Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið er að bæta og samræma kröfur sem gerðar eru til afgreiðslu á jörðu, e. ground handling.Efnisútdráttur: Gildissvið reglugerðarinnar nær aðeins til flugrekenda í áætlunarflugi með flókin vélknúin loftför sem sinna sjálfir afgreiðslu á jörðu, e. self-handling. Í grófum dráttum má segja að loftför sem flokkast sem flókin loftför uppfylli nokkur skilyrði, þar á meðal að vera þyngri en 5,7 tonn, taka fleiri farþega en 19, vera með upp draganlegan lendingarbúnað, að hægt sé að breyta afstöðu hreyfla í vélum auk annarra atriða.Í reglugerðinni er kveðið á um breytingar á ákvæðum reglugerðar (ESB) 965/2012 um afgreiðslu á jörðu. Stefnt er að því að samræma og skýra reglur um öryggi og ábyrgð í flugafgreiðslu, hvort sem flugrekendur sjá um hana sjálfir eða hafa gert samningi við utanaðkomandi aðila.Nýjar kröfur eru gerðar um upplýsingagjöf vegna afgreiðslu á jörðu, þ.e. flugrekendum er með reglugerðinni gert skylt að upplýsa þá sem sinna afgreiðslunni um aðgerðir sem þeir grípa til vegna frávika sem síðan geta haft áhrif á öryggi í afgreiðslunni (ORO.GEN.150(d)).Með gerðinni eru settar reglur um verklag í afgreiðslu á jörðu þar sem flugrekendum er gert að tryggja að afgreiðslan sé gerð af aðila sem hefur réttindi til að sinna afgreiðslu á jörðu eða með eigin afgreiðslu, e. self-handling, samningsbundnir aðilar skul fara eftir verklagi flugrekanda nema hann samþykki annað verklag.Þá eru gerðar nýjar kröfur til flugrekenda þar sem gerð er sú krafa að flugrekendur sem sjálfir sinna flugafgreiðslu þurfi að uppfylla kröfur í reglugerð (ESB) 2025/20 og að þjálfunaráætlun starfsfólks verði send til yfirvalda. Gerð er krafa um að þjálfunaráætlun vegna meðhöndlunar hættulegs varnings þurfi formlegt samþykki skv. ORO.GEN.110. Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif á Samgöngustofu: Mestu breytingar sem reglugerðin mun hafa í för með sér verða fyrir flugrekendur í áætlunarflugi með flókin vélknúin loftför sem sinna sjálfir flugafgreiðslu.Einnig þarf Samgöngustofa að þjálfa eftirlitsmenn, útfæra eftirlitsáætlanir, uppfæra verklagsreglur og gátlista og framfylgja reglugerðinni.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 152. og 200. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Innleiðing verði með breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.Mat eða tilgreining á kostnaði Samgöngustofu: Reiknað er með 100 klst. í þjálfun, uppfærslu verklagsreglna, gátlista og í að framfylgja reglugerðinni. Kostnaður óverulegur.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Flugrekendur og flugafgreiðsluaðilarHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei