Næringar- og heilsufullyrðingar - 32022R0719
Commission Regulation (EU) 2022/719 of 10 May 2022 refusing to authorise certain health claims made on foods, other than those referring to the reduction of disease risk and to children’s development and health
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/719 frá 10. maí 2022 um synjun leyfis fyrir tilteknum heilsufullyrðingum er varða matvæli og vísa hvorki til minnkunar á sjúkdómsáhættu né til þroskunar eða heilbrigðis barna
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 301/2022 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2022/719 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu er varðar matvæli og vísar hvorki til að dregið sé úr sjúkdómsáhættu né þroskunar og heilbrigðis barna.
Nánari efnisumfjöllun
Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 1924/2006 um næringar og heilsufullyrðingar, einkum gr. 13 í þeirri reglugerð. Samkvæmt reglugerðinni eru næringar og heilsufullyrðingar bannaðar nema þær séu heimilaðar af framkvæmdastjórn ESB í samræmi við reglugerð 1924/2006 og birtar á lista yfir leyfilegar fullyrðingar. Sótt var um leyfi fyrir fullyrðingu í samræmi við gr. 13(5) í reglugerð (ESB) nr. 1924/2006. Matvælaöryggisstofnuninni (EFSA) var falið að gefa umsögn um heilsufullyrðingu er varðar Bifidobacterium animalis subsp. lactis Bi-07 (Bi-07) og þátt hennar í að auka meltanleika mjólkursykurs (laktósa) hjá einstaklingum sem eiga erfitt með að melta laktósa. Samkvæmt áliti EFSA er ekki hægt, samkvæmt innsendum gögnum, að staðfesta samband milli neyslu á Bifidobacterium animalis subsp. lactis Bi-07 (Bi-07) og jákvæðra lífeðlisfræðilegra áhrifa hjá einstaklingum með laktósaóþol. Á grundvelli ályktana EFSA hafnar framkvæmdastjórnin umsókninni.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Á ekki við |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Reglugerðin verður innleidd sem ný reglugerð með tilvísun í reglugerð (EB) nr. 1924/2006 og með stoð i lögum um matvæli nr. 93/1995. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Matvælaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32022R0719 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 134, 11.5.2022, p. 1 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 48, 29.6.2023, p. 24 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 164, 29.6.2023, p. 24 |