Reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) 2026/1388 frá 17. júní 2026 um plöntur sem fengnar eru með tilteknum nýjum erfðatækni-aðferðum (NGT) og afurðir þeirra, - 32026R1388

Regulation (EU) 2026/1388 of the European Parliament and of the Council of 17 June 2026 on plants obtained by certain new genomic techniques and their products, and amending Regulation (EU) 2017/625


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 01 Heilbrigði dýra og plantna, 01.03 Plöntuheilbrigði

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) 2026/1388 frá 17. júní 2026 um plöntur sem fengnar eru með tilteknum nýjum erfðatækni-aðferðum (NGT) og afurðir þeirra, og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/625

Nánari efnisumfjöllun

 Reglugerð (ESB) 2026/1388, NGT-reglugerðin (New Genomic Techniques), setur nýjar reglur um plöntur sem hafa verið þróaðar með nýjum erfðatækniaðferðum. Markmiðið er að auðvelda þróun nytjaplantna sem geta verið þolnari gegn sjúkdómum, þurrkum og loftslagsbreytingum, án þess að draga úr öryggiskröfum. Reglugerðin tók gildi í ESB 6. júlí 2026 og verður beitt frá 17. júlí 2028. Reglugerðin gildir ekki um lífrænan landbúnað, dýr eða örverur.Reglugerðin skiptir NGT-plöntum í tvo flokka:Category 1: Plöntur með erfðabreytingar sem gætu einnig komið fram náttúrulega eða með hefðbundnum kynbótum. Þær verða að jafnaði ekki meðhöndlaðar sem erfðabreyttar lífverur (GMO) eftir staðfestingarferli. Category 2: Plöntur með flóknari erfðabreytingar. Þær verða áfram háðar GMO-reglum, þó með aðlöguðu áhættumati og einfaldara ferli en áður.Innleiðing í íslenskt regluverkNGT-reglugerðin byggir að verulegu leyti á núverandi GMO-löggjöf ESB. Hún skapar sérstakt regluverk fyrir ákveðnar plöntur sem fengnar eru með nýjum erfðatækniaðferðum (NGT), en fyrir hluta þeirra vara gilda áfram reglur GMO-löggjafarinnar, þó með ákveðnum aðlögunum. Einkum verða svokallaðar „Category 2“ NGT-plöntur áfram háðar leyfisveitingum, áhættumati og markaðssetningarreglum samkvæmt GMO-löggjöfinni. Ísland hefur ekki innleitt reglugerðir (ESB)  1829/2003 og 1830/2003, en hefur sett eigin reglugerð 1237/2014 um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og fóðurs. Sú reglugerð tekur ekki til markaðsleyfis og mats á öryggi. Þetta leiðir til ákveðinnar óvissa um innleiðingu  Möguleg áhrif á íslenskan landbúnaðEf reglugerðin verður tekin upp í EES-samninginn mun hún líklega auka aðgengi íslenskra bænda að nýjum yrkjum sem eru betur aðlöguð erfiðum ræktunarskilyrðum, hafa meiri mótstöðu gegn sjúkdómum eða þurfa minna af varnarefnum. Þetta gæti styrkt samkeppnishæfni og sjálfbærni íslensks landbúnaðar. Á hinn bóginn gæti upptaka reglugerðarinnar kallað á breytingar á íslensku regluverki, eftirliti og upplýsingagjöf til bænda og neytenda. Áhrif á matvælaframleiðsluMatvælafyrirtæki gætu fengið aðgang að hráefni úr NGT-plöntum sem hafa bætta eiginleika, til dæmis aukið næringargildi eða betri geymsluþol. Áhrif á innflutt matvæli á ÍslandiMörg matvæli frá ESB munu í framtíðinni geta innihaldið hráefni úr NGT-plöntum. Ef reglugerðin verður innleidd í EES mun íslenskur markaður að öllum líkindum þurfa að taka mið af sömu flokkun og reglum og gilda innan ESB Í stuttu máli: NGT-reglugerðin felur í sér verulega stefnubreytingu í Evrópu þar sem sumar erfðabreytingar í plöntum verða meðhöndlaðar líkara hefðbundnum kynbótum en GMO. Fyrir Ísland gæti þetta skapað bæði tækifæri til aukinnar nýsköpunar og áskoranir varðandi innleiðingu, eftirlit og neytendaupplýsingar. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Ísland hefur ekki innleitt reglugerðir (ESB) 1829/2003 og 18/30 2003, en hefur sett eigin reglugerð 1237/2014 um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og fóðurs. Sú reglugerð tekur ekki til markaðsleyfis og mats á öryggi. Þetta leiðir til ákveðinnar óvissa um innleiðingu.

Reglugerðin yrði sett með heimild í 31. gr. í lögum um matvæli nr. 93/1995 og í lögum um fóður, áburð og sáðvöru nr. 22/1994. Um leið þyrfti að fella úr gildi núverandi reglugerð 1237/2014.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R1388
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1388, 26.6.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2023) 411
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32017R0625 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex