Breytingartillaga reglugerð 2023/956 um kolefnisjöfnunarkerfi á landamærum. - COM(2025) 989
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Regulation (EU) 2023/956 as regards the extension of its scope to downstream goods and anti-circumvention measures
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga ESB sem er merkt EES-tæk |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Breytingartillagan felur í sér markvissa endurskoðun á CBAM‑kerfinu með það að markmiði að efla virkni þess og tryggja að kerfið haldist árangursríkt þegar það færist úr aðlögun yfir í fulla framkvæmd. Tillagan byggir á reynslu fyrstu ára CBAM og bregst við veikleikum sem hafa komið í ljós, einkum hvað varðar kolefnisleka, framkvæmdarhæfni og samræmi milli ríkja. Meginbreytingin lýtur að því að færa CBAM nær raunverulegri verðmætasköpun með því að ná til hluta framleiðslu sem liggur lengra niður virðiskeðju í stál- og áliðnaði. Með þessu er dregið úr hættu á kolefnisleka. Tillagan styrkir jafnframt varnir gegn misnotkun á kerfinu með skýrari reglum, auknu eftirliti og víðtækari heimildum framkvæmdastjórnarinnar til að bregðast við. Þá eru reglur um raforku endurskoðaðar til að endurspegla betur raunverulega losun og skapa hvata fyrir kolefnissnauða raforkuframleiðslu utan ESB. Að lokum er lögð áhersla á betri framkvæmd, aukna samhæfingu stjórnvalda og heildstætt CBAM‑svæði sem nær einnig til EES/EFTA‑ríkja, ásamt öryggisventli til að bregðast við ófyrirséðum áhrifum á innri markað ESB.
Nánari efnisumfjöllun
Um er að ræða breytingarreglugerð við reglugerð (ESB) 2023/956 um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis ( e. carbon border adjustment mechanism eða CBAM). Markmið reglugerðarinnar er að styrkja virkni CBAM og bæta framkvæmd kerfisins í ljósi reynslu sem hlotist hefur í gegnum aðlögunartímabilið, án teljandi áhrifa á grundvallaruppbyggingu reglugerðarinnar. Breytingarnar miða einkum að því að efla getu kerfisins til að vinna gegn kolefnisleka, tryggja jafnræði á innri markaði og koma í veg fyrir sniðgöngu eða misnotkun. Þær miða jafnframt að því að bæta tæknilega og stjórnsýslulega framkvæmd CBAM, þar á meðal í EES‑samhengi. Í fyrsta lagi er gildissvið CBAM útvíkkað þannig að kerfið taki, auk grunnhráefna, einnig til tiltekinna vara sem eru lengra niður virðiskeðju í stál- og álvörum en núverandi löggjöf gerir ráð fyrir. Útvíkkunin er framkvæmd með breytingum á I. viðauka reglugerðar (ESB) 2023/956, en með henni er brugðist við þeirri hættu að kolefnisleki færist frá grunnhráefnum yfir í unnar eða hálfunnar vörur, þar sem framleiðsla innan Evrópusambandsins gæti orðið undir í samkeppni við innfluttar vörur með hærra kolefnisspor. Samhliða útvíkkun gildissviðs er kveðið á um að innbyggð losun í forefnum (e. precursors) sem notuð eru við framleiðslu vara á síðari framleiðslustigi skuli tekin með í losunarútreikningum, í samræmi við nýjan VIII. viðauka reglugerðar (ESB) 2023/956, sbr. breytingarreglugerðina. Í öðru lagi er sérstaklega unnið gegn því að aðilar komist hjá skyldum sem settar eru fram með CBAM kerfinu. Bætt er við skilgreiningu á hugtakinu misnotkun (e. abusive practices) í 3.gr gerðarinnar, sem nær til athafna sem miða að því að komast hjá CBAM‑fjárhagslegri ábyrgð og grafa þannig undan markmiðum kerfisins. Samhliða þessu eru heimildir framkvæmdastjórnarinnar styrktar til að fylgjast með áhættusömum viðskiptamynstrum og krefjast viðbótargagna eða sönnunargagna þegar veruleg áhætta er talin á misferli. Í þriðja lagi eru tæknilegar reglur um losunarútreikning vegna raforku endurbættar. Bent hefur verið á að núverandi regluverk um innflutning raforku sé of stíft og taki ekki nægilega vel mið af þeim framförum sem raforkuframleiðendur í þriðju ríkjum hafa náð í átt að minni losun. Afleiðingar eru þær að ekki er nægilegur hvati til staðar til að eiga viðskipti með kolefnisminni raforku. Jafnframt eru hvata fyrir aðila í þriðja ríki að draga úr losun í raforkuframleiðslu of veikir. Markmið breytingannar sem lagðra eru fram í þessari reglugerð er að tryggja nákvæmari og raunhæfari meðferð á losun vegna innfluttrar raforku, stuðla að afkolun raforkuframleiðslu í þriðju ríkjum og draga úr hættu á því að innflutningur raforku grafi undan loftslagsmarkmiðum sambandsins. Í því samhengi er einnig skapaður rammi fyrir samninga og viljayfirlýsingar við þriðju ríki um markaðstengingu á raforku og innleiðingu sambærilegs kolefnisverðs og er að finna í ETS kerfinu. Í fjórða lagi fela breytingarnar í sér ýmsar smávægilegar en mikilvægar lagfæringar og einfaldanir sem ætlað er að bæta framkvæmd CBAM og draga úr óþarfa stjórnsýslubyrði. Þar má nefna að lögbærum stjórnvöldum er veitt skýrari heimild til að krefjast fjárhaglegra trygginga þegar talið er að CBAM‑tilkynnandi geti ekki staðið undir fjárhagslegum skuldbindingum sínum samkvæmt reglugerð ESB 2023/956 sem setur á fót kolefnisjöfnunarkerfi á landamærum (CBAM) Einnig eru breytingar sem fela í sér styrkingu á samhæfingu milli tollayfirvalda og framkvæmdastjórnarinnar, skýrari reglur um upplýsingaskipti og ábyrgð sem og breytingar sem miða að því að tryggja heildstætt CBAM‑svæði sem nær einnig til EES/EFTA‑ríkja. Í því samhengi eru sérstaklega sett ákvæði sem tryggja að ekki sé unnt að komast hjá CBAM með því að flytja vörur frá þriðja ríki inn í Evrópusambandið undir tollferli innri aðvinnslu (e. inward processing procedure), vinna vörurnar og flytja þær síðan áfram til Íslands eða Noregs án þess að CBAM komi til framkvæmda. Jafnframt er kveðið á um að vörur sem þegar hafa verið settar í frjálsa dreifingu í EES/EFTA‑ríki sem innleitt hefur CBAM skuli ekki sæta tvíþættri CBAM‑beitingu við síðari flutning til Evrópusambandsins. Sönnunarbyrði á tollskýrslum við flutning og til ábyrgð á að lenda ekki í tvítollun er á CBAM tilkynnanda. Að lokum er bætt við sérstöku ákvæði um alvarleg og ófyrirséð áhrif, sem veitir framkvæmdastjórninni heimild til að grípa til tímabundinna ráðstafana ef beiting CBAM á tilteknar vörur veldur verulegum og ófyrirséðum skaða á innri markaði sambandsins, til dæmis vegna óvæntra verðhækkana. Í slíkum tilvikum getur framkvæmdastjórnin, fellt vörur tímabundið brott af lista í I. viðauka reglugerðarinnar þar til aðstæður hafa gengið yfir. Áréttað er að meginmarkmið útvíkkunar gildissviðs CBAM er ekki að afla tekna, heldur að styrkja loftslagslega virkni kerfisins og getu þess til að koma í veg fyrir kolefnisleka. Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir að breytingartillagan leiði til aukinna tekna, þar sem áætlað er að CBAM skili um 0,58 milljörðum evra í árlegar tekjur fyrir aðildarríki árið 2030. Til lengri tíma litið, eftir því sem úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda innan ETS‑kerfisins verður smám saman afnumin og CBAM tekið að fullu í notkun er gert ráð fyrir að tekjur haldi áfram að aukast og nái um 0,69 milljörðum evra árið 2035.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breytingartillagan er bein breyting á Reglugerð (ESB) 2023/956 Vísað er til Reglugerðar (ESB) nr. 952/2013 (Union Customs Code), einkum,256. gr. um innri aðvinnslu (inward processing) og 56. gr. um tolla eftirlit og gagnaskipti. Vísað er til Reglugerðar (ESB) 2015/2446, 6. gr. (2. mgr.) um auðkenningu aðila (EORI eða sambærilegt) Vísað er til Reglugerðar (ESB) 2019/943 um innri raforkumarkaðinn Vísað er til Reglugerðar (ESB) 2015/1222 um úthlutun flutningsgetu og stíflustýringu (CACM) Vísað er til Reglugerðer (EEC) 2658/87 um sameiginlega tollaskrá varðandi CN- númer |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Rekstraraðilar sem framleiða, vinna eða flytja inn ál, Skatturinn/ tollurinn sem mun hafa hlutverk í CBAM innflutningi, Innflytjendur / CBAM‑skýrslugjafar, Stjórnvöld / UOS sem hefur umsjón með framkvæmd CBAM |
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Tillagan getur haft þýðingu fyrir íslenskan iðnað, einkum að því marki sem hún snertir framleiðslu á álvöru, innflutning á hrávörum til Íslands og útflutning vara frá Íslandi á Evrópumarkað. Breytingartillagan styrkir CBAM‑kerfið í heild sinni, einkum með auknum varnarúrræðum gegn misnotkun og með því að tryggja heildstætt og samræmt CBAM‑svæði. Ísland er þegar þátttakandi í ETS‑kerfinu og hefur því ríka hagsmuni af því að CBAM virki með skilvirkum hætti og styðji við jafnræði í samkeppni milli framleiðenda innan og utan Evrópu. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2025) 989 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu |
Leggur til breytingar á (Proposes to amend)
| 32023R0956 | Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 establishing a carbon border adjustment mechanism | Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi |
Breytt af (Modified by)
| SEC(2025) 989 52025SC0989 |
work related to work |
| SEC(2025) 988 52025SC0988 |
work related to work |
| SEC(2025) 987 52025SC0987 |
work related to work |
Breytir (Modifies)
| 32023R0956 | proposes to amend | Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 establishing a carbon border adjustment mechanism | Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi |
| 12016E192 | based on |
