32014L0111

Commission Implementing Directive 2014/111/EU of 17 December 2014 amending Directive 2009/15/EC with regard to the adoption by the International Maritime Organization (IMO) of certain Codes and related amendments to certain conventions and protocols


iceland-flag
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/111/ESB frá 17. desember 2014 um breytingu á tilskipun 2009/15/EB að því er varðar samþykkt Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar á tilteknum kóðum og tilheyrandi breytingum á tilteknum samningum og bókunum
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Tilskipun
Nánari tegund gerðar Framkvæmdartilskipun
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.05 Sjóflutningar
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 326/2023
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmiðið með þessari gerð er að breyta d)-lið 2. gr. tilskipunar 2009/15/EB sem er skilgreining á hugtakinu „alþjóðasamningar“. Í tilskipun 2009/15/EB er kveðið á um tilteknar aðferðir sem aðildarríkin og flokkunarfélögin skulu fylgja við skoðun, eftirlit og viðurkenningu skipa í því skyni að fara að alþjóðasamningum um öryggi á hafi úti og varnir gegn mengun sjávar ásamt því að stuðla að frelsi til að veita þjónustu. Þetta ferli felur í sér þróun og framkvæmd öryggiskrafna sem gilda um bol, vél-, raf- og stjórnbúnað skipa sem falla undir gildissvið alþjóðasamninganna. Ætlunin er að tryggja skilvirka og einsleita framkvæmd alþjóðareglna með því að semja sameiginlega fagstaðla fyrir flokkunarfélög sem sjá um skipaskoðun og –eftirlit. Í reglugerð (EB) nr. 391/2009 er mælt fyrir um ráðstafanir sem stofnanir sem annast skipaskoðun og –eftirlit eiga að gera.

Nánari efnisumfjöllun

Markmiðið með þessari gerð er að breyta d)-lið 2. gr. tilskipunar 2009/15/EB sem er skilgreining á hugtakinu „alþjóðasamningar“. Í tilskipun 2009/15/EB er kveðið á um tilteknar aðferðir sem aðildarríkin og flokkunarfélögin skulu fylgja við skoðun, eftirlit og viðurkenningu skipa í því skyni að fara að alþjóðasamningum um öryggi á hafi úti og varnir gegn mengun sjávar ásamt því að stuðla að frelsi til að veita þjónustu. Þetta ferli felur í sér þróun og framkvæmd öryggiskrafna sem gilda um bol, vél-, raf- og stjórnbúnað skipa sem falla undir gildissvið alþjóðasamninganna. Ætlunin er að tryggja skilvirka og einsleita framkvæmd alþjóðareglna með því að semja sameiginlega fagstaðla fyrir flokkunarfélög sem sjá um skipaskoðun og –eftirlit. Í reglugerð (EB) nr. 391/2009 er mælt fyrir um ráðstafanir sem stofnanir sem annast skipaskoðun og –eftirlit eiga að gera. Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) hefur nýlega samþykkt IMO Instruments Implementation Code (III Code) og IMO Code for Recognized Organizations (RO Code), ásamt því að breytingar hafa komið til á öðrum alþjóðasamningum vegna þessara nýju kóða, s.s. MARPOL og SOLAS. Gert er ráð fyrir að III-kóðinn og RO-kóðinn taki gildi á tímabilinu 1. janúar 2015 til 1. janúar 2018. Framkvæmdastjórnin hefur metið sem svo að tiltekin ákvæði í III-kóðanum og RO-kóðanum séu hvorki samrýmanleg tilskipun 2009/15/EB né reglugerð (EB) nr. 391/2009 og skulu því vera undanþegin gildissviði hennar. Þess vegna þurfi að gera breytingar á d)-lið 2. gr. tilskipunar 2009/15/EB. Tilskipunin mun ein og sér ekki fela í sér neinar sérstakar breytingar þó kóðarnir sem um ræðir hafi hér gildi. Kostnaður fellur undir reglubundinn kostnað ráðuneytis og stofnunar.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32014L0111
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 366, 20.12.2014, p. 83
Innleiðing í aðildarríkjum ESB 27 af 27 aðildarríkjum hafa tilkynnt innleiðingarráðstafanir
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D034053/05
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur)

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 13.6.2024, p. 53
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1464, 13.6.2024

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32009L0015 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)