Tillaga að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um uppfærslu ETS-kerfisins til að styrkja samkeppnishæfni og stuðla að kostnaðarhagkvæmum losunarskerðingum - COM(2026) 616
Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council amending Directive 2003/87/EC and Decision (EU) 2015/1814 as regards driving competitiveness and cost-effective decarbonisation
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga ESB sem er merkt EES-tæk |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tillagan felur í sér umfangsmikla endurskoðun á ETS-kerfinu fyrir tímabilið eftir 2030. Aðdragandi hennar er einkum nýtt loftslagsmarkmið ESB fyrir árið 2040 og þörf á að aðlaga ETS að áframhaldandi samdrætti í losun á leið að loftslagshlutleysi árið 2050. Jafnframt er lögð rík áhersla á að viðhalda samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs og tryggja að umbreytingin yfir í kolefnishlutlaust hagkerfi náist með sem hagkvæmustum hætti.Eitt af meginmarkmiðum tillögunnar er að styrkja hvata til fjárfestinga í aðgerðum og tækni sem draga úr losun. Í því skyni eru m.a. lagðar til breytingar á reglum um endurgjaldslausa úthlutun losunarheimilda og skilyrði hennar, auk þess sem stærri hluta verðmæta innan ETS-kerfisins verður beint að fjárfestingum í lausnum sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Tillagan miðar þannig að því að ETS gegni í auknum mæli tvíþættu hlutverki, annars vegar með verðlagningu losunar og hins vegar með því að beina fjármagni með markvissari hætti að lausnum sem stuðla að samdrætti í losun og umbreytingu atvinnulífsins.Tillagan felur jafnframt í sér breytingar sem eiga að ýta undir notkun lausna sem draga úr losun, svo sem föngun, nýtingu og varanlega geymslu CO₂ og aukna notkun sjálfbærs eldsneytis. Reglur um föngun, nýtingu og geymslu CO₂ eru rýmkaðar og skýrðar og gert er ráð fyrir að varanleg kolefnisbinding geti að takmörkuðu leyti verið nýtt innan ETS. Þá er gildissvið ETS einnig víkkað. Losun frá brennslu sveitarfélagaúrgangs verður felld inn í kerfið og breytingar eru gerðar á gildissviði þess gagnvart flugi og siglingum. Í flugi er gert ráð fyrir að fleiri flugferðir frá EES til þriðju ríkja falli undir ETS frá 2029, þó með tilteknum tímabundnum undanþágum, og undanþágur fyrir minni flugrekendur eru þrengdar. Í sjóflutningum er gildissviðið einnig víkkað til fleiri skipa og gerðar breytingar sem miða að því að draga úr hættu á sniðgöngu skipafélaga og aðlaga kerfið að þróun alþjóðlegra aðgerða á sviði sjóflutninga.
Nánari efnisumfjöllun
1. gr. Breytingar á ETS-tilskipun 2003/87/EC 1.1 Breyting á 2. gr. – Áframhaldandi þáttaka stöðva sem hafa möguleika á að falla utan ETSStarfsstöð sem hefur fallið undir ETS vegna brennslu eldsneytis hefur nú valmöguleika á að falla áfram undir kerfið í tvö fimm ára tímabil í stað eins fimm ára tímabils eftir að núverandi tímabili líkur þrátt fyrir aðgerðir þar sem afl er minnkað þannig að það sé undir 20 MW þröskuldinum. 1.2 Breyting á 3. gr. – Nýjar og breyttar skilgreiningar Breytingar á skilgreiningakafla tilskipunarinnar til að ná yfir allar breytingar sem hafa átt sér stað, bætt er við sumar skilgreiningar svo þær nái til víðari hóps en í öðrum tilfellum eru teknar út skilgreiningar sem ekki eiga við lengur.Bætt er við skilgreininguna „starfsstöð“ svo hún nái einnig yfir innviði sem flytja CO2 til niðurdælingar og geymslu. Bætt er við skilgreininguna á „nýjum aðila“ svo það taki einnig til starfsemi og gastegundir sem aðildarríkin ákveði að fella undir ETS og ekki er talið upp í ANNEX I. Bætt hefur verið við skilgreininguna „flugrekandi“ svo hún geti einnig náð til aðila sem greiðir flugleiðsluþjónustugjöld og tekin er út skilgreining fyrir rekstraraðila atvinnuflugsSkilgreining fyrir viðkomuhöfn er skipt upp í tvo liði þar sem liður (i) bætir inn skilgreiningu viðkomuhafnar fyrir skip sem framkvæma eða styðja starfsemi í tengslum við vinnusvæði á hafi úti. Nýjum skilgreiningum er bætt við vegna eftirfarandi: hættulegs úrgangs, úrgangs sveitafélaga, tilbúins eldsneytis, starfsemi á hafi úti, vinnusvæði á hafi úti og viðkskiptaflugs. 1.3 Breyting á 3. gr. c. – Breytingar á stuðningskerfi vegna notkunar á flugeldsneyti Ákvæðið endurskoðar stuðningskerfi 3. gr. c(6) fyrir notkun sjálfbærs flugvélaeldsneytis. Allt að 20 milljón losunarheimildir verða áfram teknar frá fyrir tímabilið 2024–2030 til að mæta hluta af verðmuninum á jarðefnaeldsneyti og sjálfbæru flugvélaeldsneyti. Skýrari tenging er gerð við reglugerð (ESB) 2023/2405 (ReFuelEU Aviation) við afmörkun þess eldsneytis sem getur notið stuðnings.Stuðningshlutföll eru jafnframt endurskoðuð og almennt lækkuð. Stuðningur vegna háþróaðs lífeldsneytis verður 50% af eftirstandandi verðmun og vegna endurnýjanlegs vetnis og endurnýjanlegs eldsneytis af ólífrænum uppruna (RFNBO) 60%. Fyrir annað eldsneyti sem getur notið stuðnings verður stuðningurinn 30% til ársloka 2029. Á tilteknum litlum eyjum og ystu svæðum sambandsins getur stuðningurinn áfram numið 100% af verðmuninum. Þá getur stuðningshlutfall vegna tiltekinna eldsneytistegunda hækkað um 10 prósentustig ef hráefni þeirra á uppruna í EES, ríki með viðskiptakerfi tengt EU ETS eða ríki sem tekur þátt í fyrirkomulagi samkvæmt nýrri 25. gr. b. Frá 2027 verður stuðningskerfið einnig látið ná til raforkunotkunar raf- og tvinnflugvéla. Þá verður aukinn sveigjanleiki þegar ekki er unnt að rekja styrkhæft flugvélaeldsneyti með beinum hætti til tiltekinnar flugferðar, þannig að heimilt verður að miða úthlutun losunarheimilda við styrkhæft flugvélaeldsneyti sem tekið er um borð innan EES, í hlutfalli við losun þeirra flugferða rekstraraðilans sem falla undir skilaskyldu samkvæmt ETS. Viðskiptaflug verður þó undanskilið þessum almenna eldsneytisstuðningi og sérstakar reglur munu gilda um stuðning við raf- og tvinnflugvélar.Jafnframt er leitast við að skapa meiri fyrirsjáanleika fyrir framleiðendur og kaupendur sjálfbærs flugvélaeldsneytis. Flugrekandi sem gerir bindandi langtímasamning um eldsneytiskaup til a.m.k. þriggja ára getur fengið heimildir teknar frá vegna verðmunarins í allt að fimm ár. Alls mega slíkar fráteknar heimildir þó ekki nema meira en 10 milljónum.Hluti frátekinna heimilda verður einnig nýttur til að draga úr loftslagsáhrifum flugslóða. Allt að 3 milljónir heimilda til ársloka 2033 geta verið nýttar í þeim tilgangi, m.a. til flugrekenda sem samþætta viðurkennd spálíkön um myndun flugslóða í flugáætlanagerð og nota mæld fluggögn við skýrslugjöf um önnur loftslagsáhrif flugs en CO₂.Framkvæmdastjórnin skal fyrir 1. júlí 2032 meta framkvæmd stuðningskerfisins og getur á grundvelli matsins lagt fram tillögu um áframhaldandi stuðning til 2040. Samhliða er undanþága fyrir flug milli ystu svæða sambandsins og annarra flugvalla innan sama aðildarríkis framlengd til ársloka 2035. 1.4 Breyting á 3. gr. ga. – Breytingar á gildissviði varðandi sjóflutninga Breytingar eru gerðar á 1. mgr. 3. gr. ga til að útvíkka og skýra gildissvið ETS varðandi aflandssiglingar og aflandsstarfsemi. Skip sem stunda aflandsstarfsemi falla undir ETS ef þau framkvæma eða styðja við aflandsstarsfemi sem tengist aflandsstarfsstöð sem er staðsett í landhelgi, efnahagslögsögu, landgrunni eða landgrunnssævi aðildarríkis. Ef skip stundar starfsemi sem tengist aflandsstarfsstöð sem er ekki staðsett á fyrrgreindum stöðum fellur losun sem á sér stað á ferðum skipsins ekki undir gildissvið ETS. Skipafélög hafa skyldu til að skila losunarheimildum vegna skipa sem stunda slíka starfsemi vegna:Helmings losunar sem slíkt skip losar á milli hafnar aðildarríkis og hafnar þriðja ríkis,Allrar losunar sem slíkt skip losar ef það heldur frá og kemur til hafnar aðildarríkis,Allrar losunar sem slíkt skip losar innan hafnar aðildarríkis ef losunin er nátengd framkvæmd eða stuðningi við aflandsstarfsemi sem um hér getur.Til að draga úr forðunaráhrifum ETS eru skilyrði hafna utan EES til að vera settar á lista yfir umskipunarhafnir (e. transhipment ports) útvíkkuð. Framkvæmdastjórn ESB skal gefa út lista yfir umskipunarhafnir utan EES, þar sem viðkoma skips í höfn telst ekki vera viðkomuhöfn í skilningi ETS, árlega, en ekki á tveggja ára fresti eins og áður. Hafnir innan við 150 sjómílur frá EES-höfn þar sem dráttarlengd er meiri en 11 m og bryggjulengd meira en 250 metrar og hægt er