Breyting á STS - 2021/557 - 32021R0557
Regulation (EU) 2021/557 of the European Parliament and of the Council of 31 March 2021 amending Regulation (EU) 2017/2402 laying down a general framework for securitisation and creating a specific framework for simple, transparent and standardised securitisation to help the recovery from the COVID-19 crisis
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að stuðla að endurbótum í kjölfar COVID-19 hættuástandsins
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta, 09.03 Kauphöll og verðbréf |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 145/2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun o.fl. (STS-reglugerðin) var breytt með reglugerð (ESB) 2021/557 er miðaði sérstaklega að því að gera lánastofnunum kleift að draga út kostnaði og losa um fjármagn fyrir endurbótaferlið eftir efnahagslega áfallið sem heimsfaraldur kórónuveiru hefur valdið. Upphafleg STS-reglugerð heimilaði eingöngu að verðbréfanir með raunverulegu framsali væru merktar sem STS, en með breytingareglugerðinni var m.a. opnað á verðbréfun á efnahagsreikningi upphafsaðila, að uppfylltum nánari skilyrðum. Samhliða samþykkt þessarar reglugerðar var samþykkt reglugerð um breytingu á CRR (2021/558). Innleidd með lögum nr. 71/2025 um verðbréfun.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
| Sent til Alþingis | |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lög nr. 71/2025 um verðbréfun. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Samráðsgátt | https://island.is/samradsgatt/mal/3497 |
| Niðurstöður samráðs | Birt voru áform um lagasetningu vegna STS-pakkans, sumarið 2023. Engar umsagnir/athugasemdir bárust. Framlagning frumvarp er áformuð á haustþingi 2024. |
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Markmið STS-reglugerðarinnar m.áo.br. er að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum. Með nýjum lögum verður gagnsæi aukið, samkeppni jafnast, alþjóðleg samleitni meiri og eftirlit styrkt. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands hefur ekki verið mikið um verðbréfun hér á landi á undanförnum árum, en styrkari lagaumgjörð kann að gera þetta álitlegri kost við fjármögnun en ella. Ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum á ríkissjóð. Hugsanlega verður þó þörf á hækkun eftirlitsgjaldsins sem stendur undir rekstri Fjármálaeftirlitsins. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands er í stakk búið til að takast á við eftirlit með framkvæmd fyrirhugaðra laga. Fyrirhuguð löggjöf ætti að hafa jákvæð áhrif á fjármálastöðugleika, með vísan til aukinna krafna um upplýsingagjöf, stöðlun og áhættuþátttöku þeirra sem koma að verðbréfun. Verðbréfun gerir mögulega breiðari dreifingu áhættu innan fjármálageirans og getur hjálpað til að losa um fjármagn á efnahagsreikningi upphafsaðila, sem aftur gerir frekari lánveitingar til atvinnulífsins mögulegar, eins og segir í 4. lið inngangsorða STS-reglugerðarinnar. Almennt geti verðbréfun aukið skilvirkni fjármálakerfisins og stuðlað að auknum fjárfestingartækifærum. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Seðlabanki Íslands |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32021R0557 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 116, 6.4.2021, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2020) 282 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Liechtenstein) | |
|---|---|
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland) | |
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur) |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 72, 3.10.2024, p. 45 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/2433, 3.10.2024 |
