Árleg viðmiðunarmörk LULUCF 2026–2029 - 32026R0893
Commission Implementing Regulation (EU) 2026/893 of 24 April 2026 setting out annual limit values for net greenhouse gas removals of Member States for the period 2026-2029 pursuant to Article 4(5) Regulation (EU) 2018/841 of the European Parliament and of the Council
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin setur árleg viðmiðunarmörk (e. annual limit values) fyrir nettóbindingu gróðurhúsalofttegunda aðildarríkja fyrir árin 2026–2029 samkvæmt 4. mgr. 5. gr. reglugerðar (ESB) 2018/841 um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt (LULUCF). Viðmiðunarmörkin byggja á endurskoðuðum losunar- og bindingargögnum aðildarríkjanna og skuldbindandi markmiðum þeirra fyrir árið 2030 samkvæmt reglugerð (ESB) 2023/839. Reglugerðin felur ekki í sér nýjar efnislegar skuldbindingar heldur útfærir framkvæmd gildandi reglna með því að ákveða árleg viðmiðunarmörk. Þegar þessi greining er rituð hefur reglugerð (ESB) 2023/839 enn ekki verið tekin upp í EES-samninginn. Drög að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar liggja fyrir, en til þess að unnt sé að ljúka gerð ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar sem þessu tengist bíða EFTA-ríkin eftir skriflegum athugasemdum frá framkvæmdastjórn ESB.
Nánari efnisumfjöllun
Sú reglugerð (hér eftir reglugerðin) sem hér er til greiningar er í samræmi við 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/841 sem fjallar um skuldbindingar og uppgjörsreglur vegna losunar og bindingar frá landnotkun, breyttri landnotkun og skógrækt. Sú reglugerð var tekin upp í EES-samninginn árið 2019 með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2019 og var reglugerðin innleidd í íslenskan rétt með 9. tölul. 47.gr. laga um loftslagsmál nr. 70/2012. Vegna nýs markmiðs ESB um að draga úr losun um 55% fyrir árið 2030 m.v. árið 1990, var m.a. reglugerð 2018/841 endurskoðuð m.t.t. nýs markmiðs. Vegna hækkunar loftslagsmarkmiðs ESB samkvæmt Evrópsku loftslagslögunum var reglugerð (ESB) 2018/841 breytt með reglugerð (ESB) 2023/839. Með þeirri breytingu voru sett ný skuldbindandi markmið um nettóbindingu gróðurhúsalofttegunda í landnotkunargeiranum fyrir árið 2030. Reglugerð (ESB) 2023/839 hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn og hefur því ekki verið innleidd í íslenskan rétt. Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2026/893 framkvæmir 4. mgr. 5. gr. reglugerðar (ESB) 2018/841 með því að reikna út árleg viðmiðunarmörk fyrir hvert aðildarríki fyrir árin 2026–2029. Viðmiðunarmörkin eru reiknuð út frá staðfestum losunar- og bindingargögnum sem yfirfarin hafa verið samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/1999 og mynda línulega þróun frá viðmiðunargildi að skuldbindandi markmiði hvers ríkis fyrir árið 2030. Ekki er búið að útfæra viðmiðunarmörk fyrir Ísland fyrir 2030, þar sem ekki er búið að innleiða uppfærslur á reglugerð (ESB) 2018/841 í EES-samninginn. Þegar sú uppfærsla verður innleidd í EES-samninginn þarf að innleiða þessa gerð samhliða henni. Þörf er á aðlögun við gerð JCD þar sem bæta þarf við árlegum viðmiðunarmörkum fyrir Ísland og Noreg. Útreikningar á viðmiðunarmörkum byggja að hluta til á ítarlegri úttekt, sem var framkvæmd á vormánuðum 2025. Ísland tók þátt í þeirri úttekt, þrátt fyrir að reglugerð (ESB) 2023/839 hafi ekki verið tekin upp í EES-samninginn. Það þýðir að öll gögn sem þarf til að reikna út viðmiðunarmörk fyrir Ísland liggja þegar fyrir, fyrir utan 2030 markmið sem er enn verið að semja um við gerð sameiginlegrar ákvörðunar EES-nefndarinnar.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Ekki er gert ráð fyrir beinum kostnaði við innleiðingu reglugerðarinnar. Mögulegur óbeinn kostnaður gæti orðið ef Ísland þarf að grípa til frekari aðgerða til að ná skuldbindingum sínum samkvæmt LULUCF-reglunum. Sá kostnaður leiðir þó af grunnreglugerðinni en ekki þessari framkvæmdarreglugerð. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Reglugerðin hefur fyrst og fremst tæknilegt hlutverk og felur ekki í sér nýjar efnislegar skuldbindingar umfram þær sem leiða af reglugerð (ESB) 2018/841, eins og henni var breytt með reglugerð (ESB) 2023/839. Hún ákveður árleg viðmiðunarmörk fyrir nettóbindingu gróðurhúsalofttegunda á árunum 2026–2029 sem notuð verða við mat á því hvort aðildarríki uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt LULUCF-reglunum. Reglugerðin er merkt sem EES-tæk og þarf því að taka hana upp í EES-samninginn áður en hún verður bindandi gagnvart Íslandi. Innleiðing hennar er háð því að breytingar á reglugerð (ESB) 2018/841 samkvæmt reglugerð (ESB) 2023/839 verði einnig teknar upp í EES-samninginn. Reglugerðin felur hvorki í sér nýjar skýrslugjafarskyldur né nýtt stjórnsýslukerfi heldur útfærir framkvæmd gildandi reglna með því að ákveða árleg viðmiðunarmörk. Áhrif á stjórnsýslu eru því talin lítil. Nauðsynlegt verður að uppfæra innri útreikninga og eftir atvikum stjórnsýslugögn sem byggja á árlegum viðmiðunarmörkum, en reglugerðin felur ekki í sér nýtt eftirlits- eða skýrslugjafarkerfi. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R0893 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/893, 27.4.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