að stunda umskipun eða þar sem umskipun staðlaðra 20 feta gáma er meira en 50% af heildarumferð um höfnina, falla nú undir umskipunarhafnir í þessum skilningi. Á listanum skulu ekki vera hafnir innan ríkja sem eru með sambærilegar ráðstafanir við ETS og við það hefur verið bætt hafnir í þriðju ríkjum þar sem ETS-tengslasamningur (e. ETS linking agreement) er til staðar. Breytingar á 3. mgr. felast annars vegar í því að losunarheimildum, sem jafngilda 3,5% af þeim losunarheimildum sem bætt er við vegna sjóflutninga, sem úthlutað er til ríkja sem hafa fleiri en 15 skipafélög á ábyrgð sína á hverja milljón íbúa (miðað við 2018-2020), skal áfram úthlutað til þessara ríkja til uppboðs til 2038 en ekki 2030 líkt og stóð áður. Hins vegar eru gerðar breytingar á næstsíðustu setningu málsgreinarinnar, sem segir í hvað tekjur af losunarheimildunum skulu notaðar í, með vísunum í tiltekna liði í 3. mgr. 10. gr. tilskipunarinnar. Tekjurnar skulu m.a. nýttar í samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, skógrækt og tækniþróun varðandi orkunýtni og hreina tækni í þeim geirum sem falla undir ETS.Nýrri 4. mgr. er bætt við greinina sem segir að framkvæmdastjórn ESB geti notað uppboðstekjur frá að hámarki hálfa milljón losunarheimilda til fjármögnunar á innleiðingu kerfa í tengslum við sjóflutninga undir ETS. 1.5 Ný 3. gr. gaa. – Nýtt stuðningskerfi fyrir sjálfbæra orkunotkun í sjóflutningum Nýrri 3. gr. gaa er bætt við sem fjallar um notkun losunarheimilda til stuðnings við skipafélög sem notast við sjálfbært skipaeldsneyti og tækni sem losar ekki gróðurhúsalofttegundir. Um er að ræða stuðning á formi losunarheimilda, svipað og SAF-stuðningskerfið fyrir flugrekendur.Samkvæmt 1. mgr. verða, frá 1. janúar 2028, eða fyrsta árinu eftir að tillagan tekur gildi, til 31. desember 2040, teknar frá að hámarki 110 milljónir losunarheimilda fyrir stuðningskerfið. 2. mgr. telur upp hvers konar eldsneyti telst vera sjálfbært skipaeldsneyti. Stuðningurinn verður einnig í boði fyrir skip sem falla undir ETS og eru minni en 5000 brúttótonn. Stuðningurinn skal vera í boði fyrir skipafélög sem stunda starfsemi sem fellur undir ETS og aðildarríki skulu úthluta losunarheimildum sem hafa verið teknar frá til að ná utan um hluta eða allan aukakostnað vegna notkunar sjálfbærs skipaeldsneytis í stað hefðbundis eða vegna uppsetningar og notkunar tækni sem losa ekki gróðurhúsalofttegundir. Framkvæmdastjórnin skal ákvarða þennan kostnað á áreiðanlegum gögnum og birta í lögbirtingarfélagi sambandsins (e. Official Journal of the European Union) meðalkostnaðarmun á hefðbundnu og sjálfbæru skipaeldsneyti ársins áður árlega og meðalkostnað við samdrátt losunar með notkun tækni sem losar ekki gróðurhúsalofttegundar á þriggja ára fresti.Aðildarríki skulu tryggja að sjálfbært skipaeldsneyti og tækni sem losar ekki gróðurhúsalofttegundir uppfylli upprunakröfur, þ.e. að hafa verið framleitt á EES svæðinu eða í þriðja ríki sem hefur ETS-tengslasamning við sambandið eða í þriðja ríki sem sambandið veitir stuðning til framkvæmdar áhrifaríks viðskiptakerfis um losun gróðurhúsalofttegunda. Ekki þarf að framkvæma þessa upprunaathugun vegna skipaeldsneytis sem notað er á milli hafnar aðildarríkis og ákveðinna hafna sem settar verða fram í framkvæmdareglugerð í samræmi við 8. mgr. Þær hafnir taka þátt í grænum skipaflutningaleiðum í samstarfi við aðrar hafnir í aðildarríkjum.Í 9. mgr. kemur fram hversu mikill stuðningurinn skal vera, en hann verður frá 55-90% eftir eldsneyti og tækni. Þar koma einnig fram ákveðin atvik þar sem endurgreiðslan í formi losunarheimilda er aukin. Skipafélög geta fengið aukinn stuðning vegna notkunar sjálfbærs skipaeldsneytis og notkunar tækni sem losar ekki gróðurhúsalofttegundir í eftirfarandi tilvikum:Ef ferð er á milli EES-hafnar og EES-hafnar á eyju, og það þarf að skila losunarheimildum vegna ferðarinnar, er styrkurinn aukinn um 5 prósentustig.Hér þarf að skoða hvort þetta gildi um sjóferðir sem eru á milli Íslands og annarra EES-ríkja þar eð Ísland er eyja.Ef sjálfbæra skipaeldsneytið er framleitt úr hráefnum sem eru framleidd innan EES eða í þriðja landi sem er með ETS-tengslasamning eða fær styrk frá sambandinu til framkvæmdar viðskiptakerfis, eykst styrkurinn um 10 prósentustig.Ef tækni sem losar ekki gróðurhúsalofttegundir hefur verið sett í skipið í slipp í EES, eykst styrkurinn um 5 prósentustig.Ef sjálfbæra skipaeldsneytið eða tæknin sem losar ekki gróðurhúsalofttegundir er notað á ferð á milli EES hafnar og hafnar í þriðja ríki skal margfalda styrkinn með 50%, í samræmi við að aðeins þarf að skila losunarheimildum vegna 50% losunar ferðarinnar.Skipafélög geta sótt um styrk á formi losunarheimilda árlega og ef á ákveðnu ári eftirspurnin er meiri en þær losunarheimildir sem eru í boði, skal draga úr úthlutun í jöfnu hlutfalli til allra skipafélaga það ár.Aðildarríki þurfa að tryggja sýnileika fjármögnunar undir þessari grein í samræmi við 30. gr. m um upplýsingar, samskipti og kynningu.Framkvæmdastjórnin getur gefið út reglugerðir til að útfæra nánar ýmis atriði sem tengjast þessari grein, svo sem um útreikninga á verðmuni og vöktun og skýrslugjöf. Framkvæmdastjórnin skal sömuleiðis meta beitingu þessarar greinar í árlegri skýrslu sinni frá 1. janúar 2032. 1.7 Breyting á 3. gr. gg. – Samspil sjóflutninga í ETS við alþjóðlegt kerfi IMO og skýrslugjöf framkvæmdarstjórnarinnar Í fyrsta lagi er skýrt tekið fram með breytingum á c-lið 1. mgr. að komið skal í veg fyrir tvígreiðslur á milli ETS og mögulegs sambærilegs kerfis sem Alþjóðasiglingastofnunin (e. IMO).Aðrar breytingar á greininni fjalla um innihald og tímasetningar skýrslugjafar framkvæmdastjórnarinnar um virkni og árangur ETS. 1.8 Breyting á 4. gr. – Losunarleyfi fyrir rekstraraðila undir 27. gr. a.Lagt er til að 4. gr. tilskipunarinnar verði breytt þannig að undanþága frá skyldu til að hafa losunarleyfi taki einnig skýrt til stöðva og eininga sem eru undanskildar ETS samkvæmt 27. gr. a. Breytingin er fyrst og fremst tæknileg samræming, þar sem 27. gr. a heimilar þegar undanþágu fyrir stöðvar með mjög litla losun og tilteknar vara- og neyðareiningar. 1.9 Breyting á 6. gr. – Skýrari reglur um veitingu, stöðvun og afturköllun losunarleyfa Breytingar á 6. gr. veita framkvæmdarstjórninni heimildir til að setja nýjar eða skýrari reglur um veitingu, stöðvun og afturköllun losunarleyfa með aukinni valdheimild til lögbærs stjórnvalds.Þá er sérstakri reglu bætt við sem kveður á um að ef fyrsta losunarleyfi starfsstöðvar er afturkallað og henni síðar veitt nýtt leyfi á sama fimm ára úthlutunartímabili, skuli hún ekki falla aftur undir ETS fyrr en við upphaf næsta úthlutunartímabils. 1.11 Ný 6. gr. a. – Lögbært stjórnvald vegna flutninga á CO₂ milli landa CO2 flutningsinnviðir féllu undir ETS kerfið 2023 en þróun þessarar starfsemi hefur sýnt fram á flækjustig þegar kemur að því að skipa lögbært stjórnvald í tilvikum flutninga yfir landamæri. Það er því nauðsynlegt, til að tryggja skýrleika og þar með flýta fyrir leyfisveitingum, að setja skýra reglu um hvaða aðildaríki ætti að vera lögbært stjórnvald í tilfelli flutnings yfir landamæri. Því hefur nýrri 6a. gr. verið bætt við:1. Lögbært stjórnvald vegna CO2 flutningsinnviða skal vera stjórnvald þess aðildarríkis þar sem flutt CO2 er fangað. Þar sem CO2 er fangað utan EES skal lögbært yfirvald vera lögbært yfirvald fyrsta aðildarríkið á flutningsleiðinni. 2. Lögbær stjórnvöld skv. 1. mgr. og lögbær stjórnvöld í flutnings- eða móttökuaðildarríkjum skulu skiptast á upplýsingum sem mikilvægar eru fyrir samþykki á vöktunaráaætlunum og vottunum losunarskýrsla vegna CO2 flutningsinnviða. 1.12 Breyting á 9. gr. – Fjöldi útgefinna losunarheimildaGerðar eru breytingar á 9. gr. tilskipunarinnar sem fjallar um fjölda útgefinna losunarheimilda. Þær losunarheimildir sem bætt er við vegna útvíkkunar ETS til annarra gróðurhúsalofttegunda en koltvísýrings, aflandsskipa og minni skipa skulu vera aðgengilegar til stuðnings við nýsköpun í samræmi við 3. gr. gaa um stuðningskerfi fyrir sjálfbærari sjóflutninga.Sömuleiðis mun fjöldi losunarheimilda aukast vegna útvíkkunar gildissviðs ETS til sorpbrennslu um ákveðinn fjölda losunarheimilda á ári frá 2031-2034.Línulegur samdráttarstuðull tekur breytingum, hann verður 3,7% 2031-2035 og 1,7% frá 2036. Lækkun samdráttarstuðulsins er til að samdráttur losunar innan ETS sé í samræmi við markmið sambandsins um 90% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda 2040 miðað við 1990.Framkvæmdastjórnin mun birta fjölda losunarheimilda fyrir september 2028. 1.13 Ný 9. gr. b. og c. – Fjármögnun fyrir kaup á alþjóðlegum heimildum og varanlegum kolefnisbindingareiningum innan EES9. gr. b – alþjóðlegar kolefniseiningarFrá 2036–2040 getur ESB notað allt að 260 milljón ETS-heimildir til að fjármagna kaup á allt að 260 Mt af hágæða alþjóðlegum kolefniseiningum. Þær þurfa að uppfylla þær gæðakröfur sem leiða af reglugerð (ESB) 2021/1119 og reglum tengdum Parísarsamningnum.Fyrir 31. janúar 2033 á framkvæmdastjórnin að meta hvort nægilegt framboð sé af hágæða og traustum alþjóðlegum einingum. Hún á m.a. að skoða tvítalningu, markaðsframboð, samkeppnishæfni ETS-geira, hættu á kolefnisleka og hættuna á að notkun eininganna dragi úr hvata til eigin losunarsamdráttar.Ef matið leiðir í ljós að áætlunin um alþjóðlegar kolefniseiningar gengur ekki upp skal línulegi samdráttarstuðullinn hækka úr 1,7% í 2,7% frá 2036, þannig að meiri losunarsamdráttur verði tryggður innan ETS. Þá skulu þær losunarheimildir sem teknar hafa verið til hliðar fyrir kaup á alþjóðlegum kolefniseiningum úthlutað til Afkolefnisvæðingarsjóðs iðnaðarins (e. Industrial Decarbonisation Bank).9. gr. c. - varanleg kolefnisfjarlægingGert er ráð fyrir að heildarmagn losunarheimilda innan ETS verði aukið um 250 milljón heimildir á tímabilinu 2031–2040. Framkvæmdastjórnin skal bjóða heimildirnar upp og nýta uppboðstekjurnar til kaupa á samsvarandi magni vottaðra eininga fyrir varanlega kolefnisfjarlægingu sem verða til með BioCCS- og DACCS-verkefnum samkvæmt reglugerð (ESB) 2024/3012. Þetta úrræði felur því í sér nýtt kerfi þar sem varanleg kolefnisfjarlæging verður notuð til að skapa aukið svigrúm innan ETS, einkum fyrir starfsemi þar sem erfitt er að draga frekar úr losun. Hins vegar ef rekstraraðilar nýta eigin BioCCS-kolefnisfjarlægingu til að vega á móti losun samkvæmt 14. gr. 1a skal draga samsvarandi magn frá fyrirhuguðum kaupum framkvæmdastjórnarinnar á kolefnisfjarlægingareiningum og fella niður jafnmargar af þeim 250 milljónum viðbótarheimilda sem stofnaðar eru samkvæmt ákvæðinu.Úrræðið gæti skapað tækifæri fyrir íslensk BioCCS- og DACCS-verkefni til að framleiða vottaðar kolefnisfjarlægingareiningar sem framkvæmdastjórnin myndi kaupa samkvæmt ákvæðinu. Þá þyrfti Ísland að beita sér fyrir upptöku reglugerðar (ESB) 2024/3012 í EES-samninginn. 1.14 Breyting á 10. gr. – Ráðstöfun ríkja á uppboðstekjumGreinin breytir 10. gr. varðandi uppboðsmagn ríkja og ráðstöfun ríkja á uppboðstekjum.Breytingartillagan endurskilgreinir uppboðsmagn aðildarríkja með tilliti til nýrra sjóða og kerfa samkvæmt tillögunni. Hlutur heimilda sem aðildarríkin bjóða upp mun t.a.m. aukast eftir því sem endurgjaldslaus úthlutun til CBAM-geira minnkar samkvæmt CBAM-stuðlinum. Að minnsta kosti 57% af þeim heimildum sem eftir standa eftir að heimildir hafa verið teknar frá vegna tiltekinna kerfa og sjóða skulu boðnar upp af aðildarríkjunum. Þar undir falla m.a. heimildir sem ætlaðar eru til:Stuðnings við notkun á sjálfbæru skipaeldsneyti (lífgas, háþróað lífeldsneyti, RFNBO, lágkolefnis vetni) og núlllosunar knúningstækni (e. zero-emission propulsion technology).Afkolefnisvæðingu sjóflutninga í ákveðnum þróunarríkjum.Varanlegrar kolefnisfjarlægingu innanlands (e. domestic permanent carbon removal)Afkolunarsjóðs iðnaðarins (e. Industrial decarbonisation bank)Þá eru gerðar sértækar breytingar á viðbótarheimildum til tiltekinna ESB ríkja sem munu ekki hafa áhrif á Ísland.Tillagan gerir víðtækar breytingar á því hvernig lágmarkshluta uppboðstekna ríkja skal varið til loftlags- og afkolunarverkefna þar sem tekjur af sölu losunarheimilda er lykil fjármögnunarleið fyrir græn orkuskipti og skal tekjunum varið á stefnumiðaðan hátt í aðgerðir sem flýta afkolun og auka samkeppnishæfni iðnaðarins. Aðildarríkin hafa þurft að nota allar sínar ETS tekjur síðan 2023 í loftslags- og orkuaðgerðir, en þetta á þó ekki við um Ísland vegna aðlögunar í JCD nr. 335/2023 þar sem segir að 3. mgr. 10. gr. skuli ekki gilda fyrir EFTA-ríkin. Núverandi útgjaldamynstur ríkja sýna þó annmarka á notkun teknanna og hefur losun frá iðnaði fengið of litla fjármögnun þrátt fyrir að standa fyrir stórum hluta losunar ESB. Einnig er talið að sumar fjárfestingar grafi undan loftslagshlutleysi með því að viðhalda þörf fyrir kolefnisfreka tækni. Afkolun í iðnaði mun krefjast rafvæðingar þar sem nú er notað jarðefnaeldsneyti og þarf að setja fjárfestingar í orkukerfum sem brýnt forgangsverkefni. Því er lagt til með breytingunni að aðildarríkin skuli nota að minnsta kosti 50% uppboðstekna sinna til að styðja við afkolun / afvæðingu kolefniseldsneytis í ETS geirum vegna eftirfarandi tilgangs: Til að draga úr losun og aðlagast loftslagsbreytingum, t.d. með því að leggja sitt af mörkum:til Alþjóðasjóðs orkunýtingar (Global Energy Efficency) til sjóðs endurnýjanlegrar orku (Renewable energy fund) til aðlögunarsjóðsins (adaptation fund)til að fjármagna rannsóknir, þróun og verkefnimeð þátttöku í verkefnum innan ramma Evrópsku stefnumótandi orkutækniáætlunarinnar og Evrópskra tæknivettvanga.Til að þróa hreina orku, raforkugeymslu, og dreifingu raforku, sérstaklega í iðnaðarklösum í ljósi aukinnar raforkuþarfar frá afkolunarverkefnum í iðnaði svo hægt sé að uppfylla skuldbindingar um orkunýtni.Til að fjármagna í afkolun iðnaðar, t.d.. með fjárfestingum í rafvæðingu iðnaðar, hreinnar iðnaðarframleiðslutækni, föngun, notkun og geymslu koldíoxíðs og þróun á CO2 flutningsinnviðum. Aðgerða til að afkolefnisvæða sjóflutninga (maritime sector), þ.á.m. orkunýtni skipa, hafna og nýsköpunartækni. Innviði, rafvæðingu, sjálbæru eldsneyti sem og knúningstækni án losunar (e. zero emission propulsion technology).Aðgerða til að afkolefnisvæða flugrekstur, þ.á.m. rafvæðingu og aðgerðir til að minnka loftslagsáhrif flugs og auka framleiðslu á kolefnissnauðu og kolefnislausu eldsneyti sem og aðgerðir við afkolun flugvalla. Forvarnir gegn úrgangi, undirbúningur fyrir endurnýtingu, aðskilin söfnun, flokkun og endurvinnsla.Aðgerða til að draga úr losun frá ETS geirumStuðnings við þróum leiðandi markaða fyrir kolefnissnauðar vörur, lífrænan áburð, lífrænt eldsneyti eða grænt stálTilskipunin listar upp það sem aðildarríkin geti notað restina af tekjum sínum í en bætt er við að þau geti einnig notað þær í fjárfestingar til að draga úr losun í landbúnaði sem tengist skilvirkari notkun áburðar, styðja notendur við að taka upp lífrænan áburð og til að aðlagast áhrifum loftlagsbreytinga.Þá skulu aðildarríkin greiða út tekjur sínar eigi síðar en á þriðja ári eftir myndunarár. Notkun þeirra skal ekki framlengja notkun jarðefnaeldsneytis í orkuframleiðslu og skal vera í samræmi við umskipti yfir í öruggt og sjálfbært lágkolefnishagkerfis, markmið stefnuramma Sambandsins í loftslags-og orkumálum fyrir 2040 og markmið um loftslagshlutleysi skv. reglugerð (ESB) 2021/1119. Aðildarríkin skulu skila inn viðeigandi gögnum í skýrslu skv. 21. gr. ETS tilskipunarinnar og skal framkvæmdastjórnin gefa út skýrslu um virkni evrópska kolefnismarkaðarins innan 6 mánaða frá skilum ofangreindra gagna. Þar sem aðildarríki hefur ákveðið að veita viðbótarstuðning (top up) í gegnum ETS-kerfi sem nota losunarheimildir, þá má ríkið halda áfram að veita þann stuðning með því að selja ekki á uppboði ákveðinn fjölda losunarheimilda, heldur ráðstafa þeim til stuðningsins með sama hætti og áður. 1.15 Breyting á 10. gr. a. – Breytingar á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda Tillagan felur í sér verulegar breytingar á því hvernig tekjur og heimildir innan ETS-kerfisins verða nýttar til að hraða afkolefnisvæðingu í iðnaði. Sérstök áhersla er lögð á að tengja úthlutun endurgjaldslausra heimilda betur við raunverulegar fjárfestingar til að minnka losun.Breyting á 1. mgr. a. 10. gr. a. breytir reglum um niðurfellingu endurgjaldslausrar úthlutunar til geira sem falla undir CBAM. Samkvæmt tillögunni verður niðurfellingunni seinkað þannig að endurgjaldslaus úthlutun fellur ekki að fullu niður fyrr en árið 2038, í stað 2034 samkvæmt núgildandi reglum. Markmiðið er að veita evrópskum framleiðendum lengra aðlögunartímabil á meðan CBAM tekur að fullu við hlutverki kolefnislekaverndar. Þá eru settar sérstakar reglur um stigvaxandi niðurfellingu endurgjaldslausrar úthlutunar fyrir vörur sem síðar kunna að bætast við CBAM. Breyting á 2. mgr. 10. gr. a. felur í sér að viðmiðunargildi (e. benchmarks) fyrir endurgjaldslausar heimildir verða skilgreind með skýrari hætti fyrir tímabilin 2031-2035 og 2036-2040, auk þess sem framkvæmdastjórnin fær heimild til að setja sértæk hita- og eldsneytisviðmið fyrir hvern geira. Núverandi aðferðafræði við uppfærslu viðmiðunargilda er að mestu framlengd, en hámarkslækkun á ári fer úr 2,5% í 2%, á meðan lágmarkslækkun helst 0,3%. Þetta dregur úr hraða samdráttar í endurgjaldslausum heimildum í þeim geirum sem sýna miklar tækniframfarir og eykur fyrirsjáanleika kerfisins til lengri tíma. Jafnframt er heimilað að taka tillit til gagna frá rekstraraðilum í þriðju ríkjum sem tengd eru ETS samkvæmt samningum á grundvelli 25. gr., sem getur haft áhrif á framtíðarmótun viðmiðunargilda.