32023D2698

Commission Implementing Decision (EU) 2023/2698 of 4 December 2023 on the specification of reference CO2 emissions of heavy-duty vehicle groups not covered by Regulation (EU) 2019/1242 of the European Parliament and of the Council pursuant to Directive 1999/62/EC of the European Parliament and of the Council

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 303/2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin fjallar um gjaldtöku vegna notkunar á vegamannvirkjum. Gjaldtakan á að vera breytileg í samræmi við losun gróðurhúsalofttegunda frá ökutækjunum. Með ákvörðuninni er viðmiðunarlosun koltvísýrings tilgreind fyrir þung ökutæki, svo sem tilteknar tegundir vörubíla. Ekki kostnaður fyrir hið opinbera. Líklega kostnaður fyrir eigendur ökutækja.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmið með ákvörðuninni er að gera forsendur fyrir gjaldtöku fyrir notkun á vegamannvirkjum skýrari.Efnisútdráttur: Ákvörðunin er um gjaldtöku vegna notkunar á vegamannvirkjum. Gjaldtakan á að vera breytileg í samræmi við losun gróðurhúsalofttegunda frá þeim. Með ákvörðuninni er viðmiðunarlosun koltvísýrings tilgreind fyrir þung ökutæki svo sem tilteknar tegundir vörubíla.Í tilskipun (EB) 1999/62 er aðildarríkjum falið að byggja gjöld fyrir notkun þungra ökutækja á losun koltvísýrings. Í b-lið 38. tölul. 1. mgr. 2. gr. tilskipunarinnar er útskýrt hvernig eigi að reikna gjöldin. Útreikningur gjalda fyrir þung ökutæki er með öðrum hætti en fyrir ýmsa aðra flokka ökutækja. Þau ökutæki eru síðan tilgreind í 4. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2400.Fyrir ökutækjahópa sem ekki falla undir reglugerð (ESB) 2019/1242, skal viðmiðunarlosun koltvísýrings byggjast á reglugerð (ESB) 2018/956.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Ákvörðunin felur í sér að hægt er að fella fleiri ökutæki undir gjaldtöku vegna notkunar á vegamannvirkjum. Verði niðurstaðan sú að gjaldtakan á að fara þannig fram að hún sé lögð á öll sambærileg ökutæki óháð notkun á einstaka vegamannvirkjum verður eina hlutverk Samgöngustofu að sjá til þess að þeir reitir í ökutækjaskrá sem innihalda upplýsingar um losun ökutækjanna - grundvöll gjaldtökunnar - séu til staðar og uppfærðir. Stofnunin er undirbúin að því leyti.Ráðuneytið leitaði jafnframt álits Vegagerðarinnar á gerðinni. Stofnunin gerði ekki athugasemdir við að gerðin yrði hluti af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Stofnunin benti jafnframt á að við gjaldtöku væri rétt að líta til gerðarinnar.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 6. mgr. 17. gr. vegalaga nr. 80/2007. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð um gjaldtöku af umferð flutningabifreiða, nr. 476/2017.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Ekki kostnaður hjá Samgöngustofu. Kostnaður fyrir eigendur ökutækja. Sá kostnaður yrði í formi skatta, veggjalda eða notkunargjalda.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Vegagerðin, fjármála- og efnahagsráðuneytið.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 6. mgr. 17. gr. vegalaga nr. 80/2007. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð um gjaldtöku af umferð flutningabifreiða, nr. 476/2017.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023D2698
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2698, 06.12.2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 25, 24.4.2025, p. 85
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/568, 24.4.2025

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Hvít: Ekki þörf á laga- eða reglugerðabreytingum til að innleiða gerðina