkynningar um flutning verði afgreiddar á rafrænan og samræmdan hátt. Í 3. málslið 27. greinar reglugerðarinnar er kveðið á um að framkvæmdastjórn ESB útbúi og haldi úti rafrænu skráningarkerfi fyrir flutning úrgangs sem aðildarríki nota annað hvort í gegnum beina sívirka rafræna tengingu (API-tengingu) eða í gegnum vefgátt (GUI). Kerfið sem um ræðir er kallað DIWASS. Það verður innleitt í allri Evrópu þann 21. maí 2026.DIWASS verður notað fyrir flutningstilkynningar, staðfestingar- (e. acknowledgement) og samþykki (e. consent) stjórnvalda, flutningspappíra og til að halda utan um gögn. Allir aðilar sem koma að flutningi úrgangs skrá upplýsingar frá sér inn í kerfið – ekki aðeins stjórnvöld og tilkynnandi heldur einnig flytjandi, úrvinnsluaðili og aðrir aðilar eftir þörfum. Kerfið nær bæði yfir hættulegan úrgang (e. hazardous waste) og úrgang sem ekki er hættulegur (e. green listed waste).Reglugerðin er efnislega mjög tæknileg.Þann 3. febrúar 2026 þarf Ísland að hafa tekið ákvörðun um það hvernig við sem stjórnvöld og hvernig okkar rekstraraðilar munu tengjast við kerfið, þ.e. hvort við ætlum að tengjast því í gegnum vefgátt eða í gegnum sjálfvirka API-tengingu. Þar sem Ísland er ekki með sitt eigið landlæga kerfi liggur beinast við að tengjast í gegnum vefgátt. Ísland gefur út yfirlýsingu um hvernig við munum tengjast við kerfið en þeirri yfirlýsingu má breyta síðar í samræmi við grein 4(2) ef Ísland ákveður að útbúa API-tengingu við DIWASS.Tæknilegar kröfur sem gerðar eru til kerfisins eru birtar í viðaukum við reglugerðina (96 bls).Stjórnvöld og allir aðilar sem meðhöndla þann úrgang sem fluttur er munu hafa aðgang að kerfinu og geta séð upplýsingar um sendingar sem þeir taka þátt í að flytja. Eftirlitsaðilar munu hafa lesaðgang inni í kerfinu.Kafli I (greinar 1-8) fjallar um gildissvið, skilgreiningar, eignarhald á upplýsingum sem settar eru inn í DIWASS, aðgang að kerfinu, hlutverk notenda, notendaskráningu, skráningu rekstraraðila og skráningu yfirvalda.Innskráning og auðkenning fara venjulega fram í gegnum EORI-númer. Þar sem Ísland úthlutar ekki EORI-númerum og mun ekki innleiða regluverk Evrópusambandsins um EORI-númer, þarf að haga innskráningu og notendaauðkenningu með öðrum hætti, til dæmis í gegnum rafræn skilríki eða Stafrænt Ísland. Þó kemur fram í grein 9(2) að þar sem rekstraraðili er skráður með EORI-númer, ætti að nota það sem fyrsta valkost við innskráningu.Kafli II (greinar 9-17) fjallar um tæknilegar kröfur sem gerðar eru til DIWASS og tölvukerfa einstakra ríkja sem eiga að tala við DIWASS. Þar sem Ísland er ekki með sitt eigið kerfi, á þessi kafli takmarkað erindi við Ísland að svo stöddu. Þó er í kaflanum greint frá atriðum eins og hvaða mismunandi hlutverk notendur geta haft í kerfinu og hvernig skrá á nýja notendur.Kafli III (greinar 18-25) fjallar um ýmis praktísk atriði, til dæmis hvaða aðilar hafa aðgang að hvaða gögnum, hversu lengi gögn skulu vera geymd, gagnaöryggismál, gæði gagna, meðferð trúnaðargagna og geymslu persónuupplýsinga.Kafli IV (greinar 26-27) fjallar um aðrar kröfur sem gerðar eru til stjórnvalda annars vegar og framkvæmdastjórnar ESB hins vegar. Stjórnvöld þurfa meðal annars að tilkynna um þá aðila sem