Framseld tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar 2026/5051 sem breytir/uppfærir viðauka V við tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á menntun og hæfi. - 32026D1814

Commission Delegated Decision (EU) 2026/1814 of 24 July 2026 amending and correcting Directive 2005/36/EC of the European Parliament and of the Council as regards evidence of formal qualifications and the titles of training courses


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Ákvörðun
Nánari tegund gerðar Framseld ákvörðun
Svið (EES-samningur, viðauki) 07 Viðurkenning á faglegri menntun og hæfi

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipun/ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar með framseldri tilskipun 2026/5051 breytir viðauka V við tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á menntun og hæfi.Viðaukinn hefur að geyma lista yfir formlegar prófgráður lækna, hjúkrunarfræðinga, tannlækna, dýralækna, ljósmæðra, lyfjafræðinga og arkitekta.Framkvæmdastjórn ESB er heimilt skv. 4. mgr. 21. gr. a í tilskipun 2005/36/EB að samþykkja framseldar gerðir til breytingar á viðeigandi liðum í viðauka V að því er varðar uppfærslu á heitum sem ESB-ríkin hafa samþykkt fyrir gögn um formlega menntun og hæfi ásamt heiti stofnunar sem gefur gögnin út.Með þessari framseldu ákvörðun sem hér um ræðir er því tekin saman eldri, ný og breytt heiti sem tilkynnt og framkvæmdastjórnin hafði metið og samþykkt.Eftirfarandi breytingar eru gerðar með framseldri ákvörðuninni/tilskipun 2026/5051:Að því er varðar starf sérfræðilæknis á Ítalíu samkvæmt lið 5.1.3 í V. viðauka, „lífefnafræði“, var námsleiðin Biochimica (9) felld brott. Að því er varðar starf tannlæknis í Litháen samkvæmt lið 5.3.2 í V. viðauka var gagninu um formlega menntun og hæfi „Magistro diplomas (sveikatos mokslų magistro laipsnis ir gydytojo odontologo profesinė kvalifikacija)“ bætt við í 3. lið og „Magistro diplomas (sveikatos mokslų magistro laipsnis ir gydytojo odontologo kvalifikacija)“ bætt við í 4. lið.Ísland hefur ekki birt breyttan viðauka V í hvert sinn sem gerð er breyting á honum, heldur hafa breytingar verið teknar inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar hverju sinni. Samkvæmt 2. gr. laga um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, nr. 26/2010 kemur fram að við afgreiðslu umsókna um viðurkenningu skuli miðað við að vitnisburðir um formlega menntun og hæfi uppfylli skilyrði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, sem og viðauka við hana eins og þeir eru á hverjum tíma. Íslenskur og norskur texti framseldrar ákvarðana hefur talist fullgiltur þegar hann er birtur í EES-deild Stjórnartíðinda Evrópusambandsins og EES-viðbæti við þau. Hingað til hafa átta framseldar ákvarðanir verið samþykktar á grundvelli 4. mgr. 21. gr. a. um þetta. Þessi tilskipun er ein þeirra. Hinar eru: Framseld ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/790 frá 13. janúar 2016 (Stjtíð. ESB L 134, 24.5.2016, bls. 135), framseld ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2113 frá 11. september 2017 (Stjtíð. ESB L 317, 1.12.2017, bls. 119), framseld ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/608 frá 16. janúar 2019 (Stjtíð. ESB L 104, 15.4.2019, bls. 1), framseld ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/548 frá 23. janúar 2020 (Stjtíð. ESB L 131/1, 24.4.2020, bls. 1), framseld ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2183 frá 25. ágúst 2021 (Stjtíð. ESB L 444, 10.12.2021, bls. 16), framseld ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2383 frá 23. maí 2023 (Stjtíð. ESB L 2023/2383, 9.10.2023), framseld ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1395 frá 5. mars 2024 (Stjtíð. ESB L 2024/1395, 31.5.2024), framseld ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2187 frá 30. júlí 2025 (Stjtíð. ESB L 2025/2187, 29.10.2025).Engin stjórnskipuleg skilyrði eru fyrir hendi, þ.e. ekki er þörf á aðlögun með því að setja lög eða stjórnvaldsfyrirmæli vegna innleiðingarinnar. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026D1814
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1814, 9.11.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2026)5051
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32005L0036 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi