32014D0287

Commission Implementing Decision 2014/287/EU setting out criteria for establishing and evaluating European Reference Networks and their Members and for facilitating the exchange of information and expertise on establishing and evaluating such Networks


iceland-flag
Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar frá 10. mars 2014 um viðmiðanir við að koma á fót og meta evrópsk tilvísunarnet og aðila að þeim og til að greiða fyrir skiptum á upplýsingum um og sérþekkingu á að koma slíkum netum á fót og meta þau (2014/287/ESB)
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 10 Almenn þjónusta
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 281/2014
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í þessari ákvörðun eru settar fram:
a) viðmiðanir við að koma á fót og meta tilvísunarnet sem um getur í 12. gr. tilskipunar 2011/24/ESB og
b) ráðstafanir til að greiða fyrir skiptum á upplýsingum um og sérþekkingu á að koma á fót tilvísunarnetum sem um getur
í 12. gr. tilskipunar 2011/24/ESB og meta þau.

Nánari efnisumfjöllun

12. gr. tilskipunar 2011/24/ESB segir:

Evrópsk viðmiðunarnet
1. Framkvæmdastjórnin skal styðja aðildarríkin í þróun evrópskra viðmiðunarneta milli aðila sem veita heilbrigðisþjónustu og miðstöðva sérfræðiþekkingar í
aðildarríkjunum, einkum á sviði sjaldgæfra sjúkdóma.
Netkerfin skulu byggjast á sjálfviljugri þátttöku félaga, sem taka þátt í og stuðla að starfsemi netkerfanna í samræmi við löggjöf aðildarríkisins þar sem þeir hafa staðfestu, og skulu alltaf vera opin nýjum aðilum sem veita heilbrigðisþjónustu og sem óska eftir aðild að þeim, að því tilskildu að slíkir aðilar sem veita heilbrigðisþjónustu uppfylli öll skilyrði og viðmiðanir sem um getur í 4. mgr.
2. Evrópsk viðmiðunarnet skulu hafa minnst þrjú af eftirtöldum markmiðum:
a) að aðstoða við að nýta möguleika evrópsks samstarfs varðandi mjög sérhæfða heilbrigðisþjónustu fyrir sjúklinga og fyrir heilbrigðiskerfi með því að nýta nýjungar í læknavísindum og heilbrigðistækni,
b) að stuðla að samnýtingu þekkingar varðandi forvarnir gegn sjúkdómum,
c) að stuðla að umbótum á greiningu og veitingu aðgengilegrar og kostnaðarhagkvæmrar heilbrigðisþjónustu í háum gæðaflokki fyrir alla sjúklinga með sjúkdóma sem krefjast sérstakrar samsöfnunar þekkingar á læknavísindalegu sviði þar sem sérþekking er sjaldgæf,
d) að hafa nýtingu tilfanga eins kostnaðarhagkvæma og unnt er með því að safna þeim saman eftir því sem við á,
e) að efla rannsóknir, faraldsfræðilegt eftirlit, s.s. skráningu, og sjá fagfólki í heilbrigðisþjónustu fyrir þjálfun,
f) að auðvelda hreyfanleika sérþekkingar, í sýnd eða reynd, og þróa, deila og miðla upplýsingum, þekkingu og bestu starfsvenjum og stuðla að þróun í greiningu og meðferð sjaldgæfra sjúkdóma, innan og utan netkerfanna,
g) að hvetja til þróunar á gæða- og öryggisviðmiðunum og aðstoða við að móta og miðla bestu starfsvenjum innan og utan netkerfanna,
h) að vera til aðstoðar aðildarríkjum þar sem ekki eru mjög margir sjúklingar með tiltekinn sjúkdóm eða skortur er á tækniþekkingu eða sérþekkingu og þar af leiðandi ekki hægt að veita mjög sérhæfða þjónustu í háum gæðaflokki.
3. Aðildarríkin eru hvött til að auðvelda þróun evrópskra viðmiðunarneta:
a) með því að setja viðeigandi aðila sem veita heilbrigðisþjónustu í samband við miðstöðvar sérfræðiþekkingar á innlendum yfirráðasvæðum sínum og tryggja að upplýsingum sé miðlað til viðeigandi aðila sem veita heilbrigðisþjónustu og miðstöðva sérfræðiþekkingar á innlendum yfirráðasvæðum sínum,
b) með því að stuðla að því að aðilar sem veita heilbrigðisþjónustu og miðstöðvar sérfræðiþekkingar taki
þátt í evrópskum viðmiðunarnetum.
4. Að því er varðar 1. mgr. skal framkvæmdastjórnin:
a) samþykkja skrá yfir tilteknar viðmiðanir og skilyrði sem evrópsku viðmiðunarnetin verða að uppfylla og skilyrði og viðmiðanir sem aðilar sem veita heilbrigðisþjónustu og vilja taka þátt í evrópska viðmiðunarnetinu verða aðuppfylla. Þessar viðmiðanir og skilyrði skulu m.a. tryggja að evrópsku viðmiðunarnetin:
i. búi yfir þekkingu og sérþekkingu til að greina, fylgja eftir og meðhöndla sjúklinga og hafi skjalfestingu fyrir góðum árangri eftir því sem við á,
ii. þjóni þverfaglegum tilgangi,
iii. búi yfir sérþekkingu á háu stigi og hafi getu til að semja viðmiðunarreglur um góðar starfsvenjur og framkvæma stöðumælingar og gæðaeftirlit,
iv. stuðli að rannsóknum,
v. skipuleggi kennslu- og þjálfunarstarf og
vi. eigi náið samstarf við aðrar miðstöðvar sérfræðiþekkingar og netkerfi á innlendum og alþjóðlegum vettvangi,
b) semja og birta viðmiðanir fyrir stofnun og mat evrópskra viðmiðunarneta,
c) auðvelda miðlun upplýsinga og sérþekkingar í tengslum við stofnun og mat evrópskra viðmiðunarneta.
5. Framkvæmdastjórnin skal samþykkja ráðstafanir, sem um getur í a-lið 4. mgr., með framseldum gerðum í samræmi við
17. gr. og með fyrirvara um skilyrði 18. og 19. gr. Samþykkja skal ráðstafanirnar í b- og c-lið 4. mgr. í samræmi við
reglunefndarmeðferðina sem um getur í 2. mgr. 16. gr.
6. Ráðstafanir, sem eru samþykktar samkvæmt þessari grein skulu ekki hafa í för með sér neina samræmingu á lögum eða
reglum aðildarríkjanna og skulu virða að fullu ábyrgð aðildarríkjanna á að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu og læknishjálp.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Heilbrigðisráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32014D0287
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 147, 17.5.2014, p. 79
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 71, 26.11.2015, p. 33
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 311, 26.11.2015, p. 34

Breytt af (Modified by)

32019D1269 amends Commission Implementing Decision 2019/1269 of 26 July 2019 amending Implementing Decision 2014/287/EU setting out criteria for establishing and evaluating European Reference Networks and their Members and for facilitating the exchange of information and expertise on establishing and evaluating such Networks Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32011L0024 based on Directive 2011/24/EU of the European Parliament and of the Council on the application of patients' rights in cross-border healthcare Tekin upp í EES-samninginn og í gildi