32025R1893

Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1893 of 17 September 2025 establishing, pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, minimum requirements for training attestations of natural persons and the conditions for the mutual recognition of such training attestations as regards certain mobile equipment containing fluorinated greenhouse gases or their alternatives and repealing Commission Regulation (EC) No 307/2008


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin setur fram kröfur um þjálfun og staðfestingu vegna þjálfunar fyrir einstaklinga sem þjónusta loftkælikerfi og varmadælur sem innihelda flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða staðgengla þeirra í tilteknum farartækjum. Jafnframt eru sett skilyrði fyrir gagnkvæmri viðurkenningu slíkra staðfestinga milli aðildarríkja og eldri reglugerð, reglugerð (EB) nr. 307/2008, er felld úr gildi. 

Nánari efnisumfjöllun

Í grunnreglugerðinni, reglugerð (ESB) 2024/573 um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir, er í 2. mgr. 1. tl. 10. gr. kveðið á um að einstaklingar sem sinna framkvæma viðgerðir, viðhald, þjónustu og endurheimt lofttegunda úr loftkælibúnaði og varmadælum í ýmsum farartækjum skuli hafa staðfestingu vegna þjálfunar. Þessi reglugerð setur fram ítarlegar kröfur um hvað þarf til að öðlast slíkt vottun. Reglugerðin tekur til einstaklinga sem sinna viðgerðum, viðhaldi, þjónustu, lekaleit og endurheimt flúoraðra gróðurhúsalofttegunda eða staðgönguefna þeirra, þ.m.t. koltvísýring (CO2), í tilteknum farartækjum. Reglugerðin kveður á um fjóra flokka staðfestinga vegna þjálfunar sem afmarka hvaða störf handhafar þeirra mega sinna á færanlegum búnaði sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða staðgönguefni þeirra: M1: Heimilar alla þá starfsemi sem fellur undir gildissvið reglugerðarinnar vegna búnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir og vetniskolefni. M2: Heimilar sömu starfsemi og M1, en aðeins þegar notuð er sjálfvirk endurheimtar- og áfyllingarstöð fyrir loftkælingu. M3: Heimilar þjónustu, viðhald og viðgerðir á loftkælikerfum í fólksbílum og léttum sendibílum, sem og loftkælikerfum og varmadælum í þungum ökutækjum, sendibílum, ökutækjum sem ekki eru notuð á vegum og vélum sem notaðar eru í landbúnaði, námuvinnslu og byggingariðnaði, sem og í lestum, neðanjarðarlestum og sporvögnum sem innihalda koltvísýring (CO2). M4: Heimilar endurheimt flúoraðra gróðurhúsalofttegunda úr kælirásum kælieininga í léttum ökutækjum, gámum, þ.m.t. kæligámum og lestum, sem og úr kælirásum loftkælikerfa og varmadæla í þungaflutningabílum, sendibílum, ökutækjum sem ekki eru notuð á vegum og vélum sem notaðar eru í landbúnaði, námuvinnslu og byggingariðnaði, lestum, neðanjarðarlestum og sporvögnum. Flokkurinn heimilar jafnframt endurheimt flúoraðra gróðurhúsalofttegunda sem taldar eru upp í I. viðauka og í I. hluta II. viðauka við reglugerð (ESB) 2024/573 úr loftkælikerfum ökutækja sem falla utan gildissviðs tilskipunar 2006/40/EB um um losun frá loftjöfnunarkerfum í vélknúnum ökutækjum. Í I. viðauka reglugerðarinnar eru tilgreindar lágmarkskröfur um bóklega og verklega þjálfun fyrir hvern flokk staðfestinga vegna þjálfunar. Jafnframt eru settar fram kröfur til tilnefnds aðila sem annast þjáalfun, útgáfu á staðfestingu vegna þjálfunar, auk þess sem gerðar eru kröfur um aðstöðu og búnað sem notaður er við verklega þjálfun og öryggi. Reglugerðin kveður jafnframt á um að aðildarríki skuli viðurkenna staðfestingar vegna þjálfunar sem gefin eru út í öðrum aðildarríkjum, enda uppfylli þau kröfur reglugerðarinnar. Með reglugerðinni er framkvæmdarreglugerð (EB) nr. 307/2008 felld úr gildi frá gildistöku nýju reglugerðarinnar. Reglugerðin var birt 17. september 2025, öðlaðist gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda frá 12. október 2025.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð (ESB) 2024/573 hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn og ekki verið innleidd hér á landi. Þessi reglugerð leyfir undanþágur frá ákvæðum í reglugerð (ESB) 2024/573 og því ekki hægt að innleiða hér á landi fyrr en grunnreglugerðin hefur verið innleidd.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R1893
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1893, 19.9.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32024R0573 based on Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council of 7 February 2024 on fluorinated greenhouse gases, amending Directive (EU) 2019/1937 and repealing Regulation (EU) No 517/2014 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32008R0307 repeals Commission Regulation (EC) No 307/2008 of 2 April 2008 establishing, pursuant to Regulation (EC) No 842/2006 of the European Parliament and of the Council, minimum requirements for training programmes and the conditions for mutual recognition of training attestations for personnel as regards air-conditioning systems in certain motor vehicles containing certain fluorinated greenhouse gases Tekin upp í EES-samninginn og í gildi