Ákvörðun um útfærslu árlegra gagnaskila og meðfylgjandi gæðaskýrslu um veiðarfæri sem innihalda plast sett á markað ár hvert og veiðarfæraúrgangs safnað ár hvert. - 32021D0958

Commission Implementing Decision (EU) 2021/958 of 31 May 2021 laying down the format for reporting data and information on fishing gear placed on the market and waste fishing gear collected in Member States and the format for the quality check report in accordance with Articles 13(1)(d) and 13(2) of Directive (EU) 2019/904 of the European Parliament and of the Council

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.17 Umhverfisvernd
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 174/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðun um útfærslu á árlegum skilum gagna og gæðaskýrslum með gögnum og upplýsingum um magn veiðarfæra sett á markað og magn veiðarfæraúrgangs safnað í aðildarríkjunum með gefnu sniði og uppsetningu gæðaskýrslna.

Nánari efnisumfjöllun

Inngangur:Ákvörðunin veitir frekari útfæslu á töluliðum 1. (d) og 2. í 13. gr. í tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið, og fjallar um innihald og snið gagnaskila og gæðaskýrslna sem skila skal árlega til framkvæmdarstjórnarinnar.Lagt er til að viðeigandi stjórnvald, Úrvinnslusjóður, skili þeim gögnum og upplýsingum sem um ræðir á því sniði sem sett er fram í ákvörðuninni í 1. viðauka sem og skil á gæðaskýrslu skv. 2. viðauka, sbr. a. lið 10. mgr. 2. gr. breytingarlaga nr. 103/2021. Þau lög taka gildi 1. janúar 2023. En í gr. 13.1 tilskipunar 2019/904 um áhrif plastvara á umhverfið kemur fram að fyrstu skil skulu vera fyrir árið 2022 (gögnum safnað um það almanaksár) og skil á þeim er í síðasta lagi 18 mánuðum eftir lok þess árs.(1) Skv. 1. tl. (d) 13. gr. tilskipunarinnar eiga aðildarríki að skila gögnum um veiðarfæri sem innihalda plast sem sett eru á markað og veiðarfæraúrgangs sem er safnað innan aðildarríkisins á því sniði sem sett er fram af framkvæmdarstjórninni.(2) Skv. 2. tl. 13. gr. tilskipunarinnar skal gæðaskýrsla fylgja ofangreindum gagnaskilum og ætti hún að tryggja að upplýsingarnar og gögnin sem tilkynnt er um veiti nægan grundvöll til að sannreyna nákvæmni, áreiðanleika og samanburðarhæfni þessara upplýsinga og gagna milli aðildarríkjanna.(3) Skv. 1. tl. 13. gr. tilskipunarinnar skulu aðildarríki skila ofangreindum gögnum og upplýsingum til framkvæmdarstjórnarinnar rafrænt innan 18 mánaða frá lok þess árs sem gögnum var safnað fyrir(4) Til að tryggja nákvæmi og samanburðarhæfni gagna á milli aðildarríkja skal gögnum skilað skv. samræmdu sniði sem sett er fram í og skulu aðildarríki uppfylla skyldu skil gagna skv. 4. tl. 13. gr. tilskipunarinnar.(5) Form gagnaskila sem sett er fram í viðauka þessarar ákvörðunar krefst þess að magn veiðarfæra sett á markað og veiðarfæraúrgangs sé skráð eftir þyngd og skulu ríki gera ráðstafanir til að tryggja að gagnaskil geti farið fram á því sniði.(6) Aðferðarfræðin sem lögð er fram í þessari ákvöðurn er í samræmi við afstöðu Framkvæmdarstjórnarinnar um innleiðingu á vísindalegum og tæknilegum ferlum og innleiðingu á úrgangstilskipunum undir 39. gr. tilskipunar 2008/98/EB Evrópuþingsins og ráðsins.Efni ákvörðunar:1.gr. fjallar um skil á gögnum um veiðarfæri sem innihalda plast sem sett eru á markað og veiðarfæraúrgangs sem er safnað innan aðildarríkisins og að þau séu skv. því sniði sem sett er fram í 1. viðauka ákvörðunarinnar.2.gr. fjallar um skil á gæðaskýrslu með gangaskilum og að hún sé skv. því sniði sem sett er fram í 2. viðauka ákvörðunarinnar.3.gr. ávarpar aðildarríkin.1. Viðauki útlistar snið gangaskila um A. veiðarfæri sem innihalda plast sem sett eru á markað og B. veiðarfæraúrgangs sem er safnað innan aðildarríkisins.2. Viðauki útlistar snið gæðaskýrslu sem skal skila með gögnum um II. veiðarfæri sett á markað og III. veiðarfæraúrgang safnað þar sem kaflar eru útlistaðir sem og I. Markmið skýrslunnar.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Hvaða hagsmunaaðilar Úrvinnslusjóður

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Hagstofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021D0958
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 211, 15.6.2021, p. 51
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 66, 13.10.2022, p. 15
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 267, 13.10.2022, p. 16