32026R0909
Commission Regulation (EU) 2026/909 of 27 April 2026 amending Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council as regards the use of Benzyl Salicylate, Triphenyl Phosphate, Ammonium Silver Zinc Aluminium Silicate, Aluminium, water-soluble zinc salts, Acetylated Vetiver Oil, Citral, HC Blue No 18, HC Red No 18, HC Yellow No 16, Hydroxypropyl-p-phenylenediamine and its dihydrochloride salt, and DHHB in cosmetic products
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/909 frá 27. apríl 2026 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á bensýlsalisýlati, trífenýlfosfati, ammóníumsilfursinkálsílíkati, áli, vatnsleysanlegum sinksöltum, asetýlaðri olíugrasolíu, sítrali, HC Blue nr. 18, HC Red nr. 18, HC Yellow nr. 16, hýdroxýprópýl-p-fenýlendíamíni og díhýdróklóríðsöltum þess og DHHB í snyrtivörur
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 205/2026 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Breytingar fela í sér að uppfæra skrár í uppfæra skrár í II., III., V og VI. viðaukum við reglugerðina.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin breytir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Breytingarnar fela í sér að : Silfursinkseólít (Silver zink zeolite, CAS 130328-20-0) er bætt við skrá í II. viðauka um efni sem eru ekki leyfileg til notkunar í snyrtivöru. Einnig er bætt við að undanskilið sé silfursinkseólít með þeim skilyrðum sem tekin verða fram í viðauka V. þar sem silfursinkseólít er einnig bætt við í þessari reglugerð. Trífenýl fosfat (Triphenyl phosphate, CAS 115-86-6) er bætt við skrá í II. viðauka um efni sem eru ekki leyfileg til notkunar í snyrtivöru vegna þess að ekki tókst að útiloka möguleg eiturhrif á æxlun.Skrá í III. viðauka um efni sem eru leyfileg til notkunar í snyrtivörum nema háð takmörkunum er uppfærð á þann hátt að þrem færslum er skipt út og 6 færslum bætt við eins og kemur fram hér:Færslu 24 í III. viðauka þar sem skráð eru vatnsleysanleg sink sölt var skipt út og söltum bætt við ásamt CAS númerum. Einnig var bætt við hámarksstyrk salta í tannkremum, 1% (sem sink) í tannkremum fyrir notendur eldri en 1 árs, og 0,72% (sem sink) fyrir börn frá 6 mánaða aldri til 1 árs og hámarksstyrk í munnskoli fyrir notendur eldri en 6 ára.Færslu 70 í III. viðauka þar sem efnið 3,7-Dímetýl-2,6 oktadíen (3,7-Dimethyl-2,6 octadienal, CAS 5392-40-5) og skyldum efnum sem eru þekkt undir nafninu Citral, er skipt út og kemur fram að þegar styrkur þess er hærri en 0,01% í vörum sem skolast af og 0,001% í öðrum vörum skal efnið vera nefnt á lista yfir innihaldsefni. Einnig er tilgreindur hámarksstyrkur efnis í mismunandi vöruflokkum.Færslu 75 í III. viðauka er skipt út og kemur fram að Bensílsalísýlat (Benzyl Salicylate, CAS- 118-58-1) skal koma fram á lista yfir innihaldsefni þegar styrkur þess er hærri en 0,01% í vörum sem skolast af og 0,001% í öðrum vörum. Einnig er tilgreindur hámarksstyrkur efnis í mismunandi vöruflokkum.Innihaldsefni sem innihalda ál er bætt við skrá í III. viðauka þar sem hámarksstyrkur áls fyrir mismunandi vöruflokka er tekinn fram. Fyrir Talk púður sem inniheldur ál er skylt að hafa varnaðarorðin: Haldið púðri frá nefi og munni barna“. Fyrir líkamskrem er tekið fram að ekki skuli nota innihaldsefni sem innihalda ál í sólarvörnum sem geta útsett lungu notanda með innöndun. Vetiveria zizanoids, extract acytylated, oils vetiver activated er bætt við skrá í III. viðauka þar sem hámarkstyrkur fyrir mismunandi vöruflokka er tilgreindur.Færslum fyrir Hárlitunarefni HC Blue No. 18, hárlitunar efnið 3-(2,5-diaminophenyl)propan-1-ol and 3-(2,5- diaminophenyl propan-1-ol dihydrochloride salt), hárlitunar efni HC Yellow No. 16 og hárlitunar efni HC Red No. 18 er bætt við skrá í III. viðauka þar sem kemur fram að skylt er að hafa varnaðarorð fyrir hárlitunarefni á merkingum varanna.Efninu Silfursinkseólít (CAS-130328-20-0) er bætt við skrá í V. viðauka um leyfileg rotvarnarefni þar sem tekið er fram að silfur innihald í silfursinkseólít megi ekki vera hærra en 2,5% og hámarksstyrkur efnis er takmarkaður við 1% í vöru sem er tilbúin til notkunar. Færslu með efninu Benzoic acid 2- (4 diethylamino) – 2- hydroxybenzoyl) – hexyl ester (CAS 302776-68-7) í VI. viðauka er skipt út þar sem kemur fram að hámarksstyrkur efnis sé 10% í vöru sem er tilbúin til notkunar og einnig að hámarksstyrkur snefilefna óhreinindanna Di-n-hexyl pthalate, sem ekki er hægt að komast hjá megi ekki fara yfir 10 ppm. Hæfilegur tími skal gefinn snyrtivöruiðnaði til að aðlagast breyttum skilyrðum. Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í 7. Tölul. 1.mgr. 11 gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R0909 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/909, 28.4.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D110957/01 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 73, 19.11.2026, p. 28 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/2460, 19.11.2026 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1 |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32009R1223 | amends, based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32009R1223 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 frá 30. nóvember 2009 um snyrtivörur Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
