32021R0347

Commission Implementing Regulation (EU) 2021/347 of 25 February 2021 approving active chlorine released from hypochlorous acid as an active substance for use in biocidal products of product-types 2, 3, 4 and 5


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/347 frá 25. febrúar 2021 um að samþykkja virkan klór, sem er leystur úr undirklórsýru, sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3, 4 og 5
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 289/2021
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin felur í sér að samþykkja virkt klór losað úr hýpóklórsýru til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3, 4 og 5 að uppfylltum þeim forskriftum og skilyrðum sem koma fram í viðauka við reglugerðina.

Gildistími samþykkisins er 30. júní 2032.

Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Virkt klór losað úr hýpóklórsýru hefur verið metið til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3, 4 og 5, eins og þeir eru skilgreindir í V. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB, sem samsvarar vöruflokkum 2, 3, 4 og 5 í V. viðauka reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Slóvakía, sem lögbært matsyfirvald, skilaði matsskýrslu ásamt niðurstöðu sinni til framkvæmdastjórnarinnar þann 19. nóvember 2010.

Að teknu tilliti til niðurstöðu lögbæra matsyfirvaldsins samþykkti sæfivörunefndin álit Efnastofnunar Evrópu þann 16. júní 2020, í samræmi við 2. mgr. 7. gr. framseldrar reglugerðar (ESB) nr. 1062/2014.

Samkvæmt álitinu má vænta þess að sæfivörur í vöruflokkum 2, 3, 4 og 5 sem nota virkt klór losað úr hýpóklórsýru, uppfylli kröfurnar sem mælt er fyrir um í 5. gr. tilskipunar 98/8/EB, að því tilskildu að farið sé að tilteknum forskriftum og skilyrðum varðandi notkun þeirra.

Að teknu tilliti til álits Efnastofnunarinnar er viðeigandi að samþykkja virkt klór losað úr hýpóklórsýru sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3, 4 og 5 að uppfylltum þeim forskriftum og skilyrðum sem koma fram í viðauka við reglugerðina.

Þær forskriftir og skilyrði eru eftirfarandi:
- Við mat á vörunni skal huga sérstaklega að váhrifum, áhættu og virkni tengdri hverri notkun sem er sótt um og er til yfirferðar í mati á markaðsleyfi, en ekki fjallað um í áhættumati virka efnisins á vettvangi Sambandsins.
- Sérstök skilyrði fyrir vöruflokk 2:
Við mat á vörunni skal huga sérstaklega að hlífðarbúnaði þegar varan er notuð í atvinnuskyni til að sótthreinsa hörð yfirborð með moppu eða þurrku.
- Sérstök skilyrði fyrir vöruflokka 3, 4 og 5:
- Fyrir vörur sem geta skilið eftir leifar í matvælum eða fóðri þarf að sannreyna hvort þörf sé á að setja ný eða breyta hámarksgildum leifa (MRL) í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 470/2009 eða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005. Gera skal viðeigandi ráðstafanir til að milda áhættu svo að ekki verði farið yfir hámarksgildi leifa.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf reglugerðina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R0347
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 68, 26.2.2021, p. 170
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D069102/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 19, 29.2.2024, p. 17
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/537, 29.2.2024