32026R0078
Commission Regulation (EU) 2026/78 of 12 January 2026 amending Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council as regards the use in cosmetic products of certain substances classified as carcinogenic, mutagenic or toxic for reproduction
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/78 frá 12. janúar 2026 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á tilteknum efnum, sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða sem efni sem hafa eiturhrif á æxlun, í snyrtivörur
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 082/2026 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur varðandi CMR-efni (krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun). Breytingar fela í sér að uppfæra skrá í II. viðauka yfir innihaldsefni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum og skrá í III. viðauka yfir innihaldsefni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörum ásamt uppfærslum á viðauka IV. yfir litarefni og viðauka V. um rotvarnarefni sem er leyfilegt að nota í snyrtivörum.
Nánari efnisumfjöllun
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur skulu efni sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR) í undirflokki 1A, 1B eða flokki 2 vera bönnuð í snyrtivörum nema að þau falli undir undantekningar sem eru tilgreindar í seinni setningu 1.mgr. 15. gr. eða í annarri undirmálsgrein 2. mgr. 15. gr. í áðurnefndri reglugerð.Í samræmi við framselda reglugerð (ESB) 2020/1182, sem kom til framkvæmda þann 1. mars 2022, þá er efnum sem flokkuð eru sem CMR efni samkvæmt hættuflokkun í samræmi við reglugerð (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna einnig bætt við eða fjarlægð af listum um efni sem eru bönnuð eða háð takmörkunum í viðaukum II. og III. í reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Þær breytingar sem gerðar eru á reglugerð (EB) nr. 1223/2009 eru að mestu til samræmingar við breytingar sem orðið hafa á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 og eru sem hér segir: Efnum sem flokkuð voru sem CMR efni er bætt við lista við efni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum í II. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, alls 15 nýjar færslur sem innihalda efni, tveim færslum af þrem er eytt til einföldunar þar sem eru mjög lík efni með sömu bórat er að ræða og munu þau því vera sameinuð í hóp undir þriðju færslunni og einni færslu er varðar nanó silfur er skipt út fyrir færslu þar sem nanó og stærri silfuragnir eru ekki leyfilegar.Í lista yfir efni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörum í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 er færslu um silfur í duftformi (100 nm 1 mm) bætt við þar sem hæsti leyfilegur styrkur sifurs er takmarkaður við 0,05% í vöru tilbúnni til notkunar. Einnig er bætt við færslu um Hexýl Salisýlat (Hexyl Salicylate) sem verður óleyfilegt sem innihaldsefni í vöru fyrir börn undir 3 ára aldri með undantekningum (tannkrem (0,001% hámarksstyrkur), sturtusápur, handsápa, sjampó, hárnæring, krem fyrir andlit, líkama og hendur o.fl. sem ætlað er fyrir börn undir 3 ára).Í lista yfir litarefni sem eru leyfileg til notkunar í snyrtivörum í IV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 er færslu sem varðar silfur í duftformi (100 nm 1 mm) skipt út.Í lista yfir rotvarnarefni sem eru leyfileg til notkunar í snyrtivörum V. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 Natríum-O-fenýlfenat (Sodium -O phenylphenate ) er bætt við hóp efna í færslu 7.Færslum er bætt við, breytt eða felldar út í II., III. IV, og V.viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1223/2009 í eins og fram kemur í viðauka við þessa reglugerð.Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda 1.maí.2026
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R0078 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/78, 13.1.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D109559/01 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 41, 25.6.2026, p. 38 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/1297, 25.6.2026 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
Breytir (Modifies)
| 32009R1223 | amends, based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32009R1223 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 frá 30. nóvember 2009 um snyrtivörur Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
