D112360/02

Commission Implementing Regulation (EU) …/... amending Implementing Regulation (EU) No 686/2012 as regards the allocation to Member States, for the purposes of the renewal procedure, of the evaluation of metconazole and quinolin-8-ol


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Tillaga ESB sem gæti verið EES-tæk
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með þessari reglugerð er framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 686/2012 breytt á þann hátt að á eftir línunni fyrir metalaxýl-M í E-hluta viðaukans við reglugerðina bætist við lína sem sýnir að Svíþjóð verður skýrslugjafaraðildarríki og Belgía meðskýrslugjafaraðildarríki fyrir metkónasól. Enn fremur bætist við á eftir línunni fyrir pýriproxýfen lína sem sýnir að Holland verður skýrslugjafaraðildarríki og Belgía meðskýrslugjafaraðildarríki fyrir 8-hýdroxýkínólín.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Með framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 686/2012 er mati á nokkrum virkum efnum úthlutað til aðildarríkja og skýrslugjafaraðildarríki og meðskýrslugjafaraðildarríki fyrir hvert virkt efni eru tilgreind. Með þessari reglugerð er framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 686/2012 breytt á þann hátt að úthlutað er til aðildarríkja mati á virku efnunum metkónasóli og 8-hýdroxýkínólíni. Ekkert aðildarríki var tilnefnt sem skýrslugjafaraðildarríki og meðskýrslugjafaraðildarríki fyrir þessi virku efni þar til nú.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur.
Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Engin áhrif.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D112360/02
Dagsetning tillögu