32026R0859
Commission Regulation (EU) 2026/859 of 20 April 2026 amending Annex XVII to Regulation (EC) No 1907/2006 of the European Parliament and of the Council concerning the Registration, Evaluation, Authorisation and Restriction of Chemicals (REACH) as regards 2,4-dinitrotoluene in articles
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/859 frá 20. apríl 2026 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi 2,4-dínítrótólúeni í hlutum) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH))
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 201/2026 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Efninu 2,4-dínítrótólúen (CAS nr. 121-14-2) er bætt við lista yfir efni sem háð eru takmörkunum í XVII. viðauka við REACH en takmörkunin snýr að notkun þess og markaðssetningu efnisins í vörum.
Nánari efnisumfjöllun
Efnið 2,4-dínítrótólúen (CAS nr. 121-14-2) er skráð á lista yfir leyfisskyld efni í XIV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 (REACH). Sólarlagsdagsetning fyrir notkun efnisins innan ESB rann út þann 21. ágúst 2015 án þess að umsóknir hefðu borist innan sambandsins um áframhaldandi notkun. Þar sem ákvæði um leyfisskyld efni taka ekki til innfluttra hluta var talið nauðsynlegt að bæta efninu við lista yfir takmarkanir sem finna má í XVII. viðauka REACH.Takmörkunin felur í sér bann við markaðssetningu og notkun efnisins í hlutum sem ætlaðir eru fagfólki eða almenningi, þegar styrkur þess er jafnt eða hærri en 0,1% miðað við þyngd hlutarins. Ákvæðið nær þó ekki til sprengiefna (að undanskildum flugeldum og skotfærum), hluta til hernaðarnota, skotfæra til notkunar af lögreglu eða öðrum öryggissveitum, leikfanga sem falla undir leikfangareglugerð ESB, tækja sem falla undir reglugerð (ESB) 2017/745, né hluta sem ætlaðir eru til snertingar við matvæli og heyra undir matvælalöggjöf ESB.Lengri aðlögunartími er veittur fyrir örgasara (e. micro gas generator) og varahluti fyrir bifreiðar sem falla undir reglugerð (ESB) 2018/858, eða allt að 36 mánuðir frá gildistöku reglugerðarinnar, að uppfylltum tilteknum skilyrðum.Reglugerðin tekur gildi tuttugu dögum eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum ESB.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH). Lagastoð er í 1. tl. 1.mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Þessi reglugerð bætir við nýjum takmörkunum varðandi markaðssetningu. Í ljósi þess víkkar eftirlitssviðið með móðurgerðinni sem kallar á aukið fjármagn til eftirlits og efnagreininga. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R0859 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/859, 21.4.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D107791/03 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 73, 19.11.2026, p. 23 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/2429, 19.11.2026 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1 |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32006R1907 | amends, based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32006R1907 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 frá 18. desember 2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), um stofnun Efnastofnunar Evrópu, um breytingu á tilskipun 1999/45/EB og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 793/93 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1488/94, sem og tilskipun ráðsins 76/769/EBE og tilskipunum framkvæmdastjórnarinnar 91/155/EBE, 93/67/EBE, 93/105/EB og 2000/21/EB Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
