Nánari efnisumfjöllun
Hámarksfjöldi losunarheimilda sem hægt er að úthluta endurgjaldslaust árlega er ákvarðað í samræmi við uppboðshlutann sem settur er fram í 2. undirmálsgrein 1. mgr. 10. gr. tilskipunar 2003/87/EB (ETS-tilskipun) og með notkun 5. mgr., 5. mgr. a, 8. mgr. og 8. mgr. a 10. gr. a sömu tilskipunar. Þessi hámarksfjöldi er notaður til að reikna út hversu margar losunarheimildir sé hægt að úthluta endurgjaldslaust til starfsstöðva í staðbundnum iðnaði sbr. 16. og 18. gr. reglugerðar (ESB) 2019/331 um úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda. Til að tryggja að ekki sé farið yfir hámarksfjölda árlegra endurgjaldslausra losunarheimilda er gerð aðlögun í samræmi við 5. mgr. 10. gr. a ETS-tilskipunarinnar, ef nauðsyn krefur, sem fækkar úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda um jafnt hlutfall til allra. Aðlögunin tekur líka tillit til þess að skv. 5. mgr. a sömu greinar er hægt að hækka úthlutun um allt að 3% af heildarútgefnum losunarheimildum til viðbótar. Starfsstöðvar sem uppfylla það að vera hluti af þeim 10% sem losa minnst á hverja framleiðslueiningu verða ekki fyrir skerðingu vegna aðlögunar ef til hennar kemur. Framkvæmdastjórn ESB skal setja sameiginlegan þverfaglegan leiðréttingarstuðul (e. uniform cross-sectoral correction factor) til aðlögunar á endurgjaldslausri úthlutun losunarheimilda skv. 6. mgr. 14. gr. reglugerðar (ESB) 2019/331 eftir að bráðabirgðaúthlutun hefur verið tilkynnt. Heildarfjöldi losunarheimilda sem hægt er að úthluta endurgjaldslaust, að teknu tilliti til allra reglna sem gilda um heildarfjölda útgefinna losunarheimilda og hversu stórum hluta af þeim sé hægt að úthluta endurgjaldslaust, fyrir tímabilið 2026-2030 er:2026: 432.346.8502027: 434.602.3582028: 395.980.0882029: 357.357.8172030: 318.735.546Að auki voru enn til staðar losunarheimildir frá fyrri hluta 4. viðskiptatímabili ETS, 2021-2025, (125.586.948) sem mátti úthluta endurgjaldslaust á því tímabili auk 3% árlegrar aukaúthlutunar sem hægt var að grípa til skv. 5. mgr. a 10. gr. a ETS-tilskipunarinnar á því tímabili. Hægt er að notast við þessar losunarheimildir til að koma í veg fyrir beitingu þverfaglegs leiðréttingarstuðuls. Ef ekki öllum losunarheimildum, sem hægt var að úthluta árið 2026 að teknu tilliti til hámarksfjölda losunarheimilda til endurgjaldslausrar úthlutunar, var ekki úthlutað, er hægt að úthluta þeim árið 2027 o.s.frv. Að auki er hægt að nota allt að 3% af útgefnum losunarheimildum til viðbótar til endurgjaldslausrar úthlutunar ef þörf krefur. Með allt þetta í huga hefur almennur þverfaglegur leiðréttingarstuðull fyrir seinni hluta 4. viðskiptatímabils ETS, 2026-2030, verið ákvarður og verður 100%. Hann veldur því ekki aðlögun á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda miðað við bráðabirgðaútreikninga á endurgjaldslausum losunarheimildum til starfsstöðva í staðbundnum iðnaði.