32022R2195
Commission Regulation (EU) 2022/2195 of 10 November 2022 amending Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council as regards the use of Butylated Hydroxytoluene, Acid Yellow 3, Homosalate and HAA299 in cosmetic products and correcting that Regulation as regards the use of Resorcinol in cosmetic products


Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2195 frá 10. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á bútýlhýdroxýtólúeni, Acid Yellow 3, hómósalati og HAA299 í snyrtivörur og um leiðréttingu á þeirri reglugerð að því er varðar notkun á resorsínóli í snyrtivörur
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 093/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin breytir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Breytingar fela í sér að uppfæra skrá í III. viðauka yfir efni sem eru háð takmörkunum varðandi notkun sem innihaldsefni í snyrtivörum, á þann hátt að tveimur færslum er bætt við og skrá í VI. viðauka yfir útblámasíur (UV-síur) er uppfærð til að herða skilyrði varðandi notkun tveggja efna. Einnig er gerð leiðrétting á færslu sem er skráð í III. viðauka þar sem hluti varnarsetningar sem á ekki lengur við er fjarlægð.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin breytir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.Breytingarnar fela í sér að :1. Efnasmíðaða andoxunarefnið 2,6-Dí-Tert-Bútýl-4-Methýlfenóli, INCI nafn: Bútýlerað hýdroxýtólúen (CAS 128-37-0) er bætt við skrá í III.viðauka og hámarksstyrkur þess takmarkaður við 0,001 % í munnskoli, 0,1% í tannkremi og 0,8% í öðrum snyrtivörum vegna upplýsinga sem benda til innkirtlatruflandi eiginleika efnisins.2. Efninu 1H-Inden-1,3(2H)-díón, 2-(2-kínólínýl)- súlfað, natríumsölt (CAS 8004-92-0), eða gult litarefni (Acid Yellow 3) er bætt við í skrá í III. viðauka, til notkunar í hárlitunarvörum sem eru ekki oxandi og hármarksstyrkur efnisins í er takmarkaður við 0,5% í vörum sem er tilbúnar til notkunar.3. Færsla 3 í IV. viðauka yfir útblámasíur er uppfærð fyrir efnið Benzósýra, 2-hýdroxý, 3,3,5 trímethýlsýklóhexýlester (CAS 118-56-9), INCI nafn Hómósalat, á þann hátt að hómósalat má eingöngu nota fyrir andlitsvörur (í ílátum sem eru ekki spreybrúsar eða spreybrúsar með pumpu) í hámarksstyrk 7.34% í vörum tilbúnum til notkunar.4. Færslu með efninu 1,1'-(1,4-píperasíndíýl)bis[1-[2-[4-(díetýlamínó)-2- hýdroxýbensóýl]fenýl]-metanón, INCI nafn: Bis-(Díetýlamínóhýdroxýbensóýl ) píperasín (HAA299) er bætt við í IV. viðauka yfir útblámasíur. Hámarksstyrkur HAA299 og HAA299 (nano) er takmarkaður við 10% og fyrir HAA299 (nano) er einnig tekið fram að „Aðeins nanóefni sem hafa eftirfarandi eiginleika eru leyfð: hreinleiki ≥ 97% ,meðalgildi kornastærðar D50 (50% með lægri en þetta þvermál): ≥ 50 nm af stærðardreifingu og HAA299(nano) er “Ekki til notkunar sem gæti leitt til váhrifa á lungu endanlegs notanda við innöndun“.Hæfilegur tími skal gefinn iðnaði til að aðlagast breyttum skilyrðum, þar á meðal tíma til endurblöndun efna og innköllun snyrtivara sem uppfylla ekki tilgreind skilyrði vegna krefjandi breytinga varðandi útblámasíur og þá sérlega vegna skilyrða um styrk hómósalats þar sem virkniprófanir eftir endurblöndun efna er nauðsynleg.Leiðréttingar eru einnig gerðar á færslu 22 í III. Viðauka fyrir efnið 1,3-bensendíól (CAS 108-46-3), INCI nafn Resorsinól, þar sem varnarorðum er breytt á þann hátt að fellt er út: “eða augnbrúnir” í setningunni “Notist ekki til að lita augnhár eða augabrúnir”. Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breyta þarf reglugerð nr. 577/2031 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32022R2195 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 292, 11.11.2022, p. 32 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D081971/01 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 35 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/02248, 9.11.2023 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
---|---|
Viðeigandi lög/reglugerði |