Nýfæði - 32023R0058
Commission Implementing Regulation (EU) 2023/58 of 5 January 2023 authorising the placing on the market of the frozen, paste, dried and powder forms of Alphitobius diaperinus larvae (lesser mealworm) as a novel food and amending Implementing Regulation (EU) 2017/2470


Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/58 frá 5. janúar 2023 um leyfi til að setja á markað lirfur Alphitobius diaperinus (dritbjalla) í frystu formi, deigformi, þurrkuðu formi og duftformi sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 223/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Framkvæmdareglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/58 um leyfi til markaðssetningar á Alphitobius diaperinus lirfum (Dritbjalla) á frosnu, hökkuðu, þurrkuðu og möluðu formi sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
Nánari efnisumfjöllun
Gerðin varðar reglugerð (ESB) 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.Sótt hefur verið um leyfi til markaðssetningar á Alphitobius diaperinus lirfum á frosnu, hökkuðu, þurrkuðu og möluðu formi sem nýfæði. Umsækjandi sótti um leyfi til að nota frosnar, hakkaðar, þurrkaðar og malaðar Aitobius diaperinus lirfur sem innihaldsefni í ýmsar gerðir matvæla sem ætluð eru almennum neytendum og um um notkun á möluðum og þurrkuðum Aitobius diaperinus lirfum í fæðubótarefni ætluðu fullorðnum.Framkvæmdastjórnin óskaði umsagnar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) sem skilaði áliti og telur að efnið sé öruggt til notkunar í þær tegundir matvæla og í því magni sem sótt var um leyfi fyrir. Í álitinu kemur fram að lítið sé til af upplýsingum um hugsanleg ofnæmisviðbrögð vegna Alphitobius diaperinus og að tiltæk gögn séu misvísandi. Því er ekki talin ástæða til að merkja vörur sem innihalda Alphitobius diaperinus sem hugsanlega ofnæmisvalda. Í álitinu kemur fram að neysla Aitobius diaperinus geti framkallað ofnæmisviðbrögð hjá neytendum sem hafa ofnæmi fyrir lindýrum, krabbadýrum og rykmaurum, því þurfi að merkja Alphitobius diaperinus eða vörur sem innihalda hana í samræmi við 9. gr. í reglugerð (ESB) 2015/2283.Umsækjandi fór fram á að hluti af rannsóknunum sem umsóknin byggist á njóti gagnaverndar, sbr. gr. 26.1 í reglugerð 2015/2283 og að umsækjandi hafi einkarétt á að vísa í hluta af þeim rannsóknum sem umsóknin byggir á, sbr. gr. 26.2 í reglugerð 2015/2283.Eftir að hafa skoðað gögn málsins ákvað framkvæmdastjórnin að fallast á beiðnina og veitti umsækjanda einkarétt á að vísa til fyrrgreindra rannsókna. Einkaleyfið gildir í fimm ár frá gildistöku þessarar reglugerðar. Því er umsækjenda veitt einkaleyfi á að markaðssetja nýfæði byggt á þessari reglugerð til fimm ára. Einkarétturinn kemur hins vegar ekki í veg fyrir að aðrir aðilar geti sótt um leyfi fyrir sama nýfæði ef umsókn er byggð á löglega fengnum gögnum.Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Reglugerðin verður innleidd sem breyting á reglugerð nr. 900/2018 sem innleiðir framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli, nr. 93/1995. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Atvinnuvegaráðuneyti |
---|---|
Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32023R0058 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 5, 6.1.2023, p. 10 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 35, 25.4.2024, p. 57 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/960, 25.4.2024 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
---|---|
Viðeigandi lög/reglugerði |