teljast fyrirframsamþykktir meðhöndlunaraðilar (e. pre-consented), upplýsa rekstraraðila um hvernig eigi að nota DIWASS, upplýsa framkvæmdastjórnina um hver verði tengiliður Íslands við framkvæmdastjórnina vegna aðgangs að kerfinu og svara spurningum rekstraraðila um kerfið eftir atvikum.Rekstraraðilar skulu vera upplýstir um innihald tilkynningar stjórnvalda til framkvæmdastjórnarinnar um hvernig stjórnvöld hyggjast nota kerfið (sjá grein 26(2) í reglugerðinni og athugasemd við 3. febrúar 2026 undir mikilvægar dagsetningar að neðan).Kafli V inniheldur grein 28 þar sem fjallað er um gildistöku reglugerðarinnar.Mikilvægar dagsetningar:2. júlí 2025 – Reglugerðin var birt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.3. febrúar 2026 – Aðildarríki skulu hafa tilkynnt framkvæmdastjórninni um hvort þau muni nota kerfið með API-tengingu eða í gegnum vefgátt og hvaða auðkennisnúmer (til dæmis IS + kennitala) verði notuð til að auðkenna rekstraraðila í kerfinu og til innskráningar í kerfið. Flest ríki munu nota EORI-númer til innskráningar en þau eru lítið notuð af stjórnvöldum á Íslandi.14. apríl 2026 – Síðasti dagur til að skila inn virkniprófi fyrir API-tenginu aðildarríkja eigi API-tenging að vera orðin virk 21. maí.20. maí 2026 – Síðasti dagur sem pappírstilkynningar samkvæmt reglugerð 1013/2006 verða staðfestar (e. acknowledged).21. maí 2026 – DIWASS-kerfið verður innleitt í allri Evrópu.3. júní 2026 – Aðildarríki skulu hafa tilkynnt framkvæmdastjórninni um þá úrvinnsluaðila sem stjórnvöld hafa fyrirframsamþykkt samkvæmt grein 14(1) í reglugerð 1013/2006.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta eða setja nýja reglugerð um flutning úrgangs á milli landa. Lagastoð er að finna í t-x-lið 43. greinar laga 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|---|
| Niðurstöður samráðs | Ekki var talin þörf á samráði á þessu stigi. |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Við greininguna var ekki lagt mat á kostnað og ábata en við greiningu reglugerðar (ESB) 2024/1157 kom eftirfarandi fram (með smávægilegum viðbótum) um kostnað og ábata á Íslandi: „Stjórnvöld munu þurfa að leggja út kostnað vegna innleiðingar reglugerðarinnar en töluverðir fjármunir sparast bæði til skamms- og langs tíma í stjórnsýslu og meðal úrgangsþjónustuaðila. Almenningur verður fyrir takmörkuðum, en þó jákvæðum fjárhagslegum áhrifum. Stjórnvöld: Sparnaður, ótilgreindur vegna minni umsýslukostnaðar. Sparnaður, ótilgreindur vegna minni urðunar og aukinnar endurnýtingar. Kostnaður, ótilgreindur vegna innleiðingar samevrópsks rafræns tilkynningarkerfis. Ekki er vitað hver sá kostnaður verður. Ef ráðist verður í gerð íslensks kerfis (sem er ekki skylda), verður sá kostnaður um 50.000 EUR lægri en sambærileg kerfi vegna þess að kerfið er samevrópskt. Úrgangsþjónustuaðilar: Sparnaður verður vegna aukinnar skilvirkni. Sparnaður verður við hverja tilkynningu. Gera má ráð fyrir að gjald fyrir tilkynningu verði aðeins um tveir þriðju af því sem nú er nú. Sparnaður 1.350 EUR á ári vegna aukinna tekna og lægri útgjalda. Sparnaður 380 EUR á ári vegna minni umsýslukostnaðar. Sparnaður 130 EUR á ári vegna færri tafa. Almenningur: Sparnaður 34.715.000-89.660.000 ISK á ári vegna skilvirkni og minni losunar gróðurhúsalofttegunda.“ |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Ísland flytur stóran hluta síns úrgangs til Evrópu og hefur sérstakan hag af því að innleiða samevrópskt rafrænt kerfi fyrir flutning úrgangs. Ísland hefur sértakan hag af þessu umfram sum önnur ríki Evrópu því Ísland býr ekki yfir landlægu rafrænu kerfi. Tilkynningar og flutningspappírar eru þess vegna útbúnir og meðhöndlaðir handvirkt sem er tímafrekt, ógagnsætt og óskilvirkt ferli. Handvirkt ferli torveldar einnig eftirlit og eykur kostnað í kerfinu. Bætt gagnaskráning mun bæta úrgangstölfræði og gera ólöglegan flutning úrgangs og ólöglega meðhöndlun hans sýnilegri eftirlitsaðilum, hvort sem er innanlands eða utan-. Gert er ráð fyrir nokkrum fjárhagslegum sparnaði við innleiðinguna. Ef Ísland tekur upp notkun DIWASS-kerfisins í gegnum vefgátt verður kostnaðurinn lítill eða enginn. Ef Ísland útbýr sitt eigið kerfi sem talar við DIWASS-kerfið verður einhver kostnaður vegna þess. Ísland hefur enn ekki innleitt reglugerð 2024/1157 sem er lagaleg stoð reglugerðarinnar. Ísland hefur ekki innleitt eFTI-kerfi til rafrænnar skráningar á farmi við farmflutningar skv reglugerð (ESB) 2020/1056. Hægt er að tengja skráningar í eFTI-kerfi við DIWASS til að gera skráningar farmflytjenda sjálfvirkar. Þar sem ekki hefur náðst niðurstaða í viðræður innan EES-nefndarinnar um innleiðingu eFTI-kerfis er ljóst að Ísland mun ekki ná að nýta þá sjálfvirknivæðingu sem felst í DIWASS að fullu leyti, að minnsta kosti ekki til að byrja með. Ef eFTI-kerfi hefur ekki verið innleitt þegar DIWASS kerfið tekur gildi, munu farmflytjendur þurfa að handskrá upplýsingar inn í kerfið. Fjallað er um mögulega innleiðingu eFTI-kerfis á Íslandi í bréfi til Innviðaráðuneytisins þann 31. janúar 2023 (tilvísun UST202211-221 og IRN22010116/2.21.6). Ísland notar ekki EORI-kerfi til að auðkenna rekstraraðila líkt og gert er í Evrópusambandinu. Ákvæði sem vísa í reglugerðir (ESB) 2015/2446 og (ESB) 2013/952 eiga því ekki við um Ísland. Ísland mun því fara aðra leið en flest aðildarríki við að auðkenna aðila í kerfinu og því gæti fylgt minniháttar kostnaður. Líklega munu þeir aðilar á Íslandi sem eru með EORI-númeri geta skráð sig inn með því númeri, jafnvel þótt rekstraraðilar á Íslandi fari almennt aðra leið til innskráningar. Stjórnvöld tilkynna um þetta í staðlaðri yfirlýsingu. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
| Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R1290 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1290, 14.7.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D106930/01 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytir (Modifies)
| 32024R1157 | based on | Regulation (EU) 2024/1157 of the European Parliament and of the Council of 11 April 2024 on shipments of waste, amending Regulations (EU) No 1257/2013 and (EU) 2020/1056 and repealing Regulation (EC) No 1013/2006 | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | waste management, software, application of EU law, information system, data processing, exchange of information, waste, technical specification, systems interconnection |
|---|---|
| Subject matter | Waste |
