32022R2236
Commission Delegated Regulation (EU) 2022/2236 of 20 June 2022 amending Annexes I, II, IV and V to Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council as regards the technical requirements for vehicles produced in unlimited series, vehicles produced in small series, fully automated vehicles produced in small series and special purpose vehicles, and as regards software update
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2236 frá 20. júní 2022 um breytingu á I., II., IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/858 að því er varðar tæknilegar kröfur fyrir ökutæki sem eru framleidd í ótakmörkuðum framleiðsluröðum, ökutæki sem eru framleidd í litlum framleiðsluröðum, ökutæki sem eru sjálfkeyrandi að fullu og ökutæki til sérstakra nota og að því er varðar uppfærslu á hugbúnaði
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 177/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð eru settar fram tæknilegar kröfur sem beita skal þegar veittar eru gerðarviðurkenningar á ökutækjum sem framleidd eru í takmörkuðu magni. Kröfurnar snúa sérstaklega að kerfunum sem fjallað er um í reglugerð ESB 2019/2144 og afleiddum gerðum. Að auki eru í reglugerðinni sérstök ákvæði um uppfærslur á hugbúnaði. Slíkar uppfærslur geta haft áhrif á það hvernig önnur kerfi bifreiðanna starfa sem og hvernig ökutækin virka að öðru leyti. Því er mælt fyrir að framleiðendur skuli koma á fót kerfi til að halda utan um hugbúnaðaruppfærslur. Lítil og eingöngu óbein áhrif. Kostnaður óverulegur.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Með þessari reglugerð eru settar fram tæknilegar kröfur sem beita skal þegar veittar eru gerðarviðurkenningar á ökutækjum sem framleidd eru í takmörkuðu magni. Kröfurnar snúa sérstaklega að kerfunum sem fjallað er um í reglugerð ESB 2019/2144 og afleiddum gerðum.Að auki eru í reglugerðinni sérstök ákvæði um uppfærslur á hugbúnaði. Slíkar uppfærslur geta haft áhrif á það hvernig önnur kerfi bifreiðanna starfa sem og hvernig ökutækin virka að öðru leyti. Því er mælt fyrir að framleiðendur skuli koma á fót kerfi til að halda utan um hugbúnaðaruppfærslur. Að síðustu er verið að bæta inn viðbótarflokkum fyrir yfirbyggingu eftir vagna.Efnisútdráttur: Reglugerðin inniheldur 3 ákvæði. 1. gr. – Breytingar á reglugerð 2018/858/EB.1) Viðauki I breytist til samræmis við viðauka I í þessari reglugerð.2)Viðauki II breytist til samræmis við viðauka II í þessari reglugerð.3) Viðauki IV breytist til samræmis við viðauka III í þessari reglugerð.4) viðauki V breytist til samræmis við viðauka IV í þessari reglugerð.2. gr. – Umbreytingarákvæði. Frá og með 6. júlí 2022 skulu innlend yfirvöld ekki veita ESB heildargerðarviðurkenningu eða landsbundna gerðarviðurkenningu fyrir ný ökutæki hafi framleiðandi uppfært hugbúnað með þeim hætti að það hafi áhrif á aðrar starfsemi þess nema ökutækið sé í samræmi við þær breytingar sem hér eru gerðar á reglugerð 2018/858/EB. Séu breytingarnar sem gerðar hafa verið í samræmi við reglugerð 2018/858 skal ekki neita að veita gerðarviðurkenningar. Þá skulu yfirvöld í hverju landi íhuga að fella úr gildi samræmisvottorð ökutækja hafi slíkar breytingar verið gerðar á þeim þannig að þau uppfylla ekki lengur skilyrði reglugerðar 2018/858 eins og henni er hér breytt.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Óveruleg áhrifLagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðina er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Rétt væri að uppfæra reglugerð um gerð og búnað ökutækja með tilliti til þessarar reglugerðarMat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Á Íslandi er hvorki að finna framleiðendur ökutækja né viðurkenningarstjórnvöld sem veita evrópska gerðarviðurkenningu né fyrirtæki sem veita tækniþjónustu. Áhrif hér á landi því óverulegur.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Tilgreining á hagsmunaaðilum: Fulltrúar framleiðenda og að öllum líkindum HMS.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei. Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðina er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32022R2236 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 296, 16.11.2022, p. 1 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2022)3823 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 26, 21.3.2024, p. 1 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/797, 21.3.2024 |