32020R1149

Commission Regulation (EU) 2020/1149 of 3 August 2020 amending Annex XVII to Regulation (EC) No 1907/2006 of the European Parliament and of the Council concerning the Registration, Evaluation, Authorisation and Restriction of Chemicals (REACH) as regards diisocyanates


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1149 frá 3. ágúst 2020 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi díísósýanötum) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH))
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 028/2021
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin bætir díísósýanötum á skrá í XVII. viðauka við REACH til að bregðast við þeim heilsufarsvanda sem tilvist efnanna í ýmsum vörum s.s. froðum, þéttiefnum og húðunarefnum skapar fyrir starfsfólk sem vinnur með slíkar vörur.

Nánari efnisumfjöllun

Díísósýanöt eru fyrir hendi í ýmsum efnavörum. Tekin hafa verið saman gögn í samræmi við XV. viðauka við REACH sem benda til að váhrif bæði um húð og við innöndun leiði til vinnutengds astma í fólki sem notar efnavörur sem innihalda efnin við störf sín.

Í ljósi þessa miðar takmörkunin sem bætt er við XVII. viðauka með þessari reglugerð að því að draga úr notkun efnanna og váhrifum þeirra á starfsfólk með því að notkun efnanna í atvinnustarfsemi verði einangruð við aðstæður þar sem gerðar eru ráðstafanir til að draga úr hættunni og starfsfólk hefur hlotið þjálfun.

Takmörkunin verður nýr liður (nr. 74) í XVII. viðauka.

Takmörkunin gerir það að verkum að auk innleiðingar gerðarinnar sjálfrar með tilvísun getur reynst nauðsynlegt fyrir íslensk stjórnvöld að setja ákvæði í reglugerð um hvaða kröfur séu gerðar til þjálfunar starfsfólks sem vinnur með efni sem falla undir takmörkunina.

Reglugerðin tók gildi í ESB 23. ágúst 2020 en fyrstu ákvæði takmörkunarinnar koma til framkvæmda 24. febrúar 2022.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf ákvæði gerðarinnar með breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH). Lagastoð er í 1. tl. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Auk þess að innleiða ákvæði gerðarinnar sjálfrar með tilvísunaraðferð gæti reynst nauðsynlegt að útlista nánar í texta reglugerðarinnar kröfur um fyrirkomulag þeirrar þjálfunar sem krafist er í nýju takmörkuninni.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Hvort og þá hvaða aukakostnaður fylgir innleiðingu gerðarinnar veltur á því fyrirkomulagi sem mælt verður fyrir um varðandi þjálfunina sem krafist er í takmörkuninni.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R1149
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 252, 4.8.2020, p. 24
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D064662/04
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 3, 11.1.2024, p. 56
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/12, 11.1.2024

Staða innleiðingar samkvæmt ESA