32022R1531
Commission Regulation (EU) 2022/1531 of 15 September 2022 amending Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council as regards the use in cosmetic products of certain substances classified as carcinogenic, mutagenic or toxic for reproduction and correcting that Regulation
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1531 frá 15. september 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á tilteknum efnum, sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða sem efni sem hafa eiturhrif á æxlun, í snyrtivörur og um leiðréttingu á þeirri reglugerð
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 045/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur varðandi CMR-efni (krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun). Breytingar fela í sér að uppfæra skrá í II. viðauka yfir innihaldsefni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum og skrá í III. viðauka yfir innihaldsefni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörum ásamt leiðréttingum í V. viðauka sem er skrá yfir leyfileg rotvarnarefni í snyrtivörum.
Nánari efnisumfjöllun
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.Samkvæmt 15. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur skulu efni sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR) í undirflokki 1A, 1B eða flokki 2 vera bönnuð í snyrtivörum nema að þau falli undir undantekningar sem eru tilgreindar í 2. málsl. 1. mgr. 15. gr. eða í annarri undirmálsgrein 2. mgr. 15. gr. sömu reglugerðar.Í samræmi við framselda reglugerð (ESB) 2021/849, sem kemur til framkvæmda þann 17. desember 2022, þá er efnum sem flokkuð eru sem CMR efni samkvæmt hættuflokkun í samræmi við reglugerð (EB) no. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna einnig bætt við eða fjarlægð af skrám um efni sem eru bönnuð eða háð takmörkunum í viðaukum II. til VI. í reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.Færslum er bætt við, þær felldar út eða leiðréttar í II., III. og V. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1223/2009 í eins og fram kemur í viðauka við þessa reglugerð. Breytingarnar eru sem hér segir:Metýl salýsílat (metýl 2-hýdroxýbenzóat, CAS 119-36-8) hefur verið flokkað sem CMR efni í flokki 2 (eiturhrif á æxlun), það er talið öruggt til notkunar í snyrtivörum í tilgreindum styrk með takmörkunum þar sem ekki skal nota metýl salýsílat í vörum sem eru í sprey/úðabrúsum, förðunarvörum fyrir andlit og vörum fyrir börn undir 6 ára að undanteknum tannkremum. Metýl salýsílat verður því bætt við í nýrri færslu í III. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1223/2009. Efnum sem voru flokkuð sem CMR efni, alls 14 efni, er bætt við sem nýjum færslum í II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur í skrá sem tilgreinir þau efni sem eru ekki leyfileg sem innihaldsefni í snyrtivörum. Natríum N-(hýdroxýmetýl)glycín (Sodium N-(hydroxymethyl)glycinate, CAS 70161-44-3) var flokkað sem CMR efni en er leyfilegt sem rotvarnarefni og er á skrá í færslu nr. 51 í V.viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1223/2009 en er einnig á skrá yfir bönnuð innihaldsefni í snyrtivörum í II.viðauka við reglugerðina. Efni skulu ekki vera á báðum skrám og því er natríum N-(hydroxýmetýl)glycín fellt út úr skrá í II.viðauka við reglugerðina. Nafn efnisins natríum N-(hýdroxýmetýl)glycín er einnig leiðrétt í færslu nr. 51 í V. viðauka við reglugerðina ásamt leiðréttingu á orðalagi varðandi skilyrði er varða formaldehýðlosun í sömu færslu.Reglugerðin tók gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda 17. desember 2022.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breyta þarf reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur hér á landi. Lagastoð er að finna í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32022R1531 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 240, 16.9.2022, p. 3 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 77, 26.10.2023, p. 35 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/2339, 26.10.2023 |