32026R0286
Commission Implementing Regulation (EU) 2026/286 of 10 February 2026 authorising an exemption pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, with regard to the use of fluorinated greenhouse gases in certain chillers used for semiconductor manufacturing
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Þessi reglugerð veitir undanþágu fyrir tvær vörutegundir frá banni við markaðssetningu kyrrstæðs kælibúnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með hnatthlýnunarmátt upp á 150 eða meira, og 750 eða meira, með kæligetu allt að 12 kW sem sett er fram með reglugerð (ESB) 2024/573. Undanþágan gildir frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2029.
Nánari efnisumfjöllun
Í b-lið 7. liðar í IV. viðauka við reglugerð (ESB) 2024/573 er lagt bann við markaðssetningu kyrrstæðs kælibúnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með hnatthlýnunarmátt upp á 150 eða meira, og hefur kæligetu allt að12 kW, frá og með 1. janúar 2027, nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þá er í c-lið sama ákvæðis lagt bann við markaðssetningu kyrrstæðs kælibúnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með hnatthlýnunarmátt upp á 750 eða meira og hefur kæligetu allt að 12 kW, frá og með 1. janúar 2027, nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Í samræmi við 5. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) 2024/573 lagði þýska lögbæra yfirvaldið fram beiðni til framkvæmdastjórnarinnar um leyfi fyrir undanþágu sem heimilar markaðssetningu innan Sambandsins á tveimur tegundum kælibúnaðar. Kyrrstæður kælibúnaður sem inniheldur eða virkar á grundvelli flúoraðra gróðurhúsalofttegunda með hnatthlýnunarmætti upp á 150 eða meira, með kæligetu allt að 12 kW sem notaðar eru til að styðja við framleiðslu hálfleiðara. Kyrrstæður kælibúnaður sem inniheldur eða virkar á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum með hnatthlýnunarmætti upp á 750 eða meira, með kæligetu yfir 12 kW við hitastig undir –50°C, sem notaðar eru til að styðja við framleiðslu hálfleiðara. Framkvæmdarstjórnin telur að beiðnin uppfylli skilyrði sem sett eru fram í a- og b-lið 5. mgr. 11. gr. og heimilar því eftirfarandi undantekningar frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2029 (3 ár) ef þau eru merkt samkvæmt 2. mgr. 12. gr. sömu reglugerðar. Reglugerðin var birt þann 10. febrúar 2026 en gildir frá 1. janúar 2027.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Reglugerð (ESB) 2024/573 hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn og ekki verið innleidd hér á landi. Þessi reglugerð leyfir undanþágur frá ákvæðum í reglugerð (ESB) 2024/573 og því ekki hægt að innleiða hér á landi fyrr en grunnreglugerðin hefur verið innleidd. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R0286 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/286, 11.2.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32024R0573 | based on, derogates | Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council of 7 February 2024 on fluorinated greenhouse gases, amending Directive (EU) 2019/1937 and repealing Regulation (EU) No 517/2014 | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
