32023R2049
Commission Delegated Regulation (EU) 2023/2049 of 14 July 2023 amending Regulation (EU) 2017/852 of the European Parliament and of the Council as regards mercury-added products subject to manufacturing, import and export prohibitions
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2049 frá 14. júlí 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/852 að því er varðar vörur með viðbættu kvikasilfri sem falla undir framleiðslu-, innflutnings- og útflutningsbann
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.04 Íðefni, iðnaður og líftækni |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 304/2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin varðar breytingar á II. viðauka við reglugerð (ESB) 2017/852 um kvikasilfur og snýr að því að aðlaga ákvæði viðaukans að ákvörðun ráðstefnu aðildarríkja Minamatasamningsins númer MC-4/3 þar sem nýjum vörum með viðbættu kvikasilfri var bætt á lista yfir bannaðar vörur.
Nánari efnisumfjöllun
II. viðauki við reglugerð (ESB) 2017/852 um kvikasilfur geymir skrá yfir vörur sem bannað er að framleiða, flytja inn og flytja út á EES svæðinu frá þeim dagsetningum sem þar eru settar fram sbr. 5. gr. reglugerðarinnar og 6. gr. reglugerðar nr. 640/2022 um kvikasilfur. Bönnin taka þó ekki til vara sem nauðsynlegar eru til almannavarna og hernaðarnota, né vara til rannsókna, kvörðunar á tækjabúnaði eða til notkunar sem viðmiðunarstaðlar. Með þessari reglugerð er 7 vörum bætt í skrána í A. hluta II. viðauka til að aðlaga hana að ákvörðun sem tekin var á 4. aðildarríkjaþingi Minamatasamningsins í mars 2022. Öll bönnin taka gildi 31. desember 2025. Reglugerðin hefur þegar tekið gildi innan ESB.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breyta þarf reglugerð nr. 640/2022 til að innleiða ákvæði þessarar gerðar. Gerðina mætti innleiða með tilvísunaraðferð. Æskilegt væri að breyta framsetningu 4. gr. í reglugerð nr. 640/2022 samhliða þessari innleiðingu með þeim hætti að númera málsgreinar til að auðvelda tilvísanir í hverja innleidda reglugerð. Lagastoð er í 21. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R2049 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 236, 26.9.2023, p. 21 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2023)4683 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 25, 24.4.2025, p. 86 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/576, 24.4.2025 |