Í nýrri 3. mgr. b. í 10. gr. a. er lögð skylda á rekstraraðila sem óska eftir úthlutun endurgjaldslausra heimilda að leggja fram opinbera fjárfestingaráætlun um afkolefnisvæðingu innan ESB (Invest in EU Decarbonisation Plan). Skila þarf áætluninni fyrir 30. september 2029 og eftir það á sama tíma og upplýsingum fyrir NIMS-lista, eða á fimm ára fresti. Áætlunin á að innihalda aðgerðir sem rekstraraðili hyggst ráðast í til að útrýma losun fyrir árið 2050, skilgreind markmið og upplýsingar um fjárfestingar sem samsvara að minnsta kosti 100% af andvirði þeirra endurgjaldslausu heimilda sem viðkomandi rekstraraðili fær úthlutað. Frá árinu 2031 munu kolefnishlutleysisáætlanir (e. climate neutrality plans) og orkuúttektir (EED-skilyrði) falla niður, þar sem fjárfestingaráætlunin kemur í þeirra stað.Í nýrri 3. mgr. c. a. eru settir hvatar fyrir rekstraraðila til að standa við fjárfestingaráætlunina. Þegar hún hefur verið samþykkt fær rekstraraðili aðeins 80% af endurgjaldslausri úthlutun sinni árlega á fimm ára tímabilinu. Síðustu 20% heimildanna verða einungis afhentar þegar staðfest hefur verið að fjárfestingarnar hafi verið framkvæmdar að fullu og að umtalsverður samdráttur í losun hafi náðst. Þeir rekstraraðilar sem hafa fengið stuðning úr Nýsköpunarsjóðnum eða Afkolefnisvæðingarsjóði iðnaðarins eru undanþegnir skyldu til að leggja fram sérstaka fjárfestingaráætlun, en þurfa engu að síður að uppfylla sambærilegar kröfur til að fá síðustu 20% heimildanna afhent. Framkvæmdastjórnin þarf að gefa út framseldar gerðir um útfærslu fjárfestingaráætlana um afkolefnisvæðingu. Rekstraraðilar geta samkvæmt nýrri 3. mgr. d. myndað sameiginlegan hóp („pool“) og þannig uppfyllt fjárfestingakröfurnar sameiginlega. Við þær aðstæður þarf fjárfestingarupphæð hópsins að samsvara andvirði allra þeirra endurgjaldslausu heimilda sem þátttakendur í hópnum fá úthlutaðar.Samkvæmt 3. mgr. f. mun lögbært stjórnvald fá aukna heimild til að krefjast skila á heimildum ef umframúthlutun hefur átt sér stað.Núverandi staða rekstraraðila á Íslandi er sú að fimm aðilar fá úthlutað endurgjaldslausum heimildum. Breytingin gæti haft veruleg áhrif á þessa aðila, þar sem gera má ráð fyrir að fjárfestingar sem nema að minnsta kosti verðmæti endurgjaldslausu heimildanna verði forsenda fyrir fullri úthlutun. Þetta getur skapað hvata til aukinna fjárfestinga í afkolefnisvæðingu og nýsköpun innan ETS-kerfisins.Tillagan felur í sér frekari breytingar á 10. gr. a., meðal annars varðandi fjölda heimilda sem eru boðnar upp, heimildir sem fara í styrktarsjóði og hvernig sölu þeirra er háttað. Einnig felur breytingin í sér aukinn sveigjanleika eftir 2030 með því að auka buffer á endurgjaldslausum heimildum samkvæmt 5. mgr. a. úr 3% í 4% yfir tímabilið 2031-2040. Þannig verður meira magn uppboðsheimilda í boði til að tryggja að endurgjaldslausar heimildir skerðist ekki meira en nauðsyn krefur. Margar þessara breytinga eru gerðar til að tryggja stöðugleika í verði losunarheimilda til lengri tíma. 1.16 Breyting á 10. gr. b. – Framlenging á úthlutun til kolefnislekageira Í 10. gr. b. tilskipunarinnar er talað um geira sem teljast vera í hættu á kolefnisleka en slíkir geirar og undirgeirar skulu fá 100% af sínum heimildum úthlutað endurgjaldslaust til ársins 2030. Í breytingartillögunni er lagt til að það tímamark sé framlengt til 2040. Samkvæmt núgildandi reglum fá geirar sem ekki teljast vera í verulegri hættu á kolefnisleka að jafnaði endurgjaldslausa úthlutun sem nemur 30% af reiknuðu magni, en úthlutun til annarra geira en hitaveitu skal dragast niður eftir 2026 og falla að fullu niður árið 2030. Tillagan kveður nú á um að endurgjaldslaus úthlutun til hitaveitu skuli lækka jafnt eftir 2030 og falla að fullu niður árið 2040. 1.17 Nýjar greinar 10 cb til ce – Endurskipulagning Innovation Fund og nýr Industrial Decarbonisation Bank Nýsköpunarsjóðurinn (Innovation Fund)Nýsköpunarsjóðurinn verður festur í sessi í grein 10cb og tekinn út úr grein 10a. Breytingin er gerð til að skapa skýrari umgjörð um stuðning við nýsköpun. Lagt er til að 200 milljónir losunarheimilda verði nýttar til sjóðsins og sérstaklega verði horft til verkefna sem tengjast nýsköpun í föngun og niðurdælingu kolefnis sem og annarri nýsköpun sem tekur á breytingum í framleiðsluferlum til að minnka torleysta losun (e. hard-to-abate emissions). Afkolefnisvæðingarsjóður iðnaðarins (Industrial Decarbonisation Bank)Nýr styrktarsjóður er lagður til í grein 10cc í formi Afkolefnisvæðingarsjóðs iðnaðarins (e. Industrial Decarbonisation Bank), sem verður fjármagnaður með 400 milljónum ETS-heimilda. Markmiðið er að styðja umfangsmikla innleiðingu og stækkun verkefna sem þegar hafa sannað tæknilega virkni. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn verði starfræktur árið 2028 og þá í tveimur áföngum. Í fyrsta áfanga verður komið á svokölluðum Investment Booster samkvæmt nýrri grein 10cd. Frá 2028 til 2030 verður stuðningi úthlutað samkvæmt meginreglunni „fyrstur kemur, fyrstur fær“. Stuðningurinn verður veittur sem fast kolefnisálag (e. fixed carbon premium) á hvert tonn CO₂ og greiddur út í ETS-heimildum. Sérstakur kvóti verður frátekinn til tekjulægri aðildarríkja fyrstu 18 mánuðina til að tryggja jafnræði og stuðla að samheldni innan sambandsins. Frá 2031 tekur við full virkni sjóðsins samkvæmt nýrri grein 10ce. Þá verður stuðningur veittur meðal annars í gegnum samkeppnisútboð fyrir kolefnissamninga (e. Carbon Contracts for Difference, CCfD). CCfD eru ekki hefðbundnir styrkir heldur tekjutrygging fyrir afkolefnisvæðingu. Markmiðið er að draga úr áhættu fjárfesta vegna sveiflna í verði losunarheimilda og gera þannig fjárfestingar í afkolefnisvæðingu arðbærari og fyrirsjáanlegri. Þessi nálgun er sérstaklega hugsuð fyrir umfangsmikil iðnaðarverkefni sem þurfa miklar fjárfestingar til að komast í fullan rekstur.Ekki er víst hvort íslensk verkefni muni hafa aðgang að Industrial Decarbonisation Bank. Tillagan afmarkar stuðning sjóðsins við verkefni „within the Union“ og í „Member States“, sem nær ekki sjálfkrafa til EFTA-ríkjanna. Við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn þarf því að taka afstöðu til þess hvort gera þurfi sérstaka aðlögun til að tryggja að íslensk verkefni geti notið stuðnings úr sjóðinum. 1.20 Breyting á 10. gr. f. – „Do no significant harm“-reglan fyrir ETS fjármögnunÍ lið 1.20 er lagt til að 10. gr. f tilskipunarinnar um meginregluna um að valda ekki verulegu tjóni (e. do no significant harm) verði endurskoðuð. Samkvæmt núgildandi ákvæði skal við ráðstöfun tiltekinna ETS-tekna fylgja DNSH-viðmiðum 17. gr. flokkunarreglugerðar (ESB) 2020/852, að því marki sem tæknileg matsviðmið hafa verið sett fyrir viðkomandi atvinnustarfsemi. Tillagan fellir þessa sérstöku tengingu við flokkunarreglugerðina brott og vísar þess í stað til DNSH-meginreglunnar samkvæmt d-lið 2. mgr. 33. gr. reglugerðar (ESB, KBE) 2024/2509 um fjármálareglur almennra fjárlaga Sambandsins.Jafnframt er skýrt kveðið á um að tekjur af losunarheimildum sem renna til Modernisation Fund, Innovation Fund og Industrial Decarbonisation Bank skuli nýttar í samræmi við meginregluna. Breytingin getur haft þýðingu fyrir Ísland þar sem íslensk verkefni geta fengið stuðning úr Innovation Fund og reglur um sjóðinn hafa verið teknar upp í EES-samninginn. Við upptöku breytingarinnar í EES-samninginn þyrfti þó að skoða sérstaklega hvernig tilvísunin til reglugerðar (ESB, KBE) 2024/2509 ætti að gilda gagnvart EFTA-ríkjunum, enda fellur sú gerð utan gildissviðs EES-samningsins. 