MiCA - 32023R1114
Regulation (EU) 2023/1114 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2023 on markets in crypto-assets, and amending Regulations (EU) No 1093/2010 and (EU) No 1095/2010 and Directives 2013/36/EU and (EU) 2019/1937


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 041/2025 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Gerðin fjallar um samevrópskar reglur um útgáfu, almennt útboð og leyfi til viðskipta með sýndareignir. Reglunum er m.a. ætlað að stuðla að nýsköpun, fjárfestavernd og heilbrigðum viðskiptamarkaði ásamt því að tryggja fjármálastöðugleika í viðskiptum með sýndareignir.
Nánari efnisumfjöllun
Í gerðinni eru sýndareignir skilgreindar sem stafræn framsetning á gildi eða réttindum sem hægt er að flytja og geyma rafrænt með dreifðri færsluskrártækni (e. Distributed Ledger Technology) eða svipaðri tækni. Gerðin tekur til þriggja meginflokka sýndareigna: 1) Rafeyristóki (e. electronic money token) sem skilgreinist sem form rafeyris sem heldur virði sínu í hlutfalli við einn opinberan gjaldmiðil. 2) Eignatengdur tóki (e. asset-referenced token) sem er ekki rafeyristóki og hefur þann tilgang að viðhalda virði sínu í hlutfalli við önnur verðmæti eða réttindi, þ. á m. einn eða fleiri opinberan gjaldmiðil. 3) Aðrar sýndareignir sem ekki eru refeyristókar eða eignatengdir tókar. Mismunandi skilyrði gilda fyrir þá aðila sem vilja stunda viðskipti með þessar þrjár tegundir meginflokka sýndareigna, t.a.m. starfsleyfi, útgáfa upplýsingaskjals, ábyrgðartrygging o.fl. Þá fjallar gerðin um þjónustuveitendur sýndareigna og gerir hún ítarlegar kröfur um skipulag og starfsemi þeirra. Gerðin fjallar einnig um reglur til að koma í veg fyrir markaðsmisnotkun og innherjaviðskipti. Þær reglur svipa til almennra markaðsmisnotkunarreglna sem gilda um fjármálagerninga.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Nei |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Efnislegri aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Setja þarf ný lög til innleiðingar á reglugerðinni. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing í vinnslu |
Samráð
Hvaða hagsmunaaðilar | Seðlabankinn, Fjártækniklasinn og Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu |
---|
Áhrif
Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Kostnaður hins opinbera er óverulegur og gæti fyrst og fremst falist í auka stöðugildi hjá Seðlabanka Íslands. Þeirri fjármögnun verður mætt á grundvelli laga um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 99/1999. |
---|---|
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Seðlabanki Íslands |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32023R1114 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 150, 9.6.2023, p. 40 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
COM numer | COM(2020) 593 |
---|---|
Dagsetning tillögu ESB | |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur) |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 30, 8.5.2025, p. 69 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/765, 8.5.2025 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1 |
---|