32016R0472

Commission Implementing Regulation (EU) 2016/472 of 31 March 2016 amending Regulation (EU) No 72/2010 as regards the definition of the term ‘Commission inspector’

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 245/2016
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í gildi er reglugerð (ESB) nr. 72/2010 um verklagsreglur við framkvæmd skoðana á vegum framkvæmdastjórnarinnar á sviði flugverndar. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) framkvæmir skoðanir á sviði flugverndar hjá EES EFTA ríkjunum á grundvelli EES samningsins. Markmiðið með reglugerð (ESB) nr. 2016/472 er að auka frekari samræmingu á sviði flugverndar innan EES svæðisins þannig að hugtakið skoðunarmaður framkvæmdastjórnarinnar taki einnig til viðurkenndra sérfræðinga frá aðildarríkjum EFTA sem og viðurkenndra skoðunarmanna ESA. Í sama skyni tekur hugtakið skoðunarmaður framkvæmdastjórnarinnar nú einnig til viðurkenndra sérfræðinga frá skrifstofu Evrópusambands flugmálastjórna (ECAC)

Nánari efnisumfjöllun

Í gildi er reglugerð (ESB) nr. 72/2010 um verklagsreglur við framkvæmd skoðana á vegum framkvæmdastjórnarinnar á sviði flugverndar. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) framkvæmir skoðanir á sviði flugverndar hjá EES EFTA ríkjunum á grundvelli EES samningsins. Markmiðið með reglugerð (ESB) nr. 2016/472 er að auka frekari samræmingu á sviði flugverndar innan EES svæðisins þannig að hugtakið skoðunarmaður framkvæmdastjórnarinnar taki einnig til viðurkenndra sérfræðinga frá aðildarríkjum EFTA sem og viðurkenndra skoðunarmanna ESA. Í sama skyni tekur hugtakið skoðunarmaður framkvæmdastjórnarinnar nú einnig til viðurkenndra sérfræðinga frá skrifstofu Evrópusambands flugmálastjórna (ECAC).
Reglugerðin kemur ekki til með að hafa áhrif hér á landi. Líkt og að framan greinir heimilar reglugerðin m.a. framkvæmdastjórninni að kalla til sérfræðinga frá ESA sem verða fullgildir meðlimir í skoðunarhópum framkvæmdastjórnarinnar en það hefur verið mikið atriði fyrir sérfræðinga ESA á sviði flugverndar sem liður í síþjálfun þeirra. Hingað til hafa sérfræðingar ESA einungis verið með skoðunarhópum framkvæmdastjórnarinnar sem áheyrnarfulltrúar. Á sama hátt getur ESA kallað til sérfræðinga frá framkvæmdastjórninni sem fullgilda meðlimi í skoðunarhópum ESA.
Fyrir viðurkennda sérfræðinga á Íslandi mun reglugerðin ekki breyta þeirri framkvæmd sem viðhöfð er í dag að framkvæmdastjórnin kallar þá reglulega til sem hluta af skoðunarhópum sínum.
Í gildi er aðlögun sem gerð var við upptöku reglugerðar (ESB) nr. 72/2010 í EES samninginn þar sem fram kemur að framkvæmdastjórnin og ESA megi bjóða skoðunarmönnum hins að taka þátt í skoðunarhópum sínum sem áheyrnarfulltrúar. Fella þarf þann aðlögunartexta úr gildi.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð um flugvernd, nr. 750/2016
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32016R0472
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 85, 1.4.2016, p. 28
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 56, 23.8.2018, p. 55
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 215, 23.8.2018, p. 42

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32010R0072 amends Commission Regulation (EU) No 72/2010 of 26 January 2010 laying down procedures for conducting Commission inspections in the field of aviation security Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32008R0300 based on Regulation 300/2008 of the European Parliament and of the Council of 11 March 2008 on common rules in the field of civil aviation security and repealing Regulation (EC) No 2320/2002 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)