Stöðvun á ógildingu heimilda í markaðsstöðuleikasjóði - COM(2026) 153
Proposal for a Decision of the European Parliament and of the Council amending Decision (EU) 2015/1814 as regards ceasing the invalidation of allowances in the market stability reserve
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga ESB sem er merkt EES-tæk |
|---|---|
| Nánari tegund gerðar | Tillaga að ákvörðun |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tillaga að ákvörðun um að hætta að ógilda losunarheimildir sem safnast upp í markaðsstöðuleikasjóð með það að markmiði að minnka verðsveiflur og tryggja stöðuleika.
Nánari efnisumfjöllun
Fyrirliggjandi gerð er tillaga að ákvörðun um breytingu á gildandi ákvörðun (ESB) 2015/1814 um markaðsstöðugleikasjóð (e. Market stability reserve) innan viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir (EU ETS). Markmið tillögunnar er að hætta að ógilda losunarheimildir sem safnast upp í sjóðnum en slík ógilding hefur verið framkvæmd frá árinu 2023 þegar magn heimilda í sjóðnum fór yfir 400 milljónir. Markaðsstöðugleikasjóðurinn er lykiltæki innan viðskiptakerfisins með losunarheimildir og gegnir hlutverki við að jafna framboð og eftirspurn á markaði. Sjóðurinn safnar losunarheimildum þegar umframframboð er til staðar og getur síðar losað þær aftur inn á markaðinn þegar skortur myndast. Með þessu er leitast við að draga úr miklum sveiflum í verði heimilda, tryggja stöðugri þróun og fyrirsjáanleika fyrir aðila sem stunda kaup á losunarheimildum. Að heimila að fleiri losunarheimildir verði áfram í markaðsstöðugleikasjóðnum, í stað þess að þær séu ógiltar, ætti að skapa nauðsynlegan heimildarforða til að bregðast við mögulegum þrengingum á markaði eftir miðjan fjórða áratuginn og síðar. Af þessum sökum ætti ekki lengur að ógilda losunarheimildir í varasjóðnum, svo stærri fjöldi heimilda geti verið áfram í honum. Þetta mun auka slagkraft markaðsstöðugleikasjóðsins til mögulegrar losunar heimilda úr sjóðnum á næsta áratug, í því skyni að halda markaðnum í jafnvægi. Þessi tillaga gerir markvissa breytingu á einum þætti markaðsstöðuleikasjóðsins án þess að hafa áhrif á heildarhönnun hans eða beint á aðrar stefnur ESB.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Rekstaraðilar innan ETS |
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Áhrif breytinga á markaðsstöðuleikasjóð eru almennar og leiða til áhrifa á verð losunarheimildar fyrir kerfið í heild sinni til lengri tíma litið. Ekki er talið að breytingin hafi sértæk áhrif á Íslandi. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2026) 153 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu |
Leggur til breytingar á (Proposes to amend)
| 32015D1814 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytt af (Modified by)
| AE(2026) 1164 52026AE1164 |
contains eesc opinion on |
Breytir (Modifies)
| 32015D1814 | proposes to amend | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
