Reglugerð um endurheimt náttúrunnar – Aðferð til að vakta fjölbreytni frjóbera og þeirra stofna (framseld reglugerð). - 32025R2188

Commission Delegated Regulation (EU) 2025/2188 of 19 September 2025 supplementing Regulation (EU) 2024/1991 of the European Parliament and of the Council by establishing a science-based method for monitoring pollinator diversity and pollinator populations


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2188 frá 19. september 2025 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1991 til að koma á vísindalegri aðferð við vöktun á fjölbreytni frjóbera og þeirra stofnum.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð (ESB) 2025/2188 krefst þess af aðildarríkjunum að þau bæti fjölbreytni frjóbera og snúi við hnignun frjóberastofna eigi síðar en árið 2030 og að eftir það sjái til þess að það náist vaxandi þróun frjóberastofna. Þróunin skal mæld að minnsta kosti á sex ára fresti frá árinu 2030, þar til fullnægjandi viðmiðum er náð.Framkvæmdastjórnin skal koma á vísindalegri aðferð til vöktunar á fjölbreytni frjóbera og frjóberastofnum sem veitir staðlaða nálgun við söfnun árlegra gagna um umfang og fjölbreytni frjóberategunda í vistkerfum og við mat á þróun frjóberastofna og árangri endurheimtunaraðgerða. Samkvæmt reglugerð (ESB) 2024/1991 um endurheimt náttúrunnar skulu aðildarríkin árlega vakta umfang og fjölbreytni frjóberategunda með því að notfæra sér vöktunaraðferðina og skulu þau tilkynna niðurstöður til framkvæmdastjórnarinnar.Aðildarríkin skulu skv. 2. gr. reglugerðarinnar safna gögnum um umfang og fjölbreytni býflugna, sveifflugna, fiðrilda og mölflugna. Í 3. - 8. gr. reglugerðarinnar er að finna nákvæm fyrirmæli um hvar og hvernig vöktunin skuli fara fram og hvað skuli skrá við vöktunina. Í 9. og 10. gr. er síðan fjallað um hvernig meta skuli gögnin sem aðildarríkin hafa safnað og hvernig meta eigi skilvirkni endurheimtunaraðgerða í samræmi við 3. mgr. 10. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1991. Reglugerðin hefur ekki verið innleidd í íslenskan rétt en ákvæði sem stuðla að og stefna að vernd líffræðilegrar fjölbreytni eru  að finna í náttúruverndarlögum nr. 60/2013. Ekki hefur verið lögfest aðferð til vöktunar á fjölbreytni frjóbera. Verði reglugerðin tekin upp í íslenskan rétt yrði að m.a. að ákveða lágmarksfjölda vöktunarstaða á Íslandi í samræmi við viðauka 1 við reglugerðina sem hér um ræðir.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Framselda reglugerðin kveður á um ýmislegt sem er ekki að finna í íslenskum rétti. Setja þarf lög til að lögfesta vaktanir og áætlanir. Þá hefur reglugerð nr. 2024/1991 sem reglugerðin byggir á ekki verið innleidd í íslenskan rétt.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Náttúruverndarstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R2188
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2188, 26.11.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2025)6310
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB