D113886/03
Commission Implementing Regulation (EU) …/... amending Implementing Regulation (EU) No 540/2011 as regards the extension of the approval periods of the active substances bensulfuron, benzovindiflupyr, chlorotoluron, clethodim, cycloxydim, cymoxanil, dazomet, deltamethrin, diclofop, fenazaquin, fluopicolide, hymexazol, lambda-cyhalothrin, MCPA, MCPB, metaldehyde, metsulfuron-methyl, paclobutrazol and tebuconazole
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga ESB sem gæti verið EES-tæk |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð er verið að framlengja samþykkistímabil fyrir 19 virk efni til notkunar í plöntuverndarvörur ýmist til 15. nóvember 2027, 30. nóvember 2027, 15. desember 2027, 30. júní 2028, 31. júlí 2028, 15. ágúst 2028, 15. október 2028, 2. janúar 2029, 31. janúar 2029, 31. júlí 2029 og 30. nóvember 2029.Viðauka framkvæmdarreglugerðar (ESB) nr. 540/2011 er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar.Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin varðar framlengingu á samþykkistímabili fyrir 19 virk efni. Þau eru bensúlfúrón, bensóvindíflúpýr, klórótólúrón, kletódím, sýkloxýdím, sýmoxaníl, dasómet, deltametrín, díklófóp, fenasakín, flúópíkólíð, hýmexasól, lambda-sýhalótrín, MCPA, MCPB, metaldehýð, metsúlfúrónmetýl, paklóbútrasól og tebúkónasól.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur. Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Reglugerðin hefur í för með sér að framlengja þarf gildistíma markaðsleyfis fyrir 1 plöntuverndarvöru og tímabundinnar skráningar fyrir 1 plöntuverndarvöru sem eru á markaði á Íslandi. Aukakostnaður fælist í vinnu sérfræðings og myndi falla á Umhverfis- og orkustofnun. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Plöntuverndarvörur sem innihalda virku efnin deltametrín og MCPA eru með leyfi til að vera á markaði hér á landi og reglugerðin hefur þau áhrif að framlengja þarf leyfi fyrir þessum vörum. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D113886/03 |
| Dagsetning tillögu |