1.22 Breyting á 12. gr. - Breytingar skilaskyldu - CORSIA, sjóflutningar og CCS/CCU Í lið 1.22 eru lagðar til nokkrar breytingar á 12. gr. tilskipunarinnar, sem fjallar um skilaskyldu losunarheimilda. Breytingarnar varða einkum samspil ETS og CORSIA í flugi, undanþágur og lækkun skilaskyldu í sjóflutningum, auk reglna um föngun, varanlega geymslu og nýtingu koltvísýrings. Markmið breytinganna er að skýra og aðlaga hvenær skilaskylda myndast og í hvaða tilvikum sé heimilt að lækka hana eða fella hana niður.Lagt er til að skilaskylda flugrekenda samkvæmt ETS verði lækkuð með tilliti til kostnaðar sem leiðir af CORSIA-jöfnunarskyldu vegna sömu losunar og þannig komið í veg fyrir tvöfalda verðlagningu losunar. Ný 3. mgr. f útfærir þessa lækkun nánar. Lækkunin byggist á þeirri forsendu að flugrekandinn uppfylli síðar samsvarandi skyldu sína samkvæmt CORSIA með því að ógilda CORSIA-einingar. Geri hann það ekki þarf hann að bæta upp lækkunina með því að skila samsvarandi fjölda ETS-losunarheimilda. Jafnframt er mælt fyrir um sérstakan frest til slíks uppgjörs ef endanleg CORSIA-skylda hefur ekki verið tilkynnt flugrekandanum.Þær undanþágur sem gilda um skil á losunarheimildum vegna sjóferða eru framlengdar til 2035 með breytingum á málsgreinum 3-e, 3-d, 3-c og 3-b 12. gr. Til viðbótar við það er nýrri undanþágu bætt við með nýrri 3 mgr. g. sem segir að skipafélög megi skila af sér færri losunarheimildum til 31. desember 2035 vegna sjóferða frá höfn í þriðja ríki til EES hafna ef ferðin er farin af gámaflutningaskipi að stærð 10.000 TEU eða meira og ferðin er lengri en 300 sjómílur. Í slíkum tilvikum mega skipafélög einnig skila af sér færri losunarheimildum vegna losunar innan hafna í tengslum við þær ferðir. Fjöldi losunarheimilda sem skipafélög þurfa að skila af sér minnkar í samræmi við hlutfall gáma skipsins sem er umskipað á annað skip. Losunarheimildir sem gefnar eru í afslátt skv. þessari grein er eytt en ekki boðnar upp. Þessi breyting er gerð til að styrkja umskipunarhafnir innan EES svæðisins.Skyldan til að gera upp losunarheimildir hefur ekki verið til staðar vegna koldíoxíðs sem hefur verið fangað og flutt til varanlegrar geymslu á starfsstöð sem hlotið hefur starfsleyfi skv. tilskipun ESB 31/2009 um föngun og geymslu koldíoxíðs. Með þessari breytingartillögu bætist við að skyldan myndist ekki þar sem koldíoxíð er flutt til jarðfræðilegrar geymslu í þriðja landi með sambærilegt losunarheimildarkerfi tengt ETS skv. 25. gr. þessarar tilskipunar og þar sem framkvæmdarstjórnin samþykkir framkvæmdarákvörðun sem staðfestir að fullnægjandi verndarráðstafanir séu til staðar, að því tilskildu að starfsstöðin sé ekki notuð til að auka vinnslu olíu eða jarðgass. Samkvæmt gildandi ákvæði myndast ekki skilaskylda vegna koltvísýrings sem hefur verið fangaður og nýttur þannig að hann sé varanlega efnabundinn og losni því ekki aftur út í andrúmsloftið við eðlilega notkun eða að loknum líftíma vörunnar. Með breytingunni bætist við annað tilvik þar sem skilaskylda myndast ekki hjá þeim rekstraraðila sem fangar koltvísýringinn. Það á við þegar kolefnið er efnabundið í vöru eða efni en gert er ráð fyrir að það losni síðar að meginstefnu við starfsemi sem fellur undir I. viðauka ETS og er sjálf háð skilaskyldu. Markmiðið er þannig að ekki þurfi að gera upp losunina við föngunina, enda verði hún síðar gerð upp innan ETS þegar kolefnið losnar aftur út í andrúmsloftið. 1.23 Nýjar 12. gr. a. og b. – Skilaskylda vegna úrgangsbrennslu og tímabundin undaþágaGrein 1.23 setur inn nýjar 12. gr. a. og 12. gr. b. sem fjalla um innleiðingu úrgangsbrennslu og sambrennslu úrgangs í ETS. Úrgangsbrennsla fellur nú þegar að takmörkuðu leyti undir kerfið vegna skyldu til vöktunar, skýrslugjafar og sannprófunar, án þess að slíkum stöðvum sé skylt að skila losunarheimildum. Með tillögunni er lagt til að starfsemin verði tekin að fullu inn í ETS frá 2031 með stigvaxandi skilaskyldu. Skila skal heimildum fyrir 25% af losun árið 2031, 50% árið 2032 og 75% árið 2033, en full skilaskylda gildir frá 2034.Með 12. gr. b. er ríkjum þó veittur möguleiki á tímabundinni undanþágu frá skilaskyldunni til ársloka 2035 ef að minnsta kosti tvö af þremur tilgreindum skilyrðum eru uppfyllt. Skilyrðin eru: Sambærilegt innlent kolefnisgjald er í gildi. Gjaldið þarf að ná til viðkomandi starfsemi 2031–2035 og það sem viðkomandi rekstraraðili greiðir fyrir viðmiðunarárið þarf að vera hærra en meðaluppboðsverð ETS-heimilda, leiðrétt fyrir stigvaxandi innleiðingu skilaskyldunnar samkvæmt 12. gr. a. Ríkið sé með stefnu og á réttri leið til að ná endurvinnslumarkmiðum sveitarfélagaúrgangs samkvæmt 11. gr. 2(d) og (e) tilskipunar 2008/98/EB. Ríkið sé með stefnu og á réttri leið til að ná urðunarmarkmiðinu samkvæmt 5. gr. 5 tilskipunar 1999/31/EB.Ef undanþágan er nýtt skal fella niður samsvarandi fjölda losunarheimilda úr uppboðsmagni viðkomandi ríkis. Undanþágan tekur aðeins til skilaskyldunnar og hefur því ekki áhrif á áframhaldandi skyldur starfsstöðva til vöktunar, skýrslugjafar og sannprófunar losunar. 1.24 Breyting á 14. gr. – Vöktun og skýrslugjöf tengd tilbúnu eldsneyti og varanlegri kolefnisbindinguBreytingarnar varða m.a. tilvik þar sem CO₂ er fangað úr sameiginlegum straumi sem inniheldur bæði CO₂ frá lífmassa sem uppfyllir skilyrði fyrir núll-losunarstuðli og CO₂ frá jarðefnaeldsneyti sem fellur undir skilaskyldu ETS. Framkvæmdastjórninni er falin heimild til að setja nánari reglur um hvernig skuli ákvarða hvaða hluti hins fangaða CO₂ telst til hvors flokks og hvernig það skuli fært í losunarbókhaldi. Jafnframt er framkvæmdastjórninni veitt rýmri heimild til að útfæra nánar í framkvæmdargerðum hvernig losun vegna tilbúins eldsneytis (e. synthetic fuels) skuli færð í losunarbókhaldi, þannig að tryggt sé að öll losun sé talin og tvítalning komi ekki til. Tillagan mælir jafnframt sjálf fyrir um að kolefni sem er efnafræðilega bundið í tilbúnu eldsneyti skuli teljast losað við dreifingu eldsneytisins en ekki við notkun þess.Jafnframt er lögð til ný 1. mgr. a þar sem mælt er fyrir um að í framkvæmdargerðum samkvæmt 1. mgr. skuli rekstraraðilum, flugrekendum og skipafélögum gert kleift að jafna eigin losun með varanlegri bindingu eigin lífræns CO₂. Úrræðið á við þegar lífrænt CO₂ sem fellur undir ETS er fangað og geymt varanlega og bindingin hefur verið vottuð samkvæmt reglugerð (ESB) 2024/3012 um vottun kolefnisbindingar. Slík binding getur þannig, samkvæmt nánari reglum sem settar verða í framkvæmdargerðum, komið til lækkunar á þeirri jarðefnalosun sem rekstraraðilanum ber að gera upp samkvæmt ETS. Jafnframt skal koma í veg fyrir tvítalningu slíkrar kolefnisbindingar. 1.25 Breyting á 19. gr. – Fjármögnun á rekstri ETS og skráningarkerfisinsMeð breytingunni er 2. málslið. 1. mgr. 19. gr. eytt, þar sem vísað er í að hvert aðildarríki skuli uppfylla skyldur varðandi Kyoto og loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna í gegnum skráningarkerfi, en það er ekki lengur hluti af verkefnum landsstjórnenda skráningarkerfa aðildarríkjanna.Nýrri 1. mgr. a er bætt við 19. gr. sem segir að að hámarki 5 milljón losunarheimildir skulu settar á uppboð til 2040 til fjármögnunar skráningarkerfisins. 1.26 Breyting á 20. gr. – Hlutverk Central Administrator í skráningarkerfinu skýrtVísunum í skráningarkerfið hefur verið breytt í 20. gr. um miðlægan stjórnanda, úr „independent transaction log“ í „Union Registry“. 1.27 Breyting á 21. gr. – Skýrari tímafrestur fyrir skýrslugjöf ríkja til framkvæmdarstjórnarinnar Ákvæðið uppfærir reglur um árlega skýrslugjöf ríkja um framkvæmd ETS samkvæmt 21. gr. Núverandi skýrsluskylda helst að meginstefnu óbreytt, en 30. júní er festur sem árlegur skilafrestur í tilskipuninni. Skýrslan skal áfram byggð á spurningalista eða sniðmáti sem framkvæmdastjórnin samþykkir með framkvæmdareglugerð. Nýtt er að sniðmátið skal gert aðgengilegt ríkjunum eins fljótt og unnt er fyrir hver árleg skil og, þegar það er endurskoðað, skal eftir atvikum haft samráð við ríkin um breytingarnar. Jafnframt er upplýsingaskipti milli lögbærra stjórnvalda uppfært með því að fella brott úrelta tilvísun til ERU- og CER-eininga samkvæmt Kyoto-kerfinu. Sérstök skylda framkvæmdastjórnarinnar til að birta framkvæmdarskýrslu samkvæmt 21. gr. er einnig felld brott, þar sem upplýsingarnar eru þegar nýttar í árlegri skýrslu um kolefnismarkaðinn. 