32022R1468
Commission Implementing Regulation (EU) 2022/1468 of 5 September 2022 amending Implementing Regulation (EU) No 540/2011 as regards the conditions of approval of the active substance penflufen and repealing Implementing Regulation (EU) 2018/185
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1468 frá 5. september 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 540/2011 að því er varðar skilyrði fyrir samþykki fyrir virka efninu penflúfeni og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/185
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 012/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð er skilyrðum fyrir samþykki á virka efninu penflúfen til notkunar í plöntuverndarvörur breytt. Viðauki við framkvæmdarreglugerð (ESB) 540/2011 breytist í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar. Reglugerð (ESB) nr. 2018/185 er felld úr gildi. Aðildarríki skulu, eftir því sem við á, breyta eða draga til baka leyfi fyrir plöntuverndarvörum sem innihalda penflúfen sem virkt efni eigi síðar en þremur mánuðum eftir að þessi reglugerð tekur gildi. Allir frestir sem aðildarríki veita, í samræmi við 46. gr. reglugerð (ESB) nr. 1107/2009, skulu vera eins stuttir og mögulegt er og skulu renna út eigi síðar en sex mánuðum eftir að þessi reglugerð tekur gildi.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin varðar breytingu á skilyrðum fyrir samþykki fyrir virka efninu penflúfen. Ekki er lengur heimilt að nota virka efnið á útsæðiskartöflur fyrir eða við niðursetningu. Áfram er heimilt að nota virka efnið á sáðkorn í kornrækt.Í B-hluta viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 540/2011 skal uppfæra dálkinn „sértæk ákvæði“ í 55. línu um penflúfen eins og fram kemur í viðauka við þessa reglugerð.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur. Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|---|
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Engin áhrif. |
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32022R1468 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 231, 6.9.2022, p. 101 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D073696/03 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 75, 19.10.2023, p. 17 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/2319, 19.10.2023 |