32026R2501
Commission Regulation (EU) 2026/2501 of 12 November 2026 amending Annex XVII to Regulation (EC) No 1907/2006 of the European Parliament and of the Council concerning the Registration, Evaluation, Authorisation and Restriction of Chemicals (REACH) as regards lead in certain fishing tackle
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin felur í sér að bæta við takmörkunum á markaðssetningu og notkun blýs og blýsambanda sem talin eru upp í 63. tl. XVII. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 (REACH). Með takmörkunum eru sett fram mörk fyrir styrk blýs og blýsambanda í tilteknum veiðarfærum.
Nánari efnisumfjöllun
Í 63. tl. XVII. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 (REACH) eru tilgreindar þær takmarkanir sem gilda um markaðssetningu og notkun blýs og blýsambanda. Í drögum að reglugerð framkvæmdastjórnar ESB er lagt til að takmarka blý í ákveðnum veiðarfærum þar sem blý hefur í för með sér alvarlega áhættu fyrir heilsu manna, dýra (einkum fugla) og umhverfið. Ástæður takmörkunar er m.a. sú að engin lágmarksmörk fyrir magn blýs hafa verið skilgreind sem alveg hættulaust fyrir heilsu manna. Þá er vísað til mats Efnastofnunar Evrópu (ECHA) á því magni blýs sem talið er að losni út í umhverfið á næstu 20 árum vegna notkunar veiðarfæra, ásamt mati á áhrifum þess á fuglalíf og heilsu manna. ECHA bendir jafnframt á að staðgöngulausnir fyrir veiðarfæri úr blýi séu þegar aðgengilegar og til sölu víða í Evrópu.Lagt er til að við 63. tl. bætast við töluliðir 21. til 27. 21. tl. Veiðarfæri sem innihalda 1% blý eða meira má ekki markaðssetja fyrir hvers konar veiðar né nota við atvinnuveiðar eftir eftirfarandi fresti: 3 ár fyrir sökkur og beitur sem vega allt að 50 g; 5 ár fyrir sökkur og beitur sem vega meira en 50 g en ekki meira en 1 kg; og 6 mánuði fyrir handfæralínur (e. fishing wires) og sökkur sem eiga að falla við notkun (e. drop-in sinkers). 22. tl. Frá sex mánuðum eftir gildistöku reglugerðarinnar skulu smásalarupplýsa viðskiptavini sína með skýrum hætti, bæði í verslunum og við fjarsölu, ef sökkur eða beitur innihalda 1% eða meira blýi. Upplýsingarnar skulu ná til heilsu- og umhverfisáhættu, gildistöku komandi takmarkana og upplýsinga um blýlausa valkosti, á opinberu tungumáli viðkomandi aðildarríkis ESB. 23. tl. Undanþágur frá 21. og 22. tl. eru veittar fyrir beitur úr koparblöndum sem innihalda minna en 3% blý miðað við þyngd og fyrir klofnar sökkur (e. split-shot sinker) sem vega 0,06 g eða minna að því tilskildu að þær séu seldar í lekaheldum og barnheldum umbúðum. Þessar undanþágur skulu endurskoðaðar að 10 árum liðnum. 24. tl. Sökkur og beitur sem seldar hafa verið fyrir gildistöku viðeigandi takmarkana mega vera í notkun eftir að takmarkanir hafa tekið gildi. 25. tl. Aðildarríkjum verður heimilt að viðhalda strangari innlendum reglum sem ætlað er að vernda heilsu manna eða umhverfi, að því skilyrði að slíkar reglur hafa þegar verið í gildi við gildistöku þessarar reglugerðar og taki einungis til notkunar veiðarfæra úr blýi en ekki markaðssetningar þeirra. 26. tl. Aðilarríki skulu tilkynna framkvæmdarstjórninni tafarlaust um slíkar strangari innlendar reglur og skal framkvæmdarstjórnin birta þær opinberlega án tafar. 27. tl. Sjö orðskýringar eru lagðar til sem varða ákvæði 21.-26. tl. og snúa að skilgreiningum á hugtökum sem notuð eru í takmörkuninni. Reglugerðin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH). Lagastoð er í 1. tl. 1.mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Hafrannsóknastofnun |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Þessi reglugerð bætir við nýjum takmörkunum varðandi markaðssetningu. Í ljósi þess víkkar eftirlitssviðið með móðurgerðinni sem kallar á aukið fjármagn til eftirlits og efnagreininga. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R2501 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/2501, 13.11.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D110163/04 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytir (Modifies)
| 32006R1907 | amends, based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32006R1907 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 frá 18. desember 2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), um stofnun Efnastofnunar Evrópu, um breytingu á tilskipun 1999/45/EB og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 793/93 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1488/94, sem og tilskipun ráðsins 76/769/EBE og tilskipunum framkvæmdastjórnarinnar 91/155/EBE, 93/67/EBE, 93/105/EB og 2000/21/EB Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
