32026R1782
Commission Implementing Regulation (EU) 2026/1782 of 23 July 2026 amending Regulation (EC) No 771/2008 laying down the rules of organisation and procedure of the Board of Appeal of the European Chemicals Agency
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framkvæmdarreglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 303/2026 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð eru breytingar gerðar á skipulagi og starfsháttum kærunefndar Efnastofnunar Evrópu.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin felur í sér breytingar á reglugerð (ESB) nr. 771/2008, sem fjallar um skipulag og málsmeðferð kærunefndar Efnastofnunar Evrópu (ECHA). Í inngangi reglugerðarinnar kemur fram að framkvæmdastjórn ECHA hafi tekið ákvörðun um að breyta kærunefndinni þannig að þrír meðlimir hennar verði ekki lengur fastráðnir sem starfsmenn stofnunarinnar. Samsetning nefndarinnar verði þó óbreytt. Fyrstu breytingarnar varða hlutverk og valdheimildir formanns kærunefndarinnar. Formanni er heimilað að loka áfrýjunarmáli þegar áfrýjunin er dregin til baka eða þegar Efnastofnunin afturkallar ákvörðunina sem áfrýjað var. Formaðurinn hlýtur heimild til þess að skipta út nefndarmönnum fyrir varamenn þeirra að þeirra beiðni ef nefndarmaðurinn getur ekki tekið þátt í starfi nefndarinnar eða ef staðan er ómönnuð. Hann hlýtur einnig heimild til að skipa annan nefndarmann í stað skýrslugjafa eftir samráð við nefndarmennina sem við á. Fela má skráhaldara nefndarinnar að framkvæma þessar ráðstafanir. Þar á eftir koma breytingar sem snúa að hlutverki skráhaldarans. Hlutverk hans er skilgreint í breytingu á 5. gr. reglugerðarinnar, þar sem meðal annars er tekið fram að hann skuli tryggja rétta framkvæmd áfrýjunarferlisins og vera kærunefndinni innan handar. Skrárhaldarinn sé ábyrgur gagnvart framkvæmdastjóra Efnastofnunarinnar í stjórnsýslumálum en gagnvart formanni kærunefndarinnar í málum sem tengjast áfrýjunum. Aðrar breytingar sem gerðar eru með reglugerðinni fela í sér ýmsar umbætur á starfsháttum kærunefndarinnar. Nokkrar þeirra snúast um form kærunnar, meðal annars um skráningar á nafni, heimilisfangi og netfangi bæði kærandans og fulltrúa hans þegar við á. Þá er Efnastofnuninni gert að birta tilkynningar um viðtöku á kæru á vefsíðu sinni. Tilgreindur er tveggja mánaða frestur sem stofnunin hefur til að leggja fram málsvörn eftir að tímafrestur formannsins til að taka ákvörðun um móttöku kærunnar rennur út. Krafa er gerð um að öll málsgögn séu geymd á rafrænu formi. Í reglugerðinni eru einnig ákvæði um meðalgöngu þriðja aðila í kæru, skilyrði meðalgöngu og persónuupplýsingar sem fylgja verða umsókn um meðalgöngu.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Reglugerð 888/2015 um skráningu, mat leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH). Lagastoð: 1. tl. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Bæta þarf ákvæði um þessa reglugerð við í 10. kafla REACH-reglugerðarinnar um innleiðingu tiltekinna EES-gerða. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R1782 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/1782, 24.7.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D114873/02 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1 |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32008R0771 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32006R1907 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 frá 18. desember 2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), um stofnun Efnastofnunar Evrópu, um breytingu á tilskipun 1999/45/EB og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 793/93 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1488/94, sem og tilskipun ráðsins 76/769/EBE og tilskipunum framkvæmdastjórnarinnar 91/155/EBE, 93/67/EBE, 93/105/EB og 2000/21/EB Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
