32016R0068

Commission Implementing Regulation (EU) 2016/68 of 21 January 2016 on common procedures and specifications necessary for the interconnection of electronic registers of driver cards

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 191/2016
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdarstjórn ESB setti á fót sameiginlegt rafrænt kerfi sem kallast TACHOnet og gerir aðildarríkjum kleift að óska eftir upplýsingum frá öðrum aðildarríkjum varðandi útgáfu ökuritakorta sem og að kanna stöðu þeirra, t.d. hvort ökumaður hafi áður fengi útgefið ökuritakort.

Nánari efnisumfjöllun

Framkvæmdarstjórn ESB setti á fót sameiginlegt rafrænt kerfi sem kallast TACHOnet og gerir aðildarríkjum kleift að óska eftir upplýsingum frá öðrum aðildarríkjum varðandi útgáfu ökuritakorta sem og að kanna stöðu þeirra, t.d. hvort ökumaður hafi áður fengi útgefið ökuritakort.
Með þessari reglugerð eru settar fram kröfur, verklagsreglur og tæknilýsingar, um þá skyldu til að tengja kerfi aðildarríkis við TACHOnet kerfið í samræmi við ákvæði 31. gr. reglugerðar nr. 165/2014/ESB. Í þeirri reglugerð eru aðildarríkin m.a. skylduð til að skiptast rafrænt á gögnum til að tryggja sérstæði útgefinna ökuritakorta. Gerð er krafa um samtengingu rafræns kerfis aðildarríkis við TACHOnet eða annað sambærilegt kerfi, sem verður þó að gera mögulegt að nálgast og skiptast á rafrænum gögnum við önnur aðildarríki í gegnum TACHOnet kerfið.
Með þessari reglugerð sem hér er til umfjöllunar er aðildarríkjum Evrópusambandsins og EES-svæðisins gert skylt að starfa eftir sömu verklagsreglum og tæknilýsingum við rafræna skráningu ökuritakorta, þ.e. THACHOnet, sem mælt er fyrir um í 31. gr. reglugerð nr. 165/2014/ESB. Sú reglugerð hefur ekki verið innleidd hér á landi.
Helstu breytingar hér á landi felast uppfærslu á þeim verklagsreglum og tæknilýsingum sem þegar er verið að starfa eftir hjá Samgöngustofa um TACHOnet kerfið.
Reglugerðin hefur ekki í för með sér neinar efnislegar breytingar á núverandi regluverki. Kostnaður við það að uppfæra núverandi kerfi (TACHOnet) við þær kröfur sem koma fram í reglugerðinni fellur til vegna vinnu við hugbúnað auk uppfærslu á verklagsreglum og tæknilýsingum sem starfað er eftir og fellur innan reglubundinnar starfssemi Samgöngustofa hefur yfirumsjón og ábyrgð með rekstri TACHOnet en aðrir hagsmunaaðilar eru þeir sem reka fólks- og vöruflutningabifreiðir.
Reglugerðin verður innleidd með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.ökumanna
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32016R0068
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 15, 22.1.2016, p. 51
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 19, 22.3.2018, p. 47
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 80, 22.3.2018, p. 34

Breytt af (Modified by)

32017R1503 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2017/1503 of 25 August 2017 amending Implementing Regulation (EU) 2016/68 on common procedures and specifications necessary for the interconnection of electronic registers of driver cards Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32014R0165 based on Regulation (EU) No 165/2014 of the European Parliament and of the Council of 4 February 2014 on tachographs in road transport, repealing Council Regulation (EEC) No 3821/85 of the European Parliament and of the Council on recording equipment in road transport and amending Regulation (EC) No 561/2006 of the European Parliament and the Council on the harmonisation of certain social legislation relating to road transport Tekin upp í EES-samninginn og í gildi