32020R1627
Commission Implementing Regulation (EU) 2020/1627 of 3 November 2020 on exceptional measures for the third reference period (2020-2024) of the single European sky performance and charging scheme due to the COVID-19 pandemic
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1627 frá 3. nóvember 2020 um sérstakar neyðarráðstafanir fyrir þriðja viðmiðunartímabil (2020-2024) frammistöðu- og gjaldtökukerfis samevrópska loftrýmisins vegna COVID-19-heimsfaraldursins
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 224/2020 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Um er að ræða innleiðingargerð um sérstakar ráðstafanir vegna COVID-19 fyrir þriðja viðmiðunartímabil (2020-2024) frammistöðu- og gjaldtökukerfis fyrir samevrópska loftrýmið. Markmið með gerðinni er að setja fram undanþágur en með þeim frestast að hluta gildistaka þriðja viðmiðunartímabils frammistöðumarkmiða (RP3) í samevrópska loftrýminu. Engin áhrif hér á landi. Kostnaður óverulegur.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða innleiðingargerð um sérstakar ráðstafanir vegna COVID-19 fyrir þriðja viðmiðunartímabil (2020-2024) frammistöðu- og gjaldtökukerfis fyrir samevrópska loftrýmið. Markmið með gerðinni er að setja fram undanþágur en með þeim frestast að hluta gildistaka þriðja viðmiðunartímabils frammistöðumarkmiða (RP3) í samevrópska loftrýminu.
Aðdragandi: Í framkvæmdareglugerð (ESB) 2019/317 eru útfærðar kröfur um frammistöðu- og gjaldtökukerfi fyrir samevrópska loftrýmið.
Ákvæði um frammistöðukerfi í hinu sameiginlega evrópska loftrými miða að því að auka afköst flugleiðsöguþjónustu og virkni neta, auk þess sem markmið með gjaldtökukerfisákvæðum er að koma á árangursríku hagrænu eftirliti með flugleiðsöguþjónustuveitendum.
Reglugerð (ESB) 2019/317 hefur verið innleidd á Íslandi en er ekki beitt hér á landi þar sem ákvæði um frammistöðu- og gjaldtökukerfi eiga ekki við hér á landi vegna landfræðilegrar legu loftrýmisins. Gildissvið þeirrar gerðar miðast við EUR/AFI svæðið og er henni því ekki beitt hér á landi.
Efnisútdráttur: Vegna áhrifa COVID-19 heimsfaraldursins á flugleiðsöguþjónustu skulu tiltekin undanþáguákvæði sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2019/317 eiga við um yfirstandandi ferli við innleiðingu frammistöðu- og gjaldtökukerfa fyrir þriðja viðmiðunartímabil 2020-2024 (RP3).
Undanþáguákvæðin skulu gilda þegar í stað svo framkvæmdastjórnin og aðildarríkin geti gripið hratt til viðeigandi ráðstafana og svo draga megi úr neikvæðum fjárhagslegum áhrifum vegna ástandsins á loftrýmisnotendur.
Reglugerð þessi kveður á um sérstakar ráðstafanir sem beita skal fyrir þriðja viðmiðunartímabil frammistöðu- og gjaldtökukerfa fyrir samevrópska loftrýmið, sem kveðið er á um í 1. mgr. 7. gr. reglugerðar (ESB) 2019/317.
Meðal undanþága/breytinga sem kveðið er á um í þessari gerð:
- framkvæmdastjórnin setja fram breytt frammistöðumarkmið fyrir 1. maí 2021.
- landsbundin eftirlitsyfirvöld skulu gera frammistöðuáætlanir fyrir 1. október 2021.
- netstjórnandi skal eigi síðar en 1. október 2021 leggja fram endurskoðuð drög að frammistöðuáætlun netanna.
Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Gildissvið reglugerðarinnar miðast við EUR/AFI loftrýmið og því verður henni ekki beitt hér á landi.
Gerðin hefur engin áhrif hér á landi enda beitum við ekki kerfum ESB um frammistöðu/gjaldtöku.
Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.
Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 1125/2014 um frammistöðukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu og starfsemi neta, og sbr. 2. gr. þeirrar reglugerðar gildir hún eingöngu í EUR og AFI svæðum ICAO og þar með ekki á Íslandi.
Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er enginn.
Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei
Tilgreining á hagsmunaaðilum: ekki ástæða til
Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei
Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 1125/2014 um frammistöðukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu og starfsemi neta |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32020R1627 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 366, 4.11.2020, p. 7 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 70, 28.9.2023, p. 87 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 240, 28.9.2023, p. 96 |