Útdráttur
Þegar byggingarvara fellur undir samhæfðan staðal er gerð krafa um að varan skuli CE-merkt. Þróun á þessu sviði er hröð og því ekki alltaf til staðlar. Ef ekki er til samhæfður staðall fyrir byggingarvöru getur framleiðandi óskað eftir að gert verði evrópskt tæknimat fyrir vöru hans en það gefur honum heimild til að CE-merkja hana. CE-merking getur haft jákvæð áhrif á markaðssetningu byggingarvöru.
Samtök tæknimatsstofnana skulu gera matsskjal ef óskað er eftir evrópsku tæknimati fyrir byggingavöru. Matsskjöl eru stöðluð fyrirmæli sem segja til um með hvaða hætti meta skuli nothæfi ákveðinnar byggingarvöru þegar ekki er fyrir hendi samhæfður staðal. Tæknimatsstofnun gefur út evrópskt tæknimat að beiðni framleiðanda á grundvelli evrópsks matsskjals. Hér eru kynnt 25 ný matsskjöl. Áhrif hér á landi eðlileg og jákvæð. Kostnaður fyrir hið opinbera óverulegur.
Nánari efnisumfjöllun
Efnisútdráttur: Í ákvörðuninni er fjallað um 25 ný evrópsk matsskjöl um:• Bylgjaðar jarðbiksflísar og -plötur.• Fljótandi vatnsþéttingarefni (samstæða) fyrir brúargólf.• Högghljóðeinangrunarmotta með viðbótarvirkni fyrir frárennsli regnvatns og vörn á ytri vatnsþéttilögum.• Kúlulegur með sérstöku innra innsigli fyrir aukið álag.• Samstæða fyrir kerfisofn - skorsteinn sem samanstendur af skorsteinssamstæðu með leir-/keramikrörum og innbyggðri eldavélareiningu.• Samstæður sem samanstanda af skorsteinsrörafóðringu úr glertrefjum, steinefnum og lífrænum efnum, til viðbótar við aðra íhluti og aukahluti (kemur í stað tækniforskriftar EAD 060012-00-0802).• Byggingarvara sem liggur gegnum veggi og gólf, með íhlutum til að flytja brennsluafurðir.• Samstæður til glerjunar og límkítti.• Hraðbindandi sement með flúorlagskiptum.• Samstæða fyrir járnbenta steinsteypuhluta með sterku styrktarstáli en takmarkaðri tognýtingu;• Léttsteypukubbar með sérstakan rakabreytieiginleika Fm.• Byggingarkubbar gerðir úr múrsteinum og endurunnu gleri.• Varmaeinangrandi- og berandi einingar úr endurunnu gleri.• Vatnslaus lyktargildra fyrir gólfniðurföll.• Lagskiptar eða ólagskiptar skífur með lágum jarðbiksmassa og með steinefna- eða gerviefnastyrkingu.• Plast- eða gerviefnatrefjar styrktar með alkalíþolnum glertrefjum til notkunar í steinsteypu.• Kalksteinsfylliefni með viðbótareiginleikum.• Sérstakir speglar.• Fúguþéttingarprófílar úr EPDM til þéttingar í samskeytum klæðninga.• Innsprautunarfestingar úr málmi til notkunar í múrverk (kemur í stað tækniforskriftarinnar „EAD 330076-00-0604“).• Innsteyptir akkerisboltar (kemur í stað tækniforskriftar „EAD 330924-00-0601“).• Fleygspenniskífur til festingar bolta í burðarvirki.• Tenging til að styrkja núverandi steinsteypuvirki með steypuyfirlagi.• Plasthólf fyrir neðanjarðar netkerfi sem komið er fyrir undir aðgengisloki (manhole top).• Samstæða fyrir eldþolnar þjónusturásir sem samanstendur af forsmíðuðum tengihlutum (úr stálplötu með þennsluhúð eða -fóðri) og fylgihlutum (kemur í stað tækniforskriftar EAD 350003-00-1109).Þegar byggingarvara fellur undir samhæfðan staðal er gerð krafa um að varan skuli CE-merkt. Þróun á þessu sviði er hröð og því ekki alltaf til staðlar. Ef ekki er til samhæfður staðall fyrir byggingarvöru getur framleiðandi óskað eftir að gert verði evrópskt tæknimat fyrir vöru hans en það gefur honum heimild til að CE-merkja hana. CE-merking getur haft jákvæð áhrif á markaðssetningu byggingarvöru.Samtök tæknimatsstofnana skulu gera matsskjal ef óskað er eftir evrópsku tæknimati fyrir byggingavöru. Matsskjöl eru stöðluð fyrirmæli sem segja til um með hvaða hætti meta skuli nothæfi ákveðinnar byggingarvöru þegar ekki er fyrir hendi samhæfður staðal. Tæknimatsstofnun gefur út evrópskt tæknimat að beiðni framleiðanda á grundvelli evrópsks matsskjals.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Ekki er að sjá að íslenskum kröfum geti ekki verið mætt í umræddum byggingarvörum eða að vandamál geti skapast vegna íslensks regluverks.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lög um byggingarvörur nr. 114/2014, sbr. 19. gr. reglugerðar ESB nr. 305/2011.Setja þarf reglugerð til innleiðingar með tilvísun í 7. gr. laga nr. 114/2014 um byggingarvörur. Innleiðing verður með breytingu á reglugerð um gildistöku ákvarðana og framseldra reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um röðun tiltekinna byggingarvara í flokka eftir nothæfi með tilliti til viðbragða við bruna, brunatæknilega flokkun á tilteknum vörum án þess að brunaprófun þurfi að fara fram, og aðferð við staðfestingu á samræmi byggingarvara skv. 60. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 305/2011 um byggingarvörur, nr. 424/2015.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Ekki kostnaður hjá hinu opinbera.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: NeiHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei