Reglugerð (ESB) um lista þeirra ríkja sem teljast hafa samþykkt kerfi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar til kolefnisjöfnunar og -samdráttar fyrir losun árið 2025. - 32025R1500
Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1500 of 23 July 2025 on the list of States which are considered to be applying CORSIA for the purposes of Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council for emissions in 2025
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1500 frá 23. júlí 2025 um skrána yfir ríki sem litið er svo á að beiti kerfinu til kolefnisjöfnunar og -samdráttar í alþjóðaflugi að því er varðar tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB vegna losunar 2025
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 053/2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Uppfærður listi þeirra ríkja utan EES, Sviss og Bretlands sem teljast hafa innleitt kerfi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar til kolefnisjöfnunar og -samdráttar fyrir losun frá flugi árið 2025.
Nánari efnisumfjöllun
Í aðfararorðum reglugerðarinnar kemur fram að Framkvæmdastjórn ESB skuli samþykkja lista (hér eftir CORSIA-listi), yfir ríki önnur en EES ríki, Sviss og Bretland, sem talin eru hafa innleitt kerfi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar til kolefnisjöfnunar og -samdráttar (Carbon Offsetting and Reduction Scheme for International Aviation, hér eftir CORSIA) í tilgangi tilskipunar 2003/87/EB (ETS-tilskipunin), með grunnlínu sem jafngildir 85% af losun gróðurhúsalofttegunda sem áttu sér stað árið 2019 á hverju ári frá 2024. Þar sem flugferðir milli EES ríkja, Sviss og Bretlands falla undir ETS-kerfin þrjú (EU ETS, Sviss ETS og UK ETS) eru þau ríki ekki tiltekin á CORSIA-listanum. CORSIA var innleitt í ETS-tilskipunina með þeim breytingum sem á henni voru gerðar með tilskipun (ESB) 2023/958.Ríki fer á CORSIA-listann hafi það tilkynnt Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) um ætlun sína að taka þátt í CORSIA kerfinu fyrir losun frá flugi árið 2025. ICAO birtir árlega lista yfir ríki sem hafa sent þeim slíka tilkynningu og til að endurspegla þær breytingar sem orðið hafa á þeim lista skal Framkvæmdastjórn ESB samþykkja CORSIA-listann.Tvö þeirra ríkja sem eru talin vera hluti af CORSIA kerfinu eru San Marino og Monaco en þau eru ekki á CORSIA-listanum þar sem engir flugvellir eru í þeim löndum og þar með falla engin flug til eða frá þeim ríkjum undir CORSIA kerfið.Reglugerðin tók gildi 20 dögum eftir birtingu hennar, í ágúst 2025.CORSIA-listinn er í viðauka og á honum eru 96 ríki. Á þeim lista sem gilti árið 2024 voru 93 ríki og hefur þeim því fjölgað milli ára.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gera þarf breytingar á reglugerð 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir til að innleiða reglugerðina á Íslandi. Lagastoð er að finna í 23. gr. laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R1500 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1500, 24.7.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur |
