32016R2292
Commission Implementing Regulation (EU) 2016/2292 of 16 December 2016 setting out the weighted average of maximum mobile termination rates across the Union and repealing Implementing Regulation (EU) 2015/2352
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2292 frá 16. desember 2016 um vegið meðaltal hæsta verðs fyrir lúkningu símtala í farsíma í Sambandinu og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/2352
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn en er ekki lengur í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.01 Fjarskiptaþjónusta |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 105/2017 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Nei |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin sem hér er til umfjöllunar kveður á um vegið meðaltal hámarkslúkningarverðs í farsímanetum fyrir reikiþjónustu innan Evrópusambandsins og byggir á reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 531/2012 um alþjóðlegt reiki á farnetskerfum innan Evrópusambandsins.
Með reglugerð Evrópusambandsins nr. 2015/2120, sem einnig byggir á heimild í reglugerð 531/2012, var ákveðið að framkvæmdastjórn ESB myndi árlega ákvarða
Með reglugerð Evrópusambandsins nr. 2015/2120, sem einnig byggir á heimild í reglugerð 531/2012, var ákveðið að framkvæmdastjórn ESB myndi árlega ákvarða
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin sem hér er til umfjöllunar kveður á um vegið meðaltal hámarkslúkningarverðs í farsímanetum fyrir reikiþjónustu innan Evrópusambandsins og byggir á reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 531/2012 um alþjóðlegt reiki á farnetskerfum innan Evrópusambandsins.
Með reglugerð Evrópusambandsins nr. 2015/2120, sem einnig byggir á heimild í reglugerð 531/2012, var ákveðið að framkvæmdastjórn ESB myndi árlega ákvarða hámarkslúkningarverði fyrir reikiþjónustu innan EES-svæðisins og skyldi það byggt á vegnu meðaltali lúkningargjalda fyrir slíka þjónustu, þar til nýtt gjaldskrárfyrirkomulag yrði tekið í notkun, þ.e. Roam like Home.
Með lúkningarverði er átt við það gjald sem fjarskiptafyrirtæki í því landi sem símtal á sér stað í má leggja á gjaldanda frá öðru ríki til viðbótar þeirri gjaldskrá sem þar gildir. Gjaldið er síðan innheimt af þeim sem hringir fyrir milligöngu þess fjarskiptafyrirtækis sem hann á viðskipti við í sínu heimalandi. Lúkningarverð hafa verið nefnd reikigjöld í almennu tali.
Í samræmi við reglugerðina og fyrri reglugerðir sama efnis hafa reikigjöld, þ.e. lúkningarverðið, verið lækkuð með því að setja á þau hámark á undanförnum árum. Í þessari tilteknu reglugerð er gert ráð fyrir enn einu lækkunarþrepi reikigjalda sem tekur gildi þann 1. febrúar 2016. Þann 30. júní 2017 falla reikigjöld síðan niður að fullu og gildir þá innanlands gjaldskrá þess ríkis sem símtal er hafið í án nokkurra viðbótargjalda. Þessi nýja ákvörðun um hámarkslúkningarverð leysir af hólmi fyrri ákvörðun, sbr. innleiðingarreglugerð ESB nr. 2015/2352.
Upphæð lúkningarverðsins á að byggja á vegnu meðaltali hámarkslúkningarverðs í farsímanetum fyrir reikiþjónustu innan sambandsins og á framkvæmdastjórnin að reikna það út og taka um það ákvörðun og liggur sá útreikningur nú fyrir.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í 2. mgr. 35 gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003. Innleiðing mun fara fram með breytingu á reglugerð nr. 1174/2012 um alþjóðlegt reiki á almennum farsímanetum innan Evrópska efnahagssvæðisins |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
Samráð | Nei |
---|---|
Hvaða hagsmunaaðilar | póst og fjarskiptastofnun |
Niðurstöður samráðs | Sjá efnisútdrátt |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
---|---|
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Sjá efnisútdrátt |
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Fjarskiptastofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32016R2292 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 344, 17.12.2016, p. 77 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D048235/02 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 37, 7.6.2018, p. 2 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 142, 7.6.2018, p. 3 |