Nýfæði - 32020R0973

Commission Implementing Regulation (EU) 2020/973 of 6 July 2020 authorising a change of the conditions of use of the novel food ‛protein extract from pig kidneys’ and amending Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/973 frá 6. júlí 2020 um leyfi fyrir breytingum á skilyrðum fyrir notkun á nýfæðinu „prótínútdráttur úr svínsnýrum“ og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 196/2020
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB)2020/973 um breytingu notkun nýfæðisins „prótínútdráttur úr svínanýrum“ og um leiðréttingu á framkvæmdareglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Nýfæðið „prótínútdráttur úr svínanýrum“ er á lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði í reglugerð 2017/2470. Efnið er leyft til notkunar í sérfæði og í fæðubótarefni í hylkjaformi.

Sótt hefur verið um leyfi til að markaðssetja efnið í húðuðum töflum til notkunar í sérfæði og í fæðubótarefni. Hámarks dagskammtur verður óbreyttur.

Framkvæmdastjórnin telur ekki ástæðu til að leita álits EFSA á breytingunni þar sem ekki er talið líklegt að hún hafi áhrif á heilsu manna.

Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er því breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd sem breyting við reglugerð nr. 900/2018 og með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R0973
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 215, 7.7.2020, p. 7
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 70, 28.9.2023, p. 42
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 240, 28.9.2023, p. 43