Útdráttur
Tillagan felur í sér breytingar á reglugerð (ESB) 2017/1369 um orkumerkingar og reglugerð (ESB) 2020/740 um merkingar hjólbarða. Markmiðið er að draga úr stjórnsýslubyrði, auka stafræna upplýsingagjöf, einfalda skráningu í EPREL-vörugagnagrunninn, bæta fylgni við merkingarkröfur og styrkja markaðseftirlit.
Nánari efnisumfjöllun
Helstu breytingarTillagan gerir ráð fyrir að ekki verði lengur sjálfgefin krafa um að prentaður orkumerkimiði fylgi hverri einingu. Í stað þess verði ákveðið í framseldum reglugerðum hvort miði skuli vera á vörunni, umbúðum hennar, í fylgiskjölum eða aðgengilegur með stafrænum hætti. Birgjar skulu þó áfram afhenda söluaðilum prentaðan miða án endurgjalds, að beiðni og eigi síðar en innan fimm virkra daga.Réttur söluaðila til að óska eftir prentuðu vörulýsingarblaði verður felldur brott. Vörulýsingarblöð og aðrar upplýsingar, meðal annars um viðhald, varahluti og meðhöndlun við lok líftíma, verða aðgengilegar rafrænt í EPREL.Kröfur um framsetningu orkumerkinga í netsölu verða skýrðar og hertar. Merki eða orkunýtniör sem veitir beinan aðgang að merkinu skal meðal annars birtast nálægt verði á vörusíðum, leitarniðurstöðum, vörulistum og í innkaupakörfu.EPREL-skráningarnúmer, tengill eða QR-kóði verður notaður með markvissari hætti til að tryggja rekjanleika vara í aðfangakeðjunni. Upplýsingarnar skulu meðal annars koma fram í auglýsingum, tæknilegu kynningarefni, netsölu og viðskiptum milli söluaðila.Uppsetningaraðilar sem bjóða orkutengdar vörur til sölu, leigu eða kaupleigu verða felldir skýrar undir skyldur söluaðila. Þetta hefur meðal annars þýðingu fyrir sölu og uppsetningu hitunar- og kælibúnaðar.Viðurkenndir fulltrúar framleiðenda utan ESB/EES skulu skrá umboð sitt í EPREL. Umboðið skal meðal annars tilgreina hvaða vörumerki og vörumódel falla undir það, gildistíma þess og heimildir fulltrúans gagnvart markaðseftirlitsyfirvöldum.Við endurkvörðun orkumerkinga verður birgjum heimilt að afhenda gamla merkimiðann, nýja merkimiðann eða bæði á fjögurra mánaða tímabili fyrir endurkvörðunardag. Eldri birgðir sem settar hafa verið á markað með eldra merkimiða má selja í allt að tólf mánuði eftir endurkvörðunardag.Markaðseftirlitsyfirvöld fá aukna möguleika á að nota EPREL við eftirlit. Gert er ráð fyrir að hægt verði að draga úr sýnileika ósamræmdra vara í opinbera hluta gagnagrunnsins og birta viðvaranir þar til úrbætur hafa farið fram.Breytingar varðandi hjólbarðaEPREL verður miðlægara í upplýsingagjöf um hjólbarða. Birgjar skulu skrá hjólbarða í gagnagrunninn áður en þeir eru settir á markað og dreifingaraðilar skulu birta EPREL-skráningarnúmer, tengil eða QR-kóða í tilboðum, auglýsingum og á reikningum.Kröfur um sýnilegt hjólbarðamerki við sölustað og í netsölu verða skýrðar. Þegar verð er sýnt skulu upplýsingar um flokka hjólbarðans eða fullt merki birtast nálægt verðinu.Hjólbarðauppsetningaraðilar verða sérstaklega skilgreindir og felldir undir tilteknar skyldur. Á móti verður ákvæði um sérstakar upplýsingaskyldur birgja og söluaðila nýrra ökutækja fellt brott.Framkvæmdastjórninni verður veitt rýmri heimild til að breyta tæknilegum viðaukum reglugerðarinnar með framseldum gerðum, meðal annars vegna tækniþróunar og breyttra markaðsaðstæðna.ÁhrifBreytingarnar hafa áhrif á framleiðendur, innflytjendur, viðurkennda fulltrúa, birgja, heildsala, söluaðila, netsölutorg, uppsetningaraðila, hjólbarðaframleiðendur og -dreifingaraðila, neytendur og markaðseftirlitsyfirvöld.Tillagan dregur úr notkun prentaðra skjala en eykur vægi EPREL sem upplýsingagagnagrunns, rekjanleikakerfis og verkfæris við markaðseftirlit. Fyrir markaðseftirlitsyfirvöld felur þetta í sér aukna áherslu á réttmæti EPREL-skráninga, netsölu, QR-kóða og tengla, umboð viðurkenndra fulltrúa og samræmi upplýsinga í allri aðfangakeðjunni.Mikilvægar dagsetningar og frestirReglugerðin er enn á tillögustigi og tekur því ekki gildi fyrr en að lokinni lagasetningarmeðferð ESB. Samkvæmt tillögunni tekur hún gildi tuttugu dögum eftir birtingu í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.Helstu frestir samkvæmt tillögunni eru:fimm virkir dagar til að afhenda söluaðila prentað orkumerkimiða að beiðni;fjögurra mánaða aðlögunartímabil fyrir endurkvörðun orkumerkis;tólf mánaða frestur til að selja eldri birgðir með eldra orkumerkimiða;fyrsta skýrsla framkvæmdastjórnarinnar um markaðseftirlit skal birt eigi síðar en 19. júlí 2032.