Útdráttur
Verið er að einfalda og skýra reglur um staðla um losun CO2 í reglugerð (ESB) 2019/631 og í reglugerðum (ESB) 1014/2010 og (ESB) 293/2012. Jafnframt er verið að sameina reglugerðirnar. Þessar breytingar hafa fyrst og fremst áhrif á Samgöngustofu hér á landi þar sem þetta eru gögn sem stofnunin þarf að afla og senda út til Eftirlitsstofnunar EFTA. Breytingin mun þarfnast uppfærslu á tölvukerfum en þegar er hafin vinna við það. Að öðru leyti snúa þessar breytingar að framleiðendum en ekki er starfandi framleiðandi hér á landi.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Verið er að einfalda og skýra reglur um staðla um losun CO2 í reglugerð (ESB) 2019/631 og í reglugerðum (ESB) 1014/2010 og (ESB) 293/2012. Jafnframt er verið að sameina reglugerðirnar. Í þeim tilgangi eru settir verkferlar um hvernig á að fylgjast með og skila skýrslum með gögnum um nýja fólksbíla og létt atvinnuökutæki sem eiga að vera undir eftirliti stjórnvalda, framleiðanda, framkvæmdastjórnarinnar og eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og umhverfisstofnunar ESB (e. European Environment Agency, EEA). Framleiðendur og aðildarríki eiga að skila inn gögnum á hverju almanaksári til ESA og EEA. Gögnunum skal skila í gegnum gagnabanka sem EEA leggur til. Séu gögnin ekki aðgengileg skal upplýsa ESA um það og ástæður fyrir því.Efnisúrdráttur:1. gr. er farið yfir efni reglugerðarinnar en hún fjallar um nákvæmar reglur um verkferla um hvernig á að fylgjast með og skila skýrslum um gögn um losun CO2.2. gr. er um skilgreiningar.2. kafli fjallar um hvernig á að tilkynna um gögn í samræmi við 7. gr. reglugerðar (ESB) 2019/631. Í 3. gr. í þeim kafla er fjallað um hvernig aðildarríki skal tryggja aðgang að þessum gögnum.3. kafli fjallar um söfnun og tilkynningu á raungögnum. Í 10. gr. er fjallað um slíkt fyrir aðildarríki í samræmi við reglugerð (ESB) 2014/45 um skoðun ökutækja frá 20. maí 2023.4. kafli fjallar um eftirlit og tilkynningu á gögnum úr prófunum sem gerðar eru skv. reglugerð 2017/1151.Að lokum er viðauki um gagnaöflunina.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Þessar breytingar hafa áhrif á Samgöngustofu þar sem þetta eru gögn sem stofnunin þarf að afla og senda út til ESA/EEA. Breytingin mun þarfnast uppfærslu á tölvukerfum en þegar er hafin vinna við það.Að öðru leyti snúa þessar breytingar að framleiðendum en ekki er starfandi framleiðandi hér á landi.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, innleitt í reglugerð um gerð og búnað ökutækja.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður sem hlýst af tölvuuppfærslu og mögulega aukin vinna starfsmanna Samgöngustofu. Að hluta til er það sem hér um ræðir hluti af því sem telst reglubundin starfsemi stofnunarinnar. Með öðrum orðum að alla jafna er verið að taka saman margs konar gögn og senda út til ESA/EEA. Hér er um að ræða viðbót við það.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Umhverfis- og auðlindaráðuneytið mögulega.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Framleiðendur ökutækja, eigendur ökutækja, Samgöngustofa.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Verið að tala um að senda gögn til framkvæmdastjórnarinnar ESB og með aðlögun ESA.