Útdráttur
Markmiðið með þessari gerð er að breyta b)-lið 2. gr. reglugerðar (EB) nr. 391/2009 sem fjallar um skilgreiningu á hugtakinu „alþjóðasamningar“. Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) hefur nýlega samþykkt IMO Instruments Implementation Code (III Code) og IMO Code for Recognized Organizations (RO Code), ásamt því að breytingar hafa komið til á öðrum alþjóðasamningum vegna þessara nýju kóða, s.s. MARPOL og SOLAS. Gert er ráð fyrir að III-kóðinn og RO-kóðinn taki gildi á tímabilinu 1. janúar 2015 til 1. janúar 2018. Í 2. mgr. 13. gr. reglugerðar (EB) nr. 391/2009 er heimild til að undanskilja breytingar á alþjóðasamningunum, sem um getur í b)-lið 2. gr. gildissviði hennar, skv. 5. gr. reglugerðar EB nr. 2099/2002. Framkvæmdastjórnin hefur metið það svo að tiltekin ákvæði í III-kóðanum og RO-kóðanum séu ósamrýmanleg reglugerð (EB) nr. 391/2009 og skulu því vera undanþegin gildissviði hennar. Þess vegna þurfi að gera breytingar á b)-lið 2. gr. reglugerðar (EB) nr. 391/2009.
Nánari efnisumfjöllun
Framhald af útdrætti: Í reglugerð (EB) nr. 391/2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og –eftirlit er ákveðið hvaða ráðstafanir stofnanir eiga að gera sem falið er að skoða, hafa eftirlit með og annast skírteinisútgáfu til skipa í því skyni að fara að alþjóðasamningum um öryggi á hafi úti og varnir gegn mengun sjávar og að stuðla að því að ná markmiðinu um frelsi til að veita þjónustu. Í reglugerðinni eru meðal annars ítarlegar reglur um heimildir framkvæmdastjórnarinnar til að grípa til þvingunarráðstafana gagnvart þeim flokkunarfélögum sem sjá um skipaskoðun og –eftirlit ef þær ekki uppfylla skyldur sínar. Reglugerð (EB) nr. 391/2009 og tilskipun 2009/15/EB mynda saman heildstæða löggjöf um starfsemi viðurkenndra flokkunarfélaga með sömu meginreglur og skilgreiningar. Reglugerð (EB) nr. 391/2009 mun veita framkvæmdastjórninni/ESA vald til að beita flokkunarfélög hér á landi viðurlögum ef þau ekki fara eftir settum reglum, og er því um framsal valds að ræða. Erfitt er að sjá fyrir umfangið eða áhrifin sem gerðin kann að hafa í för með sér. Reglugerð (EB) nr. 391/2009 hefur enn ekki verið tekinn upp í EES-samninginn og hefur því ekki verið innleidd hér á landi. Reglugerð (EB) nr. 391/2009 er sem stendur í ferli hjá Alþingi/forsætisráðuneyti þar sem sektarákvæðin í reglugerðinni snerta fullveldi Íslands. Reglugerðin mun ein og sér ekki fela í sér neinar sérstakar breytingar þó kóðarnir sem um ræðir hafi hér gildi. Kostnaður fellur undir reglubundinn kostnað ráðuneytis og stofnunar. ________ Markmiðið með þessari gerð er að breyta b)-lið 2. gr. reglugerðar (EB) nr. 391/2009 sem fjallar um skilgreiningu á hugtakinu „alþjóðasamningar“. Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) hefur nýlega samþykkt IMO Instruments Implementation Code (III Code) og IMO Code for Recognized Organizations (RO Code), ásamt því að breytingar hafa komið til á öðrum alþjóðasamningum vegna þessara nýju kóða, s.s. MARPOL og SOLAS. Gert er ráð fyrir að III-kóðinn og RO-kóðinn taki gildi á tímabilinu 1. janúar 2015 til 1. janúar 2018. Í 2. mgr. 13. gr. reglugerðar (EB) nr. 391/2009 er heimild til að undanskilja breytingar á alþjóðasamningunum, sem um getur í b)-lið 2. gr. gildissviði hennar, skv. 5. gr. reglugerðar EB nr. 2099/2002. Framkvæmdastjórnin hefur metið það svo að tiltekin ákvæði í III-kóðanum og RO-kóðanum séu ósamrýmanleg reglugerð (EB) nr. 391/2009 og skulu því vera undanþegin gildissviði hennar. Þess vegna þurfi að gera breytingar á b)-lið 2. gr. reglugerðar (EB) nr. 391/2009. Í reglugerð (EB) nr. 391/2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og –eftirlit er ákveðið hvaða ráðstafanir stofnanir eiga að gera sem falið er að skoða, hafa eftirlit með og annast skírteinisútgáfu til skipa í því skyni að fara að alþjóðasamningum um öryggi á hafi úti og varnir gegn mengun sjávar og að stuðla að því að ná markmiðinu um frelsi til að veita þjónustu. Í reglugerðinni eru meðal annars ítarlegar reglur um heimildir framkvæmdastjórnarinnar til að grípa til þvingunarráðstafana gagnvart þeim flokkunarfélögum sem sjá um skipaskoðun og –eftirlit ef þær ekki uppfylla skyldur sínar. Reglugerð (EB) nr. 391/2009 og tilskipun 2009/15/EB mynda saman heildstæða löggjöf um starfsemi viðurkenndra flokkunarfélaga með sömu meginreglur og skilgreiningar. Reglugerð (EB) nr. 391/2009 mun veita framkvæmdastjórninni/ESA vald til að beita flokkunarfélög hér á landi viðurlögum ef þau ekki fara eftir settum reglum, og er því um framsal valds að ræða. Erfitt er að sjá fyrir umfangið eða áhrifin sem gerðin kann að hafa í för með sér. Reglugerð (EB) nr. 391/2009 hefur enn ekki verið tekinn upp í EES-samninginn og hefur því ekki verið innleidd hér á landi. Reglugerð (EB) nr. 391/2009 er sem stendur í ferli hjá Alþingi/forsætisráðuneyti þar sem sektarákvæðin í reglugerðinni snerta fullveldi Íslands. Reglugerðin mun ein og sér ekki fela í sér neinar sérstakar breytingar þó kóðarnir sem um ræðir hafi hér gildi. Kostnaður fellur undir reglubundinn kostnað ráðuneytis og stofnunar.