1.29 Breyting á 25. gr. a. – Framlenging CORSIA fyrirkomulags og reglur um CORSIA einingarLiðurinn felur í sér breytingar á 25. gr. a tilskipunarinnar um framkvæmd CORSIA. Í fyrsta lagi er undanþága frá skilaskyldu ETS vegna flugs til og frá ríkjum sem teljast beita CORSIA framlengd frá árslokum 2026 til ársloka 2035.Í öðru lagi eru reglur sem ætlað er að jafna samkeppnisstöðu flugrekenda við framkvæmd CORSIA rýmkaðar. Úrræðið tekur til þess þegar þriðja ríki heimilar flugrekendum sínum að nota aðrar tegundir CORSIA-eininga en þær sem flugrekendum undir lögsögu aðildarríkjanna er heimilt að nota samkvæmt reglum ESB. Ef slíkur munur getur leitt til verulegrar röskunar á samkeppni, t.d. ef einingar sem þriðja ríki heimilar eru ódýrari en þær sem ESB heimilar, getur framkvæmdastjórnin að beiðni aðildarríkis, heimilað viðkomandi flugrekendum að nota fleiri tegundir CORSIA-eininga eða undanþegið þá tilteknum skilyrðum ESB um notkun þeirra. Með breytingunni verður úrræðið jafnframt látið ná til flugs milli aðildarríkis og þriðja ríkis sem tekur þátt í CORSIA, en núgildandi regla tekur einungis til flugs evrópskra flugrekenda milli tveggja þriðju ríkja sem taka þátt í CORSIA. 1.30 Ný 25. gr. b. – Stuðningur við þriðju ríki með ETS (ETS as a service)Nýrri 25. gr. b er bætt við sem fjallar um ETS sem þjónustu sem segir að þriðju ríki geti fengið stjórnsýslulega og tæknilega aðstoð til að setja upp kerfi sem innheimtir gjöld vegna losunar með þak á heildarlosun, sér í lagi þegar kemur að flugrekstri og siglingum sem eru á milli EES og þriðju ríkja. Slíkur stuðningur skal vera í boði frá 2027 vegna flugs og frá 2029 vegna sjóflutninga. Þriðju ríki skulu í þannig tilvikum geta fengið tekjur vegna 50% losunar flugleiða og sjóferða milli EES og þeirra. Í þeim tilvikum sem þriðju ríkin hafa ekki eigin uppboðsvettvang skal bjóða losunarheimildir upp af sambandinu en tekjurnar samt sem áður renna til þessara ríkja og í þannig tilvikum skal einnig fjölga losunarheimildum innan sambandsins um þann fjölda losunarheimilda sem við á og skal línulegur samdráttarstuðull einnig eiga við þær. Aðildarríki skulu sinna stjórnsýslulegri umsjón viðeigandi flugrekenda og skipafélagi þar til slík umsjón er í boði í viðkomandi þriðju ríkjum. Siglingaöryggisstofnun Evrópu (e. EMSA) skal einnig veita þriðju ríkjum aðgang að tólum og leiðbeiningum í þessum tilvikum. Framkvæmdastjórnin hefur leyfi til að gefa út framkvæmdareglugerðir til nánari útfærslu á ETS sem þjónustu. 1.31 Breyting á 28. gr. a. – Útvíkkun ETS til flugs frá EES til þriðju ríkjaÍ lið 1.31 eru lagðar umfangsmiklar til breytingar á 28. gr. a tilskipunarinnar sem tengjast annars vegar fyrirhugaðri útvíkkun á landfræðilegu gildissviði ETS fyrir flug og hins vegar breytingum sem leiða til þess að fleiri minni flugrekendur munu falla undir kerfið. Samkvæmt núgildandi reglum er flug milli EES og þriðju ríkja að meginstefnu undanþegið skilaskyldu ETS til ársloka 2026, að undanskildu flugi til Bretlands og Sviss. Tillagan felur í sér að þessu víðtæka undanþágufyrirkomulagi verði að mestu viðhaldið árin 2027 og 2028.Frá 1. janúar 2029 er hins vegar lagt til að fleiri flugferðir til þriðju ríkja falli undir ETS. Með breytingu á I. viðauka verður brottfararflug frá flugvöllum innan EES til þriðju ríkja fært inn í gildissvið kerfisins hjá flugrekendum sem losa 10.000 tonn CO₂ eða meira á ári vegna milliríkjaflugs. Flug frá þriðju ríkjum inn í EES verður hins vegar ekki fært inn í kerfið með þessari útvíkkun. Flugrekendur undir 10.000 tonna viðmiðinu falla því ekki undir þessa nýju útvíkkun til brottfararflugs frá EES, þótt þeir geti eftir sem áður fallið undir ETS vegna annarrar flugstarfsemi.Þessi útvíkkun verður síðan takmörkuð með undanþágum samkvæmt 28. gr. a. Flug frá EES til flugvalla utan EES sem eru í meira en 5.000 km fjarlægð frá Frankfurt verður áfram undanþegið skilaskyldu til ársloka 2032. Sama gildir um flug til flugvalla sem eru innan 5.000 km frá Frankfurt ef árleg losun vegna flugs frá EES til viðkomandi flugvallar er undir 15.000 tonnum CO₂. Flug til og frá tilteknum minnst þróuðum ríkjum og smáeyríkjum í þróun verður jafnframt áfram undanþegið, nema landsframleiðsla á mann í viðkomandi ríki sé jöfn eða hærri en meðaltal ESB. Sérstakar undanþágur gilda einnig um tiltekið flug frá ystu svæðum og tengdum landsvæðum.Breytingin felur því í grófum dráttum í sér að á árunum 2029–2032 getur brottfararflug frá EES til þriðja ríkis fallið undir ETS ef flugrekandinn er yfir 10.000 tonna viðmiðinu, áfangaflugvöllurinn er innan 5.000 km frá Frankfurt, árleg losun vegna flugs frá EES til hans nær 15.000 tonnum CO₂ og engin önnur undanþága á við.Með breytingum á I. viðauka er jafnframt lagt til að þrengja undanþágu fyrir minni flugrekendur. Samkvæmt núgildandi reglum geta atvinnuflugrekendur m.a. fallið utan ETS ef árleg losun þeirra er undir 10.000 tonnum CO₂ eða ef þeir eru undir tilteknum mörkum um fjölda flugferða. Tillagan fellir flugfjöldaviðmiðið brott og lækkar losunarmörk undanþágunnar í 1.000 tonn CO₂. Breytingin leiðir því til þess að minni flugrekendur, þeir sem losa á bilinu 1.000–10.000 tonn, munu nú falla undir ETS. Í tengslum við þessa breytingu er því lagt til að rýmka reglur 28. gr. a um einfaldaða sannprófun fyrir minni flugrekendur, með það að markmiði að draga úr stjórnsýslubyrði þeirra sem nú munu falla undir kerfið. Flugrekendur með heildarlosun undir 25.000 tonnum CO₂ á ári geta áfram nýtt svokallað small emitters tool. Sama gildir um flugrekendur með meiri heildarlosun ef sá hluti losunar þeirra sem er háður skilaskyldu samkvæmt ETS er undir tilteknum viðmiðunarmörkum, sem tillagan hækkar úr 3.000 í 10.000 tonn CO₂. Breytingin felur þannig í sér að minni flugrekendur með ETS-skilaskylda losun á bilinu 3.000–10.000 tonn CO₂ geta nú einnig nýtt sér small emitters tool. Samhliða útvíkkun gildissviðsins verður heildarmagn losunarheimilda fyrir flug aðlagað þegar nýir flokkar flugferða falla undir skilaskyldu. Magn heimilda verður aukið sem nemur losun viðkomandi flugferða tveimur árum áður en útvíkkunin tekur gildi og verður frá næsta ári háð línulega samdráttarstuðlinum.Að auki er verða allt að 110 milljóna losunarheimilda teknar frá til ársins 2040 til stuðnings við notkun flugvélaeldsneytis og raforku samkvæmt 6. mgr. 3. gr. c. Frá 2029 verður stuðningurinn tiltækur vegna allra flugferða sem leggja af stað frá flugvelli innan EES, með þeim takmörkunum sem gilda um viðskiptaflug. 1.32 Breyting á 28. gr. b. – Endurskoðun árið 2032 á CORSIA og framtíðargildissviði ETS fyrir flugÍ lið 1.32 er lagt til nýtt endurskoðunarákvæði í 28. gr. b sem tengist útvíkkun gildissviðs ETS fyrir flug á árunum 2029–2032. Framkvæmdastjórnin skal fyrir 1. júlí 2032 leggja mat á þróun og umhverfislegan áreiðanleika CORSIA, m.a. með tilliti til árangurs kerfisins gagnvart markmiðum Parísarsamningsins, þátttöku ríkja, framkvæmdar og framfylgdar þess, gæða kolefniseininga og reglna um vöktun og sannprófun.Ef matið sýnir að CORSIA hafi verið styrkt í samræmi við langtímamarkmið ICAO og markmið Parísarsamningsins og að ríki sem taka þátt í kerfinu standi fyrir meira en 70% af losun alþjóðaflugs, er gert ráð fyrir að framkvæmdastjórnin geti lagt til að gildissvið EU ETS fyrir flug verði aftur þrengt. Kerfið yrði þá að meginstefnu takmarkað við flug innan EES, auk flugs til Sviss og Bretlands og til og frá Gíbraltar. Ákvæðið felur þannig í sér endurskoðun á þeirri útvíkkun til flugs frá EES til þriðju ríkja sem samkvæmt tillögunni á að gilda frá 2029 til ársloka 2032 1.33 Breyting á 30. gr. Endurskoðun árið 2034 um hvort taka eigi losun frá urðunarstöðum inn í ETSÁkvæðið frestar mati framkvæmdastjórnarinnar á því hvort fella eigi urðunarstaði að fullu undir ETS frá árinu 2026 til ársins 2034. Samkvæmt breytingum á I. viðauka tilskipunarinnar verða urðunarstaðir þó færðir undir skyldur um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun samkvæmt ETS frá 2031, eða 2034 ef tiltekin skilyrði hafa þá ekki verið uppfyllt. Á grundvelli þeirra gagna skal framkvæmdastjórnin síðan fyrir árslok 2034 meta hvort rétt sé að leggja einnig skilaskyldu losunarheimilda á urðunarstaði og getur þá lagt fram lagatillögu þess efnis. 1.34 Breyting á 30. gr. m. – Hertar kröfur um gagnsæi ETS-fjármögnunar ríkjaÁkvæðið herðir kröfur um sýnileika verkefna og aðgerða sem fjármögnuð eru með tekjum samkvæmt 3. gr. d(4), 10. gr. 3 og 30. gr. d(6) tilskipunarinnar, þ.e. einkum uppboðstekjum vegna flugs, hins almenna ETS og ETS2. Samkvæmt núgildandi ákvæði skulu ríki leitast við að tryggja sýnileika uppruna slíkrar fjármögnunar að teknu tilliti til innlendra aðstæðna. Með tillögunni verður þetta að beinni skyldu ríkja. Jafnframt skulu gilda nánari kröfur um upplýsingagjöf og merkingar þannig að skýrt komi fram að viðkomandi verkefni eða aðgerð sé fjármögnuð með ETS-tekjum. Samkvæmt núgildandi EES-aðlögun gilda 3. gr. d(4), 10. gr. 3 og 30. gr. d(6) ekki um EFTA-ríkin. Þar sem nýja sýnileikaskyldan vísar sérstaklega til þessara ákvæða myndi hún því ekki gilda um Ísland í óbreyttri mynd verði núverandi aðlögunum viðhaldið. Við upptöku breytingarinnar í EES-samninginn þarf því að taka afstöðu til þess hvort og þá hvernig ákvæðið skuli aðlagað gagnvart EFTA-ríkjunum. 1.35 Breyting á viðaukum – Víðara gildissvið ETSÁkvæðið gerir breytingar á I., IIb., IV. og V. viðauka ETS-tilskipunarinnar. Breytingarnar á I. viðauka útfæra að verulegu leyti þær gildissviðsbreytingar sem leiða af öðrum ákvæðum tillögunnar en fela jafnframt í sér að ný starfsemi er færð sérstaklega undir ETS.Frá 1. janúar 2031 verður brennsla og sambrennsla hættulauss úrgangs í stöðvum með afkastagetu yfir 3 tonn á klukkustund sérstök ETS-starfsemi, að undanskilinni efnaendurvinnslu. Þetta tengist nýjum 12. gr. a og b um stigvaxandi skilaskyldu og mögulega tímabundna undanþágu frá henni. Urðunarstaðir fyrir hættulausan úrgang verða jafnframt færðir undir skyldur um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun samkvæmt 14. og 15. gr. frá 2031, að því gefnu að komið hafi verið á urðunarskrá og BAT-niðurstöður fyrir urðunarstaði hafi verið birtar, en annars frá 2034.Gildissvið sjóflutninga er jafnframt víkkað frá 2031 til tiltekinna skipaflokka undir 5.000 brúttótonnum og niður að 400 brúttótonnum. Þar undir falla m.a. tiltekin almenn flutningaskip, olíu-, efna-, gas- og LNG-flutningaskip og skip sem sinna tiltekinni offshore-starfsemi. I. viðauki er einnig lagaður að breytingum á gildissviði ETS fyrir flug sem nánar er fjallað um í 1.31.Þá er gildissvið ETS gagnvart föngun, flutningi, vinnslu og nýtingu CO₂ víkkað. I. viðauki tekur m.a. til vinnslu fangaðs CO₂, svo sem hreinsunar, þéttingar og tímabundinnar geymslu, nýtingar CO₂ við framleiðslu kolefnissambanda og dreifingar tilbúins eldsneytis sem inniheldur kolefni úr fönguðu CO₂. Breytingarnar tengjast nánar nýjum reglum um CCS og CCU í 1.22 og um kolefnisbókhald í 1.24. Þá er skýrt að vetni sem verður til sem aukaafurð teljist með við mat á því hvort 5 tonna daglegt framleiðsluviðmið vetnisframleiðslu sé uppfyllt. Article 2 – Breytingar á ákvörðun (ESB) 2015/1814Breytingar eru gerðar á þremur málsgreinum í 1. gr. ákvörðunarinnar.Breytingunum er ætlað að gera markaðsstöðugleikasjóðinn (MSR) betur til þess fallinn að eiga við þegar upp kemur skortur á losunarheimildum. Þau viðmiðunargildi sem gilda um hvenær losunarheimildir skulu settar í markaðsstöðugleikasjóð og teknar úr honum eru uppfærð til að taka mið af minnkun á framboði losunarheimilda meðfram minni losun innan ETS.Breytingin á 1. mgr. felst í því að verið er að útvíkka hvaða losunarheimildir eru teknar með þegar reiknað er út hversu margar losunarheimildir séu í umferð og taka með losunarheimildir sem voru gefnar út, að frádregnum þeim sem voru keyptar og skilað vegna losunar, vegna flugs á tímabilinu 1. janúar 2012 til 31. desember 2023.Breytingar eru gerðar á 5. mgr. er varða hver þröskuldurinn á fjölda losunarheimildir þurfi að vera í umferð áður en tekinn er hluti af þeim til að setja í markaðsstöðugleikasjóðinn. Einnig er sett sú viðbót að þröskuldurinn til að heimildir séu færðar í MSR dragist saman árlega um 4%, námundað að næstu milljón, frá 2029.Breytingar eru gerðar á 6. mgr. um hver þröskuldurinn á fjölda losunarheimilda þurfi að vera til að ákveðinn fjöldi sé færður úr MSR. Nú er það þannig að ef losunarheimildir séu innan við 400 milljónir til sölu, eru 100 milljónir heimilda færðar úr MSR. Með breytingunum verða 100 milljónir heimilda færðar til sölu ef heildarmagn losunarheimilda fer undir 300 milljónir en ef þær eru 300-400 milljónir fer magn sem er munurinn á fjölda heimilda í umferð og 400 milljónum. Frá 2029 skulu þessar tölur minnka um 4% árlega, námundað að næstu milljón. Einnig er bætt við ákvæði um að ef færri losunarheimildir eru í MSR en skal færa úr sjóðnum skv. þessari mgr., skuli færa allar losunarheimildir úr MSR. Article 3 – Innleiðing og gildistaka breytinganna í landsrétti Aðildarríkin skulu samþykkja og birta, eigi síðar en 31. Desember 2028 þau lög og reglugerðir og stjórnsýslufyrirmæli sem nauðsynleg eru til að fara að þessari tilskipun. Þau skulu beita þessum ákvæðum frá og með 1. Janúar 2029 en taldar eru upp undantekningar þar á vegna ákvæða sem beita skal frá og með öðrum dagsetningum. Aðildarríkin skulu samþykkja ákvæði um mismunandi tímasetningu fyrir beitingu ákvæða með tilvísun í þessa tilskipun. Þá skulu þau senda skal texta helstu lands lagaákvæða sem þau samþykkja á því sviði sem þessi tilskipun nær til til Framkvæmdastjórnarinnar. Article 4 – Framlenging kolefnislekalista til 2040 sbr. breytingu á 10. gr. b.Í 4. gr. er lagt til að núverandi listi samkvæmt framseldri ákvörðun (ESB) 2019/708 yfir geira og undirgeira sem teljast vera í hættu á kolefnisleka haldi áfram að gilda til 31. desember 2040. Listinn gildir samkvæmt núverandi reglum fyrir tímabilið 2021–2030. Breytingin felur því í sér að núverandi flokkun geira með tilliti til kolefnislekahættu verður framlengd um tíu ár, samhliða framlengingu á reglum 10. gr. b um endurgjaldslausa úthlutun til slíkra geira Article 5 – Gildistaka einstaka ákvæðaSamkvæmt tillögunni skulu flestar breytingarnar koma til framkvæmda frá 1. janúar 2029 en mismunandi gildistökudagar eru þó ákveðnir fyrir tiltekin ákvæði. Nokkrar breytingar á reglum um endurgjaldslausa úthlutun og fjármögnun úr ETS taka gildi þegar 30. september 2027, m.a. breyting á CBAM-stuðlinum sem hefur áhrif á endurgjaldslausa úthlutun frá 2028 og ákvæði sem tengjast stofnun Industrial Decarbonisation Bank. Aðrar breytingar taka ekki gildi fyrr en 1. janúar 2031.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Innleiða þyrfti tilskipunina með lögum nr. 96/2023 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir og þyrfti þá einnig að gera viðeigandi breytingar á reglugerð um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir nr. 606/2021 . |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Ef tillagan yrði samþykkt og á endingu innleidd kynni það að hafa í för með sér aukin kostnað fyrir hið opinbera. Kostnaðurinn gæti einkum falist í vinnu við aðlögun íslensks regluverks, leiðbeiningagerð og upplýsingagjöf fyrir rekstraraðila, aukinni umsýslu vegna nýrra rekstraraðila í flugi og sjóflutningum o.fl. Erfitt er að spá fyrir um umfang kostnaðar að svo stöddu og þyrfti því að gera nákvæmari kostnaðargreiningu þegar loka útgáfa tilskipunarinnar liggur fyrir. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Iðnaður Innviðir sem flytja koltvísýring til niðurdælingar og geymslu myndu falla undir skilgreininguna á starfsstöð. Þar sem íslenskur rekstraraðili hyggst flytja inn koltvísýring til Íslands til niðurdælingar er mikilvægt að skilgreiningin nái yfir þá starfsemi til að forðast gat í flutningskeðju CO2. Sömuleiðis eru settar fram reglur um lögbært stjórnvald vegna CO2 flutningsinnviða í tengslum við flutning CO2 yfir landamæri. Samkvæmt þeim myndi UOS vera lögbært stjórnvald slíkra starfsstöðva ef koltvísýringurinn er fangaður á Íslandi og svo fluttur erlendis eða ef koltvísýringurinn er fangaður utan EES og Ísland er fyrsta landið innan EES á flutningsleiðinni. Rekstraraðilar sem falla undir 27. gr. a þyrftu ekki að hafa losunarleyfi. Sú grein er ekki innleidd í íslenskan rétt, þar sem um valkvæða undanþágu er að ræða, en UOS hefur áður talað fyrir innleiðingu hennar. Væri greinin innleidd í íslenskan rétt hefði þetta þau áhrif að aðilar sem féllu undir 27. gr. a þyrftu ekki að sækja um né uppfæra losunarleyfi í þeim tilvikum sem breytingar yrðu á starfsemi og drægi því úr stjórnsýslubyrði rekstraraðila og UOS. Framkvæmdastjórn ESB áætlar að auka heildarmagn losunarheimilda um 250 milljónir heimilda á tímabilinu 2031-2040 og verða uppboðstekjur af þeim heimildum nýttar til að kaupa samsvarandi magn vottaðra eininga fyrir varanlega kolefnisfjarlægingu með BioCCS og DACCS verkefnum. Úrræðið gæti skapað tækifæri fyrir íslensk BioCCS- og DACCS-verkefni til að framleiða vottaðar kolefnisfjarlægingareiningar sem framkvæmdastjórnin myndi kaupa samkvæmt ákvæðinu. Þá þyrfti Ísland að beita sér fyrir upptöku reglugerðar (ESB) 2024/3012 í EES-samninginn. Niðurfellingu úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda sem falla undir CBAM er seinkað til 2038, sem þýðir að íslensk fyrirtæki sem falla undir CBAM (álver) fá áfram endurgjaldslausar losunarheimildir. Ný kvöð er sett á rekstraraðila sem sækja um úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda, en þeir munu þurfa að skila inn opinberri fjárfestingaráætlun um afkolefnisvæðingu innan ESB meðfram næstu umsókn um úthlutun, 30. september 2029. Rekstraraðilar skulu gera grein fyrir fjárfestingum fyrir a.m.k. 100% af andvirði þeirra endurgjaldslausu losunarheimilda sem þeir munu fá úthlutað á fyrri hluta 5. viðskiptatímabils ETS, 2031-2036. Þessi fjárfestingaráætlun kemur í stað kolefnishlutleysisáætlana og orkuúttekta og þarf því að taka ákvæði um orkuúttektir út úr reglugerð 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, sem setti fram skyldu á íslenska rekstraraðila að undirgangast slíka orkuúttekt fyrir lok árs 2027. Íslenskir rekstraraðilar munu þurfa að skila þessari fjárfestingaáætlun til að fá endurgjaldslausum losunarheimildum úthlutað og skila skýrslu um fjárfestingarnar til að fá 20% úthlutunar sem haldið er eftir þar til staðfesting á fjárfestingum hefur borist. Fyrirtæki geta myndað hóp (e. pool) og uppfyllt fjárfestingarkröfur sameiginlega. Ef kröfur verða ekki uppfylltar geta lögbært stjórnvald og landsstjórnandi krafist skila á áður úthlutuðum losunarheimildum. Núverandi staða rekstraraðila á Íslandi er sú að fimm aðilar fá úthlutað endurgjaldslausum heimildum. Breytingin gæti haft veruleg áhrif á þessa aðila, þar sem gera má ráð fyrir að fjárfestingar sem nema að minnsta kosti verðmæti endurgjaldslausu heimildanna verði forsenda fyrir fullri úthlutun. Þetta getur skapað hvata til aukinna fjárfestinga í afkolefnisvæðingu og nýsköpun innan ETS-kerfisins. Starfsemi sem telst vera viðkvæm fyrir kolefnisleka en fellur ekki undir CBAM mun fá 100% af losunarheimildum úthlutað til 2040, sem er framlenging. Þetta hefur áhrif á úthlutun til kísilfyrirtækja á Íslandi. Nýsköpunarsjóðurinn verður festur frekar í sessi og nýr afkolefnisvæðingarsjóður iðnaðarins stofnaður en íslenskir rekstraraðilar og önnur fyrirtæki munu geta, líkt og aðrir, sótt um styrki í þá sjóði. Afkolefnisvæðingarsjóður iðnaðarins er frábrugðinn nýsköpunarsjóðnum m.a. að því leyti að honum er ætlað að styðja við stækkun og innleiðingu verkefna sem hafa þegar sannað gildi sitt. Styrkjum sjóðsins í upphafi er sérstaklega beint að þeim löndum sem hafa takmarkaðri fjárhagslega getu til að fara í orkuskipti. Carbfix hefur fengið stóra styrki úr nýsköpunarsjóð. Brennsla úrgangs mun falla undir ETS frá 2031 en ríki geta fengið tímabundna undanþágu ef 2 af 3 skilyrðum eru uppfyllt: sambærilegt innlent kolefnisgjald er í gildi eða ríkið sé á réttri leið með að ná endurvinnslumarkmiðum og urðunarmarkmiðum. Engin úrgangsbrennsla á Íslandi er nógu stór til að falla undir ETS en það gæti breyst síðar meir. Eins og er þurfa úrgangsbrennslur aðeins að vakta losun og skila skýrslu þar um. Nýtt skilyrði um varanlega kolefnisbindingu segir að rekstraraðilar, flugrekendur og skipafélög geti fangað og varanlega geymt lífrænt kolefni á móti losun jarðefnaeldsneytis. Þetta getur haft þau áhrif að íslensk fyrirtæki sem hafa bæði losun frá lífrænum afurðum og öðrum geta fangað sameiginlegan straum og geymt varanlega og skilað af sér færri losunarheimildum. Flug SAF stuðningur verði framlengdur til 2040. Hlutföll varðandi hversu mikill stuðningur fæst eru lækkuð, sem getur haft áhrif á hversu mikinn stuðning íslensk flugfélög fá vegna SAF notkunar, en 100% stuðningurinn sem gildir vegna SAF sem er tekið á ákveðnum flugvöllum verður áfram. Samkvæmt EES aðlögun geta flugfélög fengið 100% stuðning vegna verðmunar á SAF og hefðbundnu flugvélaeldsneyti ef SAF er tekið á flugvelli á Íslandi og ef sambærileg aðlögun fengist myndi það gilda til 2040. SAF stuðningur mun ná yfir öll flug sem leggja af stað frá flugvelli innan EES, með takmörkunum sem munu gilda um viðskiptaflug. Aukinn stuðningur vegna notkunar SAF fæst ef eldsneytið er framleitt í aðildarríkjum, sem getur stutt við tækifæri slíkrar framleiðslu á Íslandi sem og annars staðar í EES. Undanþága frá skilaskyldu ETS vegna flugs til og frá ríkjum sem beita CORSIA verður framlengd frá lokum 2026 til loka 2035. Sömuleiðis eru reglur um framkvæmd CORSIA rýmkaðar og gefa flugrekendum tækifæri á að nýta fleiri tegundir CORSIA-eininga. Landfræðilegt gildissvið ETS fyrir flug verður útvíkkað frá 2029 þannig að það nær til fluga frá EES til ákveðinna flugvalla í þriðju ríkjum sem eru innan við 5000 km frá flugvellinum í Frankfurt. Þetta gæti haft áhrif á íslenska flugrekendur, t.d. vegna fluga til Tyrklands og Ísraels. Minni flugrekendur munu einnig falla undir ETS ef þeir losa meira en 1000 tCO2, en núverandi viðmið er 10.000 tCO2. Þetta gæti haft áhrif á minni flugrekendur á Íslandi, sem eins og er falla utan ETS. Minni flugrekendur munu geta nýtt sér small emitters tool til þess að minnka stjórnsýslubyrði þeirra. Sjóflutningar Nýtt SMAP stuðningskerfi fyrir sjóflutninga verður sett á laggirnar 2028 og gildir til 2040. Skipafélög geta þá fengið stuðning vegna notkunar sjálfbærs skipaeldsneytis og uppsetningar og notkunar núlllosunar knúningstækni (e. zero-emission propulsion technology). Aukinn stuðningur fæst vegna ferða á milli EES-hafnar og EES-hafnar sem er á eyju, ef það þarf að skila losunarheimildum vegna þeirra ferða, en það þarf að fá á hreint hvort Ísland teljist ekki örugglega sem eyja í þessum skilningi. Sömuleiðis fæst aukinn stuðningur vegna notkunar sjálfbærs skipaeldsneytis sem er framleitt í aðildarríki eða ef núllosunar knúningstæknin var sett upp í aðildarríki. Þessi aukni stuðningur getur stutt við slíka starfsemi í aðildarríkjum EES, þ.á.m. á Íslandi. Það er tekið skýrar fram en áður að í því tilviki að alþjóðlegt kerfi fyrir losun í sjóflutningum verði tekið upp muni vera komið í veg fyrir tvítalningu, svo að ekki mun þurfa að greiða tvöfalt fyrir losunina vegna sjóferða til og frá Íslandi, líkt og einhverjir hagaðilar hafa haft áhyggjur af. Gildissvið sjóflutninga verður útvíkkað frá 2031 þannig að tilteknar gerðir skipa sem eru 400-5.000 brúttótonn að stærð muni falla undir kerfið. Farþegaskip, bæði ferjur og ekjuferjur (e. Ro-pax ships), af þessari stærð munu áfram falla utan ETS en munu hafa vöktunar- og skýrsluskyldu sem hefur áhrif á skyldur stofnana og fyrirtækja sem reka ferjur á Íslandi, m.a. Vegagerðina. Annað Nýjar kröfur eru settar fram varðandi notkun aðildarríkja á tekjum af sölu uppboðsheimilda, þar sem a.m.k. 50% af tekjum skuli notað til verkefna sem styðja við geira sem falla undir ETS til afkolunar, orkunýtni, nýsköpunar, raforkudreifingu o.fl. Hér á landi getur þetta haft mikla þýðingu t.d. fyrir minni iðnað sem vinnur t.d. á skertri raforku, varðandi stuðning við verkefni á sviði framleiðslu sjálfbærs eldsneytis og niðurdælingar koltvísýrings o.fl.. Jafnvel þótt að notkun tekna af sölu uppboðsheimilda falli ekki undir EES samninginn gæti verið skynsamlegt að nota ETS tekjur til að styðja við fjárfestingar sem styrkja raforkunetið/flutningsleiðir, raforkugeymslu og aðra möguleika sem auka sveigjanleika raforkukerfa, sem og til að styðja við verkefni sem geta dregið úr losun innan annarra ETS geira, til að íslensk fyrirtæki sitji við sama borð og önnur. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2026) 616 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu |
