Reglugerð um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd (Rússland) - 32026R0046
Commission Delegated Regulation (EU) 2026/46 of 3 December 2025 amending Delegated Regulation (EU) 2016/1675 to add Russia to the list of high-risk third countries with strategic deficiencies
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/46 frá 3. desember 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um að bæta Rússlandi á skrá yfir áhættusöm þriðju lönd með annmarka í stefnu
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 034/2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð sem breytir lista yfir áhættusöm þriðju lönd samkvæmt framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675, sbr. reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020, og bætir Rússlandi á lista yfir áhættusöm þriðju lönd samkvæmt framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675, sbr. reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020.
Nánari efnisumfjöllun
Framseld reglugerð (ESB) 2016/1675 er innleidd hér á landi með reglugerð nr. 105/2020 um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Með reglugerðinni fylgir listi yfir þau ríki sem talin eru glíma við kerfisbundna ágalla í varnarkerfi gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og geta þannig skapað verulega áhættu fyrir fjármálakerfi Evrópusambandsins og EES-ríkjanna. Breytingar á listanum eru innleiddar hér á landi með breytingarreglugerðum við reglugerð nr. 105/2020.Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem hér um ræðir byggir á 9. gr. tilskipunar (ESB) 2015/849 og á endurskoðunarákvæði sem var tekið upp með framseldri reglugerð (ESB) 2025/1393. Sú reglugerð, sem innleidd var í íslenskan rétt með reglugerð nr. 1221/2025 um (8.) breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd nr. 105/2020, kveður á um að framkvæmdastjórnin ljúki fyrir árslok 2025 sjálfstæðri rýni á þriðju löndum sem ekki hafa verið skilgreind af alþjóðlega fjármálaaðgerðahópnum FATF sem ríki sem sæta aðgerðum eða auknu eftirliti, en hafa verið svipt eða hafa ógilda aðild að FATF um stundarsakir, til að meta hvort breyta þurfi viðaukanum við framseldu reglugerðina (ESB) 2016/1675 í samræmi við það.Í kjölfar þeirrar endurskoðunar er niðurstaða framkvæmdastjórnarinnar sú að Rússland búi við verulega kerfisbundna ágalla í regluverki og framkvæmd aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Sérstaklega er bent á skort á sjálfstæði fjármálaupplýsingasviðs landsins og takmarkaða alþjóðlega samvinnu þess, skort á i gagnsæi og aðgengi að upplýsingum um raunverulega eigendur lögaðila og vanskil á innleiðingu tilmæla FATF um reglusetningu og eftirlit með þjónustu sem tengist sýndareignum. Telur framkvæmdastjórnin að ágallarnir feli í sér verulega áhættu fyrir fjármálakerfi Evrópusambandsins og EES og skuli skilgreint sem áhættusamt þriðja land.Ólíkt mörgum fyrri breytingum á listanum leiðir þessi breyting því ekki af nýrri ákvörðun FATF heldur sjálfstæðri rýni framkvæmdastjórnarinnar samkvæmt framseldri reglugerð (ESB) 2025/1393, eins og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 1221/2025. Með reglugerðinni var viðauka við framseldu reglugerðina (ESB) 2016/1675 breytt þannig að tekin er upp ný flokkun fyrir þriðju lönd sem hafa verið svipt aðild að FATF án þess að vera á lista samtakanna, og Rússland fært í þann flokk. Þetta hefur í för með sér að Rússland bætist á lista reglugerðar nr. 105/2020 yfir áhættusöm þriðju lönd og að íslenskir tilkynningarskyldir aðilar skulu beita hertu áreiðanleikakönnunum í viðskiptum sem tengjast landinu.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf reglugerð nr. 105/2020. Lagastoð er í 56. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Dómsmálaráðuneytið |
|---|---|
| Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R0046 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/46, 9.1.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2025)8435 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 34, 21.5.2026, p. 51 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/946, 21.5.2026 |
Breytir (Modifies)
| 32016R1675 | amends | Commission Delegated Regulation (EU) 2016/1675 of 14 July 2016 supplementing Directive (EU) 2015/849 of the European Parliament and of the Council by identifying high-risk third countries with strategic deficiencies - suppl. AMLD IV | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32015L0849 | based on | Directive (EU) 2015/849 of the European Parliament and of the Council of 20 May 2015 on the prevention of the use of the financial system for the purposes of money laundering or terrorist financing, amending Regulation (EU) No 648/2012 of the European Parliament and of the Council, and repealing Directive 2005/60/EC of the European Parliament and of the Council and Commission Directive 2006/70/EC - AMLD IV | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
