32026R1120

Commission Regulation (EU) 2026/1120 of 26 May 2026 amending Annex III to Regulation (EC) No 1107/2009 of the European Parliament and of the Council by adding twelve co-formulants which are not accepted for inclusion in plant protection products


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/1120 frá 26. maí 2026 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 með því að bæta við tólf meðefnum sem eru ekki samþykkt til að nota í plöntuverndarvörur
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 260/2026
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með þessari reglugerð er III. viðauka í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 breytt með því að bæta við 12 meðefnum sem eru óviðunandi sem innihaldsefni í plöntuverndarvörum og hjálparefnum.Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. 

Nánari efnisumfjöllun

Meðefnum er lýst í 2. gr. (3c) reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 sem efnum eða efnablöndum, sem eru notaðar eða ætlaðar til notkunar í plöntuverndarvöru eða hjálparefni en eru ekki virk efni, eiturdeyfar eða samverkandi efni. Samanber 27. gr. (1) reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 eru meðefni óviðunandi í plöntuverndarvörum ef leifar þeirra hafa skaðleg áhrif á heilsu manna, dýra eða umhverfið. Slík óviðunandi meðefni eru listuð í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1107/2009.Samanber 27.gr. (3) reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 getur framkvæmdastjórnin endurskoðað meðefni hvenær sem er og tekið tillit til viðeigandi upplýsinga sem aðildarríkin veita. Einkum getur hún tekið tillit til tilkynninga sem aðildarríkin veita í samræmi við reglur um auðkenningu óviðunandi meðefna sem settar eru fram í framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 2023/574.Samanber 3. og 4. gr. framkvæmdarreglugerðar (ESB) 2023/574 hafa aðildarríkin tilkynnt um 12 ný efni sem eru talin óviðunandi til notkunar sem meðefni í plöntuverndarvörum með markaðsleyfi á grundvelli reglugerðar (EB) nr. 1107/2009, vegna þess að þau uppfylla að minnsta kosti eitt af viðmiðunum sem sett eru fram í viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/574.Því er rétt að breyta III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1107/2009 á þann hátt að bæta við meðefnunum 12 sem aðildarríkin hafa tilkynnt um sem óviðunandi til notkunar í plöntuverndarvörur eða hjálparefni.Meðefni sem eru listuð í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 geta líka verið í hjálparefnum sem sett eru á markað. Þar sem ítarlegar reglur um leyfisveitingu hjálparefna hafa ekki enn verið settar geta aðildarríkin haldið áfram að beita landsbundnum ákvæðum varðandi hjálparefni í samræmi við 81. gr. (3) reglugerðar (EB) nr. 1107/2009. Þar sem markmið nýju reglugerðarinnar er að koma í veg fyrir að hjálparefni sem innihalda bönnuð meðefni séu sett á markað eða notuð, er nauðsynlegt að tryggja að hjálparefni sem á að blanda saman við plöntuverndarvörur innihaldi ekki efni sem skilgreind eru sem óviðunandi meðefni.Aðildarríki skulu innan tveggja ára frá gildistöku reglugerðarinnar endurskoða leyfi plöntuverndarvara og hjálparefna á yfirráðasvæðum þeirra, meta hvort þau innihaldi einhver meðefni sem með þessari reglugerð verða listuð í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1107/2009 og afturkalla eða breyta leyfum fyrir plöntuverndarvörum og hjálparefnum sem innihalda þessi meðefni.Til að gera aðildarríkjum kleift á skipulegan hátt að hætta notkun plöntuverndarvara og hjálparefna, sem innihalda meðefni sem með þessari reglugerð verða listuð í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1107/2009 og lágmarka hugsanlega röskun gagnvart notendum og á aðfangakeðjum, geta aðildarríkin veitt frest, eftir því sem við á, í samræmi við fyrstu málsgrein 46. gr. reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 eða, eftir því sem við á, samkvæmt landsbundnum ákvæðum um leyfisveitingu hjálparefna. Þessir frestir skulu vera eins stuttir og mögulegt. Eftir að leyfi hefur verið breytt eða dregið til baka skal frestur fyrir sölu og dreifingu ekki vera lengri en 3 mánuðir og fyrir förgun, geymslu og notkun ekki vera lengri en 12 mánuðir.Meðefni sem með þessari reglugerð verða listuð í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1107/2009 geta verið hluti af öðrum meðefnum í formi óviljandi óhreininda og eru í slíkum tilfellum ásættanleg til notkunar í plöntuverndarvörum og hjálparefnum. Þess vegna þarf styrkur hvers og eins af óásættanlegu meðefnunum í plöntuverndarvöru eða hjálparefni að vera undir 0,1% massahlutfalls eða undir sértækum styrkleikamörkum í tengslum við CMR-eiginleika (eiginleikar sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun) þegar þau eru sett fram í VI. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1272/2008, til þess að geta talist vera óviljandi óhreinindi, nema önnur mörk séu gefin vegna tæknilegra takmarkana á viðeigandi greiningaraðferðum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa reglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur.
Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Endurskoðun á markaðsleyfum og tímabundnum skráningum fyrir allar plöntuverndarvörur á markaði hér á landi felur í sér auka vinnu fyrir sérfræðing Umhverfis- og orkustofnunar, sem leiðir af sér aukakostnað, sem mun falla á Umhverfis- og orkustofnun. Komi til þess að afgreiða þurfi ný markaðsleyfi til að anna eftirspurn, mun afgreiðsla leyfisins fela í sér auka vinnu fyrir sérfræðing Umhverfis- og orkustofnunar, en kostnaður vegna útgáfu markaðsleyfis mundi falla á umsækjanda.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Innleiðing reglugerðarinnar mun hafa þau áhrif að endurskoða þarf markaðsleyfi og tímabundnar skráningar allra plöntuverndarvara á markaði hér á landi á þann hátt að skoða þarf hvort vörurnar innihaldi óviðunandi meðefnin sem með reglugerðinni bætast á lista yfir óviðunandi meðefni í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1107/2009. Ef endurskoðunin leiðir í ljós að plöntuverndarvara á markaði hér á landi, innihaldi eitthvað af hinum 12 nýju óviðunandi meðefnum, þarf að fella markaðsleyfi eða tímabundnu skráningu viðkomandi vöru úr gildi. Það að plöntuverndarvara hverfi af markaði getur haft þau áhrif að sækja þurfi um markaðsleyfi fyrir annarri vöru til sömu notkunar til að framboð af plöntuverndarvörum á markaði hér á landi verði í samræmi við eftirspurn.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R1120
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1120, 27.5.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D105865/05
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1

Breytir (Modifies)

32009R1107 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi