Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Aðildarríkjum ber að leggja fram upplýsingar samkvæmt reglugerð um eftirlit og tilkynningar um CO2-losun þungra ökutækja. Með þessari afleiddu gerð bætast við upplýsingar um fjölda aflrása. Þessar upplýsingar munu auðvelda að samræma upplýsingar sem annars vegar aðildarríkin leggja fram og hins vegar upplýsingar sem framleiðendur leggja fram. Það mun síðan verða til að draga úr óþarfa stjórnsýslubyrði.Aðdragandi: Í A-hluti viðauka I við reglugerð 2018/956/ESB eru tilgreind þau atriði um þung ökutæki sem skráð eru í fyrsta sinn sem aðildarríki ESB eiga að hafa eftirlit með og tilkynna.Til að gera ráð fyrir nákvæmri greiningu í samræmi við 10. gr. reglugerðar 2018/956/ESB, skulu aðildarríki hafa eftirlit með og tilkynna atriði sem gera kleyft að skera úr um samskipan ása ökutækis, e. vehicle axle configuration, á tilkynntum ökutækjum á grundvelli fjölda aflrása, e. powered axle. Slíkar upplýsingar eru skráðar í reit 3 á samræmisvottorði nýlega skráðs ökutækis.Þessar upplýsingar myndu auðvelda framkvæmdastjórninni að bera kennsl á ökutæki sem teljast til þeirra sem framleiðendur eiga að tilkynna skv. 5. gr. reglugerðar 2018/956/ESB.Ákveðin reynsla fékkst við að undirbúa skýrslur í samræmi við 10. gr. reglugerðar 2018/956 fyrir tilkynningarárið 2019. Í þeim tilgangi að gera ráð fyrir nákvæmri greiningu á þeim upplýsingum sem sendar verða næstu árin er nauðsynlegt að framleiðendur tilkynni niðurstöður greininga á því hvernig einstakir hlutar ökutækja hegða sér í prófunum og skrái það í sérstaka skrá, e. sum exec data file.Viðauki II við reglugerð 2018/956/ESB kveður á um framkvæmd við eftirlit og tilkynningar.Byggt á reynslunni við beitingu reglugerðar 2018/956/ESB, ætti Umhverfisstofnun Evrópu, e. European Environment Agency, að hafa sveigjanleika til að aðlaga uppbyggingu og einkenni gagnagrunna um tæknileg ferli. Það ætti ekki að vera bundið við sérstakar tæknilegar ákvarðanir. Lýsandi nöfn gagnagrunnanna ætti því að fjarlægja úr viðauka II.Efnisútdráttur: Viðauki I við reglugerð 2018/956/ESB breytist með eftirfarandi hætti:- í A-hluta bætist við nýr liður (p) svohljóðandi: fyrir ökutæki sem skráð eru frá og með 1. júlí 2021, fjöldi aflrása, eins og tilgreint er í reit 3 í samræmisvottorði.- í 2. lið B-hluta breytist tafla til að gera ráð fyrir sérstakri skrá um prófun í prófunartæki, e. sum exec data file. Einnig er 10. lið breytt þannig að ekki eigi að gera tiltekinn lið aðgengilegan í miðlægri skrá yfir þung ökutæki.Viðauki II við reglugerð 2018/956/ESB breytist með eftirfarandi hætti:- 1. undirliður liðar 1.1. breytist þannig að kveðið er á um að þær upplýsingar sem tilgreindar eru í A-hluta viðauka I, eigi að senda í samræmi við 4. gr. af tengilið lögbæra stjórnvaldsins með rafrænum gagnaflutningum til Umhverfisstofnunar Evrópu, e. European Environment Agency.- Liður 2.1(c) verður svohljóðandi: tengiliður sem ber ábyrgð á að senda upplýsingarnar til Umhverfisstofnunar Evrópu.- 1. undirliður liðar 2.3 breytist þannig að kveðið er á um að þær upplýsingar sem tilgreindar eru í 2. lið B-hluta af viðauka I eigi að senda í samræmi við 1. mgr. 5. gr. af tengilið framleiðandans með rafrænum gagnaflutningum til Umhverfisstofnunar Evrópu (e. European Environment Agency).Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Hefur aðallega áhrif á framleiðendur ökutækja sem ekki er að finna hér á landi: Smávægileg breyting á þeim upplýsingum sem sendar eru á grundvelli reglugerðar 2018/956/ESB.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.Innleitt í reglugerð um gerð og búnað ökutækja, nr. 822/2004.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Óverulegur.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: NeiHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.