Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/2518 um viðbótarmálsmeðferðarreglur við framfylgd reglugerðar 2016/679 - 32025R2518

Regulation (EU) 2025/2518 of the European Parliament and of the Council of 26 November 2025 laying down additional procedural rules on the enforcement of Regulation (EU) 2016/679


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.03 Gagnavernd

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin kveður á um málsmeðferðarreglur um meðferð eftirlitsyfirvalda á sviði persónuverndar á kvörtunum, rannsókn mála sem hefjast á grundvelli kvartana og mála sem eftirlitsyfirvöld hefja að eigin frumkvæði skv. almennu persónuverndarreglugerðinni, þegar slík mál varða vinnslu persónuupplýsinga yfir landamæri. Jafnframt er tekið fram að reglugerðin gildi um ákvörðun um hvort mál varði vinnslu yfir landamæri. Reglugerðin samræmir tiltekna þætti í meðferð kvartana og styrkir samstarf innlendra eftirlitsyfirvalda á sviði persónuverndar. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja samræmdari málsmeðferðarreglur eftirlitsstjórnvalda í málum sem  ná yfir landamæri með því að setja sameiginlegar reglur um atriði eins og gögn sem á að senda á milli eftirlitsstjórnvalda, fresti, andmælarétt og aðgang að gögnum. Helstu ákvæði reglugerðarinnar snúa að gildissviði, meðferð kvartana, samstarfi stofnana, upplýsingaskiptum, réttaröryggi við málsmeðferð, frestum og úrlausn ágreinings. 

Nánari efnisumfjöllun

Helstu ákvæði reglugerðarinnar fjalla um eftirfarandi:Gildissvið: Kvartanir og rannsóknir sem eftirlitsyfirvöld hefja að eigin frumkvæði vegna vinnslu persónuupplýsinga yfir landamæri, þ.m.t. ákvörðun um hvort mál varði slíka vinnslu.Meðferð kvartana: Sameiginlegar kröfur um þær upplýsingar sem kvörtun þarf að innihalda til að verða tekin til meðferðar, fresti til að framsenda kvartanir og ákvarða hvert sé forystueftirlitsyfirvald, auk möguleika á að ljúka tilteknum kvörtunum vegna réttinda skráðra einstaklinga á fyrri stigum málsmeðferðar.Samstarf: Skipuleg upplýsingaskipti, samkomulag á fyrri stigum máls um helstu álitaefni og einfaldaða samstarfsmeðferð í einföldum málum.Réttaröryggi við málsmeðferð: Andmælarétt, tækifæri kvartenda til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, aðgang að viðeigandi gögnum máls og vernd trúnaðarupplýsinga.Fresti: Að jafnaði skal forystueftirlitsyfirvaldið leggja fram drög að ákvörðun innan 15 mánaða frá því að valdheimild þess er staðfest eða ákvörðuð. Í undantekningartilvikum má framlengja frestinn um allt að 12 mánuði. Við einfaldaða samstarfsmeðferð skulu drög að ákvörðun að jafnaði liggja fyrir innan 12 mánaða. Þessir frestir varða framlagningu draga að ákvörðun en ekki endanleg málalok.Úrlausn ágreinings og ábyrgð: Ítarlegar reglur um úrlausn ágreinings hjá Evrópska persónuverndarráðinu og bráðaaðgerðir, ásamt ákvæðum um tölfræði vegna framfylgdar og tryggingu fyrir raunhæfum úrræðum til að leita réttar síns fyrir dómstólum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf reglugerðina í lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsingar þar sem gerðinni er veitt lagagildi með tilvísun.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Persónuvernd

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Dómsmálaráðuneytið
Ábyrg stofnun Persónuvernd

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R2518
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2518, 12.12.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2023) 348
